Vikan


Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 18

Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 18
að við fáum fullkomna stjórn yfir þeim. Gefa skýrslu á sjötíu og tveggja klukkustunda fresti. Liebmann hripaði þetta á blað og kinkaði kolli. — Ef þetta er mögulegt, viltu þá hæfileikaprófun á þau, Karz? Karz reis á fætur og horfði með borandi augnaráði á Liebmann. — Ég tek engan mögulegan for- ingja eftir orðrómi einum saman, Liebmann, sagði Karz og gekk hægt út úr herberginu. 2. Sir Gerald Tarrant gekk yfir and- dyrið f stóru íbúðarblokkinni, norð- anvert við garðinn. Húsvörðurinn, sem sat við gljáfægt, íbjúgt mag- honfborð, leit upp. — Nei, góðan daginn, sir. Ung- frú Blaise sagði, að þér mynduð koma. Viljið þér gera svo vel að fara beint upp. — Þakka yður fyrir. Tarrant gekk beint að litlu einkalyftunni, sem þjónaði aðeins þakfbúðinni. Þegar dyrnar lokuðust, slappaði hann af. Þetta hafði verið slæm vika. — Vika meiriháttar óhappa og von- brigða, sem náði hámarki f gær- kvöldi með þeim fréttum, sem hann óttaðist mest. Hann beitti reynsl- unni, sem hann hafði fengið á svo mörgum erfiðum árum, til að til- einka þessa viku sögunni, og beindi huganum f staðinn að komandi dögum. Það var sunnudagur. Hann var f snjáðum, grænum sportjakka, grófum buxum, sem hann vissi að voru vfðari en tfzkan leyfði, og klunnalegum golfskóm. Meðan lyft- an rann Ijúflega upp á við, óx með honum Ijúf tilhlökkun. Hann hlakk- aði til þessa dags með ákafri for- vitni og ofurlitlum kvíða, þvf í dag myndi hann verða vitni að því, sem hann hafði oft hugsað um, en aldr- ei séð. — Komdu og heimsæktu mig eft- ir morgunverð næsta sunnudag, hafði Modesty Blaise sagt við hann, þegar þau gengu saman úr stúku hins unga Farehams á Ascot, niður að hestagerðinu. — Willie Garvin verður þar, og við ökum niður að River Side golf- velli og leikum þar níu holur, og sfðan yfir að The Threadmill og fá- um okkur þar í svanginn. The Threadmill var kráin, sem Willie Garvin rak. Hann hafði keypt hana til þess að hafa eitthvað að hugsa um, en hún hafði reynzt lé- legt akkeri. Eftir því, sem Tarrant vissi bezt, hafði Willie Garvin eytt síðustu þrem mánuðum í að fljúga með loftmyndatökumenn fyrir jarð- efnanámufirma f Kanada. Tarrant hafði glaðzt yfir boð- inu, og þá, þegar hann þakkaði henni, bætti Modesty Blaise við: — Willie Garvin býður þér svo út að veiða um eftirmiðdaginn, hann á hluta af veiðivatni þar. Og á eftir ætlum við að æfa okkur í bakhús- inu hjá honum, ef þig langar til að fylgjast með þvf. Hún var í kjól úr ísbláu, ekta silki, með dökkan, bleikan chiffon hatt, ákaflega kvenleg og í fullu samræmi við glæsilega klæddan manngrúann á Ascot. Hann virti hana fyrir sér, meðan hún horfði á hestana ( gerðinu og svaraði einlæglega: — Ég er ekki viss um, að ég komi til með að hafa gam- an af því, Modesty. — En ég myndi alls ekki vilja missa af því. Hann vissi um bakhús Willies hjá The Threadmill. Það var mjög löng, lág bygging úr tfgulsteini, glugga- laus og hljóðheld. Tarrant hafði notið þeirra forréttinda að koma inn f þessa ógnvekjandi byggingu einu sinni, og hann vissi, að hann var eini maðurinn, sem hafði ver- ið sýndur sá sómi. ( dag myndi hann sjá nokkuð, sem væri enn meira ógnvekjandi. Lyftan hægði á sér og dyrnar opnuðust inn í stóra forstofuna með keramik gólfflísunum. Hinum meg- in við hana var fíngert handrið úr smíðajárni og þrjú þrep niður f stóru setustofuna, með gluggunum, sem náðu frá gólfi til lofts. Tarrant litaðist ánægjulega um. Það er alltaf gaman að koma inn f þetta herbergi, þar sem svo marg- víslegum tízkueinkennum f innrétt- ingu og húsgagnabúnaði var rað- að saman af svo miklu samræmi. Um leið og hann kom niður þrep- in þrjú, kom Modesty Blaise gegn- um glerdyrnar, sem lágu út á löngu L-laga svalirnar. Svart hár hennar var greitt f hnút efst á höfðinu. Hún var f Ijósu kamelhárpilsi og poplfnsblússu, Ijósgulri og hvítri. Hún var í hæla- lágum skóm úr kexbrúnu svfns- leðri. Þegar hún kom auga á Tarrant, brosti hún glaðlega og kom á móti honum. — Sir Gerald! Ég er svo fegin að þú skyldir geta komið. — Ég er ævinlega sjálfselskufull- ur, kæra. Hann laut niður að henni og tók um hönd hennar. Hún lyfti henni ofurlítið, svo hann gæti snert hana með vörunum, og hann var yfir sig ánægður. — Er of snemmt að bjóða þér glas? Hún gekk að litia barnum f stofuhorninu og þræddi litskrúðug- ar, persneskar motturnar, sem dreift var yfir fflabeinsgular gólfflfsarn- ar. — Ofurlítið viskf með sóda, kann- ske, svaraði Tarrant. Hann langaði til að horfa á motturnar, því hon- um var fróun f því; hann langaði til að skoða nýja málverkið, sem hékk ásamt fleirum á sedrusviðar- veggjunum — það var Chagall; hann langaði til að grandskoða litlu forngripina á breiðu, fbjúgu hornhillunni, því hann vissi að hann myndi gera þar nýjar uppgötvanir; Modesty skipti mjög oft um á hill- unni. En þótt þetta allt bærðist í huga hans, horfði hann á Modesty Blaise, virti fyrir sér hendur henn- ar og nakta handleggi, þegar hún blandaði honum f glas. — Þú hefur valið þér úrvals veð- uð, sagði hún og rétti honum glas- ið. — Ég gerði mér ekki Ijóst, að utanrfkisráðuneytið hefði svona mikil áhrif. — Við fórnuðum tveimur leyni- þjónustustúlkum undir fullu tungli f gærkvöldi, sagði Tarrant og yppti öxlum. — Það virðist hafa haft meiri áhrif en sumar aðrar aðgerð- ir okkar upp á síðkastið, bætti hann þurrlega við. Hún leit snöggt á hann. — Þú ert þreyttur. Ertu viss um, að þú viljir koma með okkur í dag? — Væna mfn, sagði hann ein- læglega, — ég man ekki hvenær ég hlakkaði svona mikið til eins dags síðast. — Það þykir mér gaman að heyra. Hún brosti. — Viltu hafa mig afsakaða í fimm mfnútur. Ég var í ffnu fötunum f gærkvöldi, og ég þarf að ná af mér naglatakkinu. Auðvitað. Tarrant litaðist um í herberginu. — Þú gætir skilið mig eftir hér f nokkrar klukkustundir, og ég myndi allan tfmann vera önnum kafinn. Kemur Willie hing- að? — Willie hefur verið hér í tvo eða þrjá daga. Hann hlýtur að vera rétt að koma. Herbergið hans er til vinstri þarna frammi í gang- inum, ef þig langar til að reka á eftir honum. — Ekki langar mig til að reka á eftir honum. . . . Tarrant þagn- aði og starði. Barn kom f gegnum dyrnar, sem hann vissi að lágu inn í svefnherbergi Modesty. Þetta var ellefu eða tólf ára gömul stúlka, áleit Tarrant, grannvaxin, fremur brún á hörund með stór, dökk augu. Hún var f ermalausum, bláum kjól, með spæl, hvftum sport- sokkum og mjúkum sandalaskóm. Hárið á henni var dökkt og slétt, bundið aftur með breiðum, hvítum borða. Ávalt andlitið bjó yfir átak- anlegu sakleysi Madonnumyndar eftir Rafael. — Þetta er Lucille Brouet, sagði Modesty Blaise. Svo sneri hún sér að barninu: — Komdu inn, elskan, mig langar að kynna þig fyrir vini mfnum — og Willies. Þetta er Sir Gerald Tarrant. Lucille kom hikandi til þeirra og rétti fram mjóslegna hendi. — Kom- ið þér sælir, sagði hún feimnislega. Það var ofurlftill erlendur hljómur f enskunni hennar. Þegar Tarrat tók f framrétta höndina, hneigði hún sig ofurlftið í hnjáliðunum. — Sæl, Lucille. Tarrant varð of- urlftið vandræðalegur. Hann kunni ekki að umgangast börn og hann vissi það. Hann var alltaf annað- hvort of kumpánlegur við þau eða of strangur. Þar að auki vissi hann ekki rétt vel þessa stundina, hvað- an á hann stóð veðrið. Lucille var nokkuð nýtt fyrir hann. Hann hafði ekki hugmynd um, hvernig hún hafði komizt inn f líf Modesty Blaise eða Willie Garvins. — Lucille er í skóla f Tangier, sagði Modesty. — En hún hefur eytt hluta af leyfinu sfnu hér. Hún tók blíðlega um axlir stúlkunnar. — Hvað f ósköpunum hefur komið fyr- ir hárið á þér? — Það var sftt, Modesty. Röddin var mjúk og umkomulaus. — Ég bað Weng að klippa svolftið af þvf, en hann vildi það ekki, svo þá bað ég Willie, og hann gerði það. — En við ætluðum að láta það vaxa, svo við gætum get eitthvað við það. — Já, ég veit það, Modesty. Tarrant var huggun í því, að þetta svar gerði Modesty Blaise jafn hjálparvana og hann sjálfan. Hún hristi höfuðið og hló. — Allt f lagi. Ef þú vilt hafa það stutt, þá skal ég sjá um, að það verði klippt almennilega. Willie er ekki beinlínis snillingur með skæri. Talaðu nú stundarkorn við Sir Ger- ald, meðan ég bý mig. Tarrant andvarpaði með sjálfum sér, þegar hann horði á Modesty hverfa inn f svefnherbergið. Erfið- ismunasamtal við Lucille var honum ekkert tilhlökkunarefni. Það var ekki barninu að kenna, heldur vegna hans eigin getuleysis. — Hér — finnst þér ekki gaman að vera laus úr skólanum um hrfð? spurði hann og reyndi að láta það hljóma glaðlega og kæruleysislega. - Það er ákaflega gott að vera hér, svaraði Lucille kurteislega. — En það er líka gott að vera f skól- anum. Tarrant ætlaði að segja eitthvað fleira, en hikaði. Næstum hver spurning, sem honum datt í hug, var of nærgöngul. Modesty hafði ekki sagt honum hvert barnið væri, né hvernig þeirra sambandi væri varið. Það væri ókurteisi að spyrja. — Lucille . . . sagði hann og horfði hugsi upp f loftið. — Það finnst mér fallegt nafn. — Þakka yður fyrir. Má ekki bjóða yður sæti? Hún benti stirð- lega með öðrum mjóa handleggn- um. — Hér, jú, takk, kannske. Tarr- ant gekk að sófanum með svarta loðfeldinum. — Og — hér — hvað ætiar þú nú að gera f dag? — Weng ætlar að fara með mig f dýragarðinn og við ætlum að borða þar, sagði hún með sinni mjúku, þjálfuðu röddu. — Hér, dýragarðinn. Drottinn minn, hvað það er tangt sfðan ég Framhald f næsta blaði. 18 VIKAN 32-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.