Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 8
Filippus drottningarmaður er ákafur ljósmyndari þótt ekki hafi hann
atvinnu af því, eins og sumir aðrir í hans fjölskyldu. Nýlega var haldin
sýning á Ijósmyndum hans í Tryon Gallery í London, og þar var meðal
annars þessi mynd af selskópi. Það kemur sér fyrir Filippus, að kópurinn
er ekki eins fyrtinn við ljósmyndara og Filippus er sjálfur. — Hann
notar mest Hasselblad myndavél, en Bretar halda því lítt á lofti, hvemig
sem á því kann að standa.
ifigi
.
Síiii
síOast
Það er varla von að þið þekkið þennan bíl.
Þetta er brezkur Lotus með Renault ganga-
verki, kallaður Europa Grand Touring. Há-
markshraði er 176 km/klsf., með vélinni
aftur í. Bíllinn er tveggja sæta, með sjálf-
stæðri fjöðrun á hverju hjóli, diskabremsur
að framan en skálar að aftan. Viðbragðið
er 5.5 sek í 80 km hraða, 21.7 sek í 160 km
hraða. Eyðslan er gefin upp 5.5 I á 100 km
hraða en 7 1 á 115—120 km hraða.
KaDDakstursbíll fyrir
alla tiðlskylduna
Barnhard Formula Six heitir ný gcrð af kappaksturs-
bílum, minni en slíkir, og sjáum við hér ungan
kappa renna einum slikum út úr verksmiðjunni.
Bíllinn var teiknaður af gömlum ökuþór og hefur
hann breytileg sæti, stýri og bensíngjöf svo að vel
megi fara um hvern fjölskyldumeðlim, sem er.
Bíllinn er 210 cm á lengd og gengur fyrlr einhverri
af mörgum stærðum véla, sem framleiddar eru
fyrir garðsláttuvélar. Hámarkshraði venjulegu gerð-
arinnar er 75 km/klst. og er gírkasstn sjáifskiptur.
Meðal öryggisbúnaðar er bensíngjöf sem hægt er
að stilla á lághraða eingöngu eða taka úr og stjórna
af fullorðnum sem gengrnr með, (en þi *r hámarks-
hiaðinn væntanjega laegri) og loks Uandbremaa, sem
einnig virkar bæði í og utan bflsáns.
8 VIKAN 32- *“■