Vikan


Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 5

Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 5
fagra eyia auð og yfirgefin. Fró Gufunesi holdum við upp bratta brekku og suður Keldnaholt. Þá höfum við Korpúlfsstaði á vinstri hönd en til hægri er fyrst fjarskiptastöð Landssímans og sunnar hin nýja tilrauna- stöð landbúnaðarins, rétt áður en við komum aftur á Vesturlandsveg vestan við brúna á Korpúlfsstaðaá (Korpu). Austan við ána er Hafravatnsvegur til hægri og honum munum við kynnast síðar í ferð okkar. Þá er Ulfarsfell á hægri hönd og snýr Lága- fellshömrum að veginum. Stórbýlið Blikastaðir stendur á víðlendu túni, fjær vegi til vinstri. Kirkjustaðurinn Lágafell er á hægri hönd undir lágu, samnefndu felli og liggur vegurinn yfir lágan háls norður af því. Hér er frábær útsýnisstaður og það er hægt að aka eftir gömlum vegi, sem liggur nokkuð hærra á hægri hönd. Hér verður manni það Ijóst að fáar höfuðborgir muni eiga sér fegurra umhverfi en Reykjavík og væri feng- ur að fá þarna útsýnisskífu. Nú opnast dalur til hægri handar, sem ber ekkert dalsnefni en mun venjulegast ganga undir nafninu Reykjahverfi. Um hann mun leið okkar liggja síðar. Félagsheimilið Hlégarður er á vinstri hönd og fjær vegin- um myndarlegar skólabyggingar, sundlaug og íþróttavöllur, allt til- heyrandi Mosfellshrepp. Austan við brúna á Varmá er Álafossafleggj- arinn til hægri og svo ökum við norður með hlíðum Helgafells og fram- hjá Þíngvallavegi til hægri. Kaldakvísl er næst, lítil á með stórri brú og skömmu síðar Leirvogsá. Þær renna báðar um víðlendar eyrar út í Leiruvog en norðan hans er hálent nes, Álfsnes. Á melnum norðan við Leirvogsá komum við að verzlun og þar yfirgefum við þjóðveginn. Það er bezt að taka það fram strax, að leiðin, sem við nú höldum getur verið varasöm fyrir mjög lága bíla í rigningatíð. Vegurinn liggur austur melana og eru þá bæirnir Vellir og Norður- gröf undir hinu hömrum girta Kistufelli í Esjunni. Austan við það skerast tveir djúpir og þröngir dalir inn í Esjuna, Grafardalur og Þverárdalur. Á milli þeirra er Hátindur (909 m) en austan við Þverárdal hinir Ijós- leitu Móskarðshnúkar. Svínaskarð skilur þá frá Skálafelli en um það var áður alfaraleið norður í Kjós og áfram þaðan yfir Reynivallaháis til Hvalfjarðar. Nú verða á vegi okkar tvær óbrúaðar ár, Grafará og Skarðsá, en þær geta orðið dálftið viðsjálverðar í rigningatíð, einkum sú fyrrnefnda. Svo komum við að Leirvogsá og hún er brúuð. Bærinn Skeggjastaðir er sunnan árinnar og þaðan er stutt að fara upp með henni að Tröllafossi og er akfært nokkurn hluta leiðarinnar. Ekki er Tröllafoss vatnsmikill en fríður er hann og umhverfið aðlaðandi og sér- kennilegt í senn. Norðan við árgljúfrið rlsa Haukafjöll með nakta hamra- Framhald á bls. 34. Til vinstri: Varmidalur á Kjalarnesi og brúin yfir Lcirvogsá. Að ofan: Gljúfrastcinn. Ofan til hægri: Bcssa- staðir. Að neðan: Elliðaárvogur. Að neðan til hægri: Mosfellskirkja. 32. tbi. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.