Vikan - 09.06.1966, Síða 37
Jaunty, en þetta hefur allt bless-
azt.
— Lisbet frænka sagði mér hvern-
ig þetta var, viðurkenndi ég. — Hún
hefur verið afskaplega óhyggjufull
öll þessi ár, vegna þess að hún
frétti ekkert frá þér.
Hörkulegt andlitið á Cat frænku
varð allt í einu blíðlegt og furðu-
lega unglegt. — Ég hljóp grátandi
út í skóginn, ég vissi ekkert hvert
ég átti að fara. Ég hljóp í áttina að
ánni. En þá kom maður fram úr
myrkrinu og sagði við mig: —
Heyrðu stúlka litla, vertu ekki að
gráta, þetta lagast allt saman.
Þannig bar fundum okkar saman.
Hann var að bíða eftir ferð, hann
þurfti að komast burt úr bænum.
En hann átti peninga, tuttugu og
sjö dollara, svo við fórum upp f
lestina. sem var á austurleið.
Heyrðu, hversvegna ertu að skæla,
sagði hún og röddin var dálítið
hrjúf.
— Ég veit það ekki, sagði ég og
þurrkaði mér um augun.
Hún varð vör við einhverja hreyf-
ingu fyrir utan gluggann og gekk
út að honum og kíkti gegnum
b'úndu-gluggatjöldin, svo tautaði
hún hálf-æst: — Er hann ekki far-
inn að tala við þessa kerlingu aft-
ur, — yfir girðinguna. Finnst þér
ekki að maður á hans aldri ætti að
hætta að eltast við kvenfólk? Það
er gott að pilturinn þinn er með
honum. Ég býst við að það sé þá
allt í lagi. Cat frænka var að sál-
ast af afbrýðisemi og það sem
meira var, hún hélt dauðahaldi í
hana. Svo sneri hún sér að mér
og sagði: — Ef þessi gamla geit
héldi að ég treysti honum, yrði
hann afskaplega óhamingjusamur.
Hann hefur alltaf verið afbrýðisam-
ur og hann heldur enn þann dag
í dag að ég hafi vitað hver sendi
mér þennan tíu punda konfekt-
kassa. Hugsaðu þér, og það var
áður en ég hitti hann. Þeir eru að
koma inn. Ætlarðu að giftast þess-
um pilti?
— Ég, — ég veit ekki, sagði ég,
— ég er að hugsa um það.
Hún yppti öxlum. — Ég ætla ekki
að ráðleggja þér neitt. Þetta er allt-
af happdrætti, það er sama hvað
þú gerir.
Cliff Jaunty kallaði: — Er ein-
hver heima! og Cat frænka hIjóS-
aði upp: — Skelltu ekki hurðinni,
sagði hún, og ég er viss um að hún
hefur sagt það í hvert sinn, en auð-
vitað skellti hann hurðinni. — Fyr-
irgefðu, sagði hann um leið og
hann ýtti Martin inn.
— Blómin yðar eru dásamleg,
sagði Martin.
Cat frænka svaraði, heldur ó-
lundarlega: — Þau eru ekkert á við
það sem áður var, áður en ég
krepptist öll af liðagigtinni.
Um leið og Jaunty gekk fram
hjá henni, strauk hann hendinni yf-
ir hárið á henni og sagði: — Ég
vil að Catherina sé alltaf fín, það
eru ein ósköp sem ég er búinn að
evða í hárið á henni um ævina!
— Ja, svei, sagði hún.
Svo sagði hann við mig: — Hef-
ur þér verið sagt hvernig 'fólkið
hennar lét leita að henni, hérna
forðum? Ekki það? Hversvegna
sagðirðu henni það ekki, Kitty?
— Það kemur engum við, sagði
hún.
— Segðu henni það samt, — með-
an ég sýni þessum stríðsmanni
kjallarann.
Hún horfði á eftir þeim þegar
þeir fóru niður stigann. — Kjallar-
ann, tautaði hún, — hvað á hann
að gera niður í kjallara? Við eig-
um ekki einu sinni þetta hús. Við
erum búin að hafa það á leigu í
fjörutíu ár. Við hefðum getað keypt
hús fyrir löngu síðan, en hann vill
vera frjáls.
— Þú verður að horfast í augu
við það, stúlka litla, sagði hann
kvöldið sem ég hitti hann fyrst, —
að ég er förumaður. Mig hreinlega
klæjar í iljarnar. Það er ekki hægt
að leggja nein bönd á mig. Ég vil
ekki að þú getir seinna sagt að
ég hafi ekki varað þig við. Þegar
flakklöngunin grípur mig, þá verð
ég að fara. Þetta sagði hann mér.
Ég sagði að það væri allt í lagi,
ef hann bara tæki mig með sér,
hvert sem hann færi. Ég sagðist
ætla að vera honum til hjálpar,
en ekki fjötur um fót.
— Svo nú er ég búin að vera
reiðubúin í öll þessi ár. Það var
stundum. þegar ég fann að hann
var eirðarlaus, að ég hélt að nú
færum við á flakk, jafnvel eftir að
við eignuðumst börnin, ég á tvær
giftar dætur, fyrir utan soninn, hélt
ég að hann gæti ekki verið alltaf
á sama stað. Við höfum aldrei eign-
azt húsið eða góð húsgögn, til að
vera ekki bundin af þeim.
Svo sagði hún. dálítið hörkulega:
— En ég stóð við loforð mitt, hann
er ennþá frjáls til að fara hvert
sem hann vill. Stundum er hann
að tala um að flytia til Florida, en
éa reikna ekki með að það verði
af því . . .
Hún var í svo miklu uppnámi, að
ég tók þann kostinn að brevta um
umtalsefni. — Hvernig var það þeg-
ar fiölskyldan lét leita að þér?
spurði ég.
Hún gretti sig. Það var nú ein
fluqan sem hann fékk fyrir löngu
síðan. Það er þessvegna sem nafn-
ið okkar er ekki í símaskránni.
Hann er heitvondur út í soninn fyr-
ir að hafa látið nafn sitt í sfma-
skránna. Við vorum búin að vera
nokkur ár í Chicago, þá rakst Jaun-
tv á einhvern mann, sem hann sagð-
ist vita að hefði unnið við járn-
brautarstöðina heima. Auðvitað
þekkti þessi maður ekki Jaunty frá
Adam, en hann fékk þetta á heil-
ann, sagði að hann hefði verið
sendur út af örkinni til að leita
okkur uppi. Ég reyndi aldrei að fá
hann ofan af því . . .
Cat frænka snera sér að mér og
nú brosti hún aumkunarlega. — Mér
fannst líka svolítil huqgun í því að
þeim hefði ekki verið alveg sama
um mig, að þau hefðu gert tilraun
til að finna mig . . .
þekktustu kexbakarar
Bretlands síðan
1830
senda reqlulega til ís-
lands 25 tegundir af kexi.
M & D kexið er óviðjafn-
anlegt að gæðum og
verði.
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
V. SIGURÐSSON & SNÆBJÖRNSSON H.F.
Símar 13425 og 16425.
Suwkjólar
Frá Englandi:
SHUBETTE OF LONDON
LADY COURT OF LONDON
Frá Hollandi:
DOOYES, Jersey kjólar
Frá Danmörku:
ELSON, dagkjólar
Alltaf eitthvað nýtt.
Kjörðartar
Laugavegi 59
Sími 18646
VIKAN 33. tbl. 27