Vikan


Vikan - 09.06.1966, Síða 31

Vikan - 09.06.1966, Síða 31
og fleygði henni ó brautarpallinn. Fjölskyldan frétti eitthvað af þessum manni seinna, það var ein- hver ó brautarstöðinni sem kannað- ist við hann. Hann var ungur og hafði verið lótinn laus úr fangels- inu í bænum með því skilyrði að hann færi úr bænum. Þetta skeði oft, það var ódýrara en að fæða þó í fangelsinu. Þeir sníktu sér svo venjulega far með lestinni, en þessi átti peninga, því að hann keypti tvo farmiða. — Þetta er nú öll sagan sem ég þekki. Það getur verið að hún sé ennþá á lífi og þú gætir kannski rekizt á hana, ef þú reynir . . . Lisbet frænka haltraði að kom- móðu við vegginn og fór að gramsa þar í skúffu. Hún dró upp gamla mynd. — Þannig leit hún út þegar hún var ung. Mamma vissi aldrei að ég átti þessa mynd. Catherina getur ekki hafa verið lagleg. Jafnvel þarna fyrir fram- an Ijósmyndarann var hún eins og á verði, biðjandi. Það var eins og hún væri að segja: — O, meiddu mig ekki! Hún hafði þesskonar hár að það hlýtur að hafa verið hrein plága í þá daga, þegar hárgreiðsl- an gekk út á að liða hárið með járni, sem hitað var yfir olíulampa. — Ég man eftir þeim degi þeg- ar mamma skar aliar myndirnar af Cat út úr albúminu, sagði Lisbet. — Hún gerði það með rakhnífnum hans pabba, og hönd hennar skalf ekki einu sinni. Mamma var mjög þrá. Hún vildi aldrei snerta á konfektkassanum, sem Cat skildi eftir á dagstofúborð- inu. Hún viðurkenndi hreinlega ekki að kassinn væri þar. Börnin þurrkuðu við og við af honum ryk- ið og hann stóð þar í nokkra mán- uði, þá fór einhver með hann upp á háaloft. Mamma minntist aldrei á það heldur. Einn bræðra minna óhlýðnaðist henni einu sinni og hún nefndi aldrei nafn hans, síðustu árin sem hún lifði. Það var þannig, að einu sinni var fjölskyldufundur, en hann gat ekkl komið, vegna þess að hann tjöldin eru sterk, ódýri, þola regn og gerði fyrir ís- lenzka veðráttu. 5 manna fjölskyIdutjöldin orange- lituðu með bláu aukaþekjunni eru tjöida ársins. Forðist eftiriíkingar. teppasvefnpokarnir eru ómissandi í viðleguna. PALMA Ferðaprímusar Pottasett - Bakpokar vindsængur eru viðurkenndar fyrir gæði. Verð frá Verzlið þar sem hagkvæmast er. Verzlið í stærstu kr. 485.00 sportvöruverzlun landsins. Gerið samanburð á verði. hafði atvinnu í Arabíu. Henni fannst að hann hefði samt getað komið, og þar sem hann ekki gerði það, gerði hún hann arflausan. — Lét langamma eftir sig mikla peninga? — Áttatíu og sjö dollara í pen- ingum, sagði Lisbet og daufu brosi brá fyrir á andliti hennar. — Þú skalt ekki hugsa illa til hennar, barnið mitt. Hún vann mikið og henni fannst að hún ætti inni svo- lítið frelsi. Eina leiðin til að njóta þess var að láta Cat passa börnin, svo hún gæti komizt á safnaðar- fundi og söngæfingar. . . Þegar ég var komin til Chicago, búin að koma mér fyrir í lítilli íbúð og skólanum, fór ég að reyna að hafa upp á Catherinu frænku. Ég lagði þó ekkert sérstaklega á mig til þess, enda var ég upptekin um tíma af ungum manni, sem heitir Martin. Hann er liðsforingi í hern- um að atvinnu. Við höfðum orðið ósátt og mér leið ósköp illa. Svo var það einn leiðinda sunnu- dag að ég var að skoða eina af útborgum Chicago. Ég leit þar í símaskrá, til að vita hvort ég ræk- ist á nafnið Clifford Jaunty. Jú, þarna var það, með „Jr". fyrir aft- an. Auðvitað gat ég aldrei haft neitt upp úr simtali, en ég hringdi nú samt, áður en ég missti kjark- inn. Hol drengjarödd svaraði í sím- ann. Ég reyndi að vera mjög virðu- leg og spurði: — Get ég fengið að tala við Clifford Jaunty? — Pabbi er ekki heima, en afi KONGSBERG úrvals verkfæril Umbodsmenn á islandi K.Þorsteinsson & Co.umbods-helldverzlun VIKAN 23. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.