Vikan - 09.06.1966, Blaðsíða 41
JarSarfarir hjá
heiSingjum
Framhald af bls. 11.
Ferðalag sálarinnar
Með öllum þeim fórnum, sem
nú hafa verið nefndar, voru menn
samt ekki öruggir um sál hins
framliðna. Menn óttast að hún
lendi á vondum stað, í slæmum
félagsskap innan um illa anda
og í heldur miklum hita. Þess
vegna eru aðrir prestar og sær-
ingamenn fengnir til að biðja
fyrir hinum framliðnu. Til þess að
finna þá réttu menn til þeirra
hluta, leita menn til munkanna,
lærisveina Búddha, því þeir telj-
ast allra manna fróðastir um
Vítin og hreinsunareldana og
vegina þar á milli. Þegar ríkir
menn eiga í hlut, láta menn sér
ekki nægja venjulegar fyrir-
bænir og sálumessur, heldur fá
menn prestana til að skrifa vega-
bréf handa sálunum. Vér höfum
lesið þess konar vegabréf. Þau
eru stíluð til þess höfðingja, sem
fer með völd í undirheimum, vit-
um eða einhverjum hreinsunar-
eldi. Hafi nú aðeins sálin farið
í hreinsunareldinn, þá er málið
einfalt. Menn skrifa einhverjum
forstjóra í undirheimum kurt-
eislega orðað bréf, • og tilkynna
hvaða sál hér sé á ferð. Það er
einnig tekið fram að sálin hafi
á jörðunni gert mörg góðverk
og áunnið sér verðleika, en hafi
þó ekki verið við því búin að
vera kölluð héðan. Höfðingi
hreinsunareldsins er beðinn að
taka vægt á brotum hins fram-
liðna, og leiðbeina honum, svo
hann komist sem greiðlegast gegn
um þrautir eldsins og geti sem
fyrst komizt á betri staði. Höfð-
ingjum andanna er einnig lofað
ríflegum fórnargjöfum, ef þeir
vilji greiða vel fyrir sálinni.
Bréfið er síðan dagsett og undir-
skrifað af einhverjum presti, og
síðan er það sent inn í annan
heim með því að brenna það í
eldi.
Meðan prestarnir eru að semja
við máttarvöld annars heims,
verða þeir að fá góðan veizlu-
mat og ríflega borgun að lokum.
Þótt þetta sé gert, má ekki
vanrækja neitt í sambandi við
jarðarförina. Mikil veizla er hald-
in öllum þeim, sem koma vilja,
vín er veitt og alls konar kræs-
ingar. Hljómsveit er höfð við
hverja jarðarför, og heldur tvær
en ein, og vinna þær dag og
nótt, með litlum hvíldum.
Sorgarbúningur er hvítur í
Kína. Margar reglur og mjög
flóknar gilda, þegar menn syrgja
ástvini sína. Við jarðarför klæð-
ast nánir ástvinir hins látna hvít-
um sloppum, bera hvítar húfur á
höfði og ganga í skóm, sem flétt-
aðir eru úr hálmi. f húfuna eru
bundnir með spottum litlir
hnoðrar úr bómull, og lafa þeir
niður, þannig að þeir hoppa og
skoppa til og frá í andlitinu á
mönnum þegar þeir ganga í lík-
fylgdinni. Allir ástvinir hins
látna falla fram fyrir líkkist-
unni í heimahúsum, og skulu þeir
endurtaka þá athöfn tuttugu og
fjórum sinnum áður en kistan
er borin út. En dæmi eru til þess
að kistunni hefir verið lokað
sérlega vel og hún síðan verið
máluð dökku lakki og þar eftir
látin standa allt að tveim árum
í heimahúsum, svo að jarðar-
förin hefir tekið á þriðja ár.
Telst þetta hinn mesti heiður,
sem hægt er að veita hinum
framliðna. En þá bætast við
margir helgisiðir. Sjöunda hvern
dag í 35 daga skal endurtaka
sálumessur og tilbeiðsluathafnir,
og ber þá, ef vel á að vera, að
kalla til presta frá þrem aðal-
trúarbrögðum Kína, eða sere-
móníumeistara, frá Búddhadómi,
Taoisma og Konfúsianisma til að
tryggja að vel sé fyrir öllu séð,
er sálina varðar. Síðan er jarðar-
förinni haldið áfram. Og hvort
sem hún tekur lengri tíma eða
skemmri, verður að framkvæma
eina mikilvæga athöfn áður en
haldið er til grafarinnar. En hún
er í því fólgin að bókmennta-
fræðingar Konfúsíusarsinna letra
nafn hins látna á forfeðratöflu.
Forfeðrataflan eða andataflan,
ling-pai, sem notuð er í heima-
húsum, er þrjátíu-fjörutíu cm.
á hæð, og neðan á henni er stall-
ur, svo að hún getur staðið á
hillu. Hún líkist að miklu leyti
litlum legsteini, þótt hún sé úr
tré. Hún er geymd á goðahillu
heimilisins og daglega skal
brenna reykelsi fyrir framan
hana og töflur af sömu gerð, sem
áður voru til á heimilinu.
Nóttina áður en kistan er til
grafar borin, eru sálumessur
sungnar og leikið er á hljóðfæri.
Þeir andar, sem fyrir eru í anda-
heiminum, eru beðnir að taka vel
við anda hins látna. Gera menn
ráð fyrir að mikill fjöldi vin-
veittra anda sé þar viðstaddur.
Um grafreiti (Fen-shan)
Kistan er yfirleitt borin til
grafar af mörgum mönnum, svo
sem áður segir. Oft fer þangað
margt manna, en þó ekki nema
lítill hluti þeirra, sem þátt hafa
tekið í átveizlunum á heimili
hins látna. Grafreitir eru venju-
lega í fjallshlíð, á hæðum, hólum
eða árbökkum. Um leið og lík-
fylgdin mjakast áfram, er aft-
ur og aftur brennt púðurkerl-
ingum, einkum við beygjur á
vegum. Menn gráta sjálfir og fá
aðra til að gráta með sér. Ríkir
menn taka grátkonur á leigu til
þess að ekki skuli neitt vanrækt
í þeim efnum. Þar að auki fara
menn á eigin spýtur og gráta á
gröfum framliðinna ástvina. Má
oft heyra kvein grátendanna
langar leiðir frá grafreitunum.
22 daga skemmtiferð
Ítalía - Kaupmannahöfn
Gautaborg — Feneyjar — Verona — Bologna — Flórens — Bísa — Róm —
Napoli — Sorrento — Assisi — San Marino — Rimini — Kaupmannahöfn
Þessi ferð hefur verið nær því óbreytt í sumaráætlun okkar ár frá ári. Hún
hefur ávallt verið vel sótt og hefur líkað sérstaklega vel. Kemur margt til —
bæði að Ítalíuferðir sem þessar eru alltaf vinsælar og einnig að skrifstofan hef-
ur fengið góða reynslu í því að skipuleggja þessar ferðir sem bezt má vera.
Við sjáum flestar merkustu borgir Ítalíu auk margra fallegustu héraða lands-
ins. Auk þessa alls höfum við góðan tíma bæði í Kaupmannahöfn og Gautaborg.
5. ágúst: Flogið til Svíþjóðar um miðjan dag og lent í Gautaborg seint um
kvöldið.
6. ágúst: Dvalið I Gautaborg. Má eyða hluta dagsins til að skoða Volvoverk-
smiðjurnar.
7. ágúst: Dagsferð um nágrenni Gautaborgar. Þetta er sunnudagur og tilvalið
að aka um héruðin norður af Gautaborg, en þar er m.a. vatnið Vánern, Troll-
háttan og margir aðrir rómaðir staðir.
8. ágúst: Flogið snemma morguns frá Gautaborg til Feneyja. Þar er lent skömmu
eftir hádegið. Á flugvellinum bíður okkar langferðabíll og hefst nú sjálf Ítalíu-
ferðin. Að sjálfsögðu er fyrsta dagleiðin stutt, en farið er um Verona til Flórens.
9. —10. ágúst: Tveir dagar í Flórens. Bæði skoðum við sjálfa borgina og nágrenn-
ið. Toscana-héraðið er bæði frægt fyrir Chianti-vínin og fegurð Appennina-
fjallanna. Borgin, sem kennd er við þá Dante og Boccacio, geymir mörg ó-
dauðleg listaverk.
11. ágúst: Ekið er um hinn frjósama Arnodal og eftir tvo tíma komið til Pisa.
Eftir að hafa skoðað borgina er haldið áfram með ströndinni allt til Rómar.
12., 13., 14. ágúst: Þrír dagar í Róm. Að vísu mundi ekki veita af lengri tíma
til að skoða þennan stað, en við gerum okkar bezta. Við notum bílinn til að
skoða allt það helzta, þ.á.m. Páfaríkið.
15. ágúst: Fyrir hádegi er ekið til Napoli. þar sem við stönzum og borðum há-
degismat. Síðar er haldið út með Napoliflóanum þar sem við höfum útsýni bæði
til Capri og Ischia og komum að síðustu til Sorrento, sem er einn frægasti bað-
staður Ítalíu.
16. —17. ágúst: IJm kyrrt á ströndinni. Geta nú sóldýrkendur notið sín.
18. ágúst: Um Napoli til Assisi.
19. ágúst: Stutt dagleið en skemmtileg til smáríkisins San Marino.
20. ágúst: San Marino — Feneyjar. Ekið er eftir austurströnd Ítalíu um Rimini
og Ravenna.
21. —22. ágúst: Um kyrrt í Feneyjum. Seinni liluta dags þ. 21. er flogið til Gauta-
borgar. þar sem skipt er um flugvél, sem lendir í Kaupmannahöfn um kl. 8 e.h.
23., 24., 25. ágúst: Um kyrrt í Kaupmannahöfn.
26. ágúst: Flogið um Gautaborg til íslands.
Brottför:
Frá Reykjavík 5. ágúst.
Heildarverð: kr. 21.900,00.
Innifalið í verði:
Flugferðir og ferðalag um Ítalíu
í langferðabíl, allar gistingar, fullt
fæði alla Ítalíuferðina, en morgun-
verður í Kaupmannahöfn og Gauta-
borg, fararstjórn og söluskattur.
Sérstakar greiðslur:
Eins manns herbergi alla lciðina
kr. 500,00.
Flugvallarskattur í Gautaborg SKR
15,00.
Flugvallarskattur í Khöfn DKR
20,00.
Ekki innifalið í verði:
Drykkir með mat og önnur per-
sónuleg útgjöld.
Gististaðir:
Gautaborg: Ilotell Volrat Tham.
Flórens: Hotel Milano Terminus.
Róm: Hotel Columbus. Sorrento:
Grand Ilotel Flora. Assisi: Hotel
Umbra. San Marino: Hotel Titano.
Feneyjar: Hotel Cavaletto. Kaup-
mannahöfn: Saxohus Hotel.
Fararstjóri: Helgi Skúlason, leikari.
LÖND & LEIÐIR
VIKAN 23. tbl.