Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 40
!!S*ICH motawfi
að andlátinu, en fékkst með engu
móti til að ljóstra upp um bana-
menn sína. Moran svaraði spurn-
ingum lögreglunnar engu öðru
en því, að hann væri með eitt-
hvert hið versta kvef, sem hann
hefði fengið. A1 Capone var yfir-
heyrður í Florida, en bar það
blákalt fram, að sér væri alls
ókunnugt um þetta mál.
Engum af þeim sem við þetta
voru riðnir, var nokkru sinni
stefnt fyrir rétt, — en samt var
því líkast, sem dulin réttvísi
hefið tekið málið í sínar hend-
ur, því 22 mánuðum síðar voru
morðingjarnir allir dauðir, og
höfðu allir verið myrtir.
SAGNFRÆÐILEG KVIKMYND.
Gerð hefur verið kvikmynd af
þessum atburðum. Það var gert
hjá „20th Century Fox“, og kem-
ur kvikmynd þessi fyrir almenn-
ingssjónir í sumar. Hér er ekki
verið að fegra málstað A1 Cap-
ones og bófa hans, öðru nær,
sýnt er, svo ekki verður um
villzt, hve andstyggilegt athæfi
þeirra var frá rótum. En ekki
mun hjartveilum hent að sjá
þessa mynd.
Eftir þetta fór ört að halla
undan fæti fyrir A1 Capone. Mor-
an kom sér upp harðsnúnum
flokki, vel skipulögðum, og
hefndi félaga sinna grimmilega.
Þessi barátta tók tvö ár, en eft-
ir það tókst að fá A1 Capone
dæmdan fyrir skattsvik, og ýmis-
legt ólöglegt brask. Hann var
dæmdur í fangelsi til 11 ára, og
til að greiða 105.000 dollara í
bætur. í fangelsinu hitti hann
fyrir nokkra menn sem dæmdir
höfðu verið í lífstíðarfangelsi, af
hans völdum, og fékk hann hjá
þeim heldur kaldar kveðjur. En
hann lifði samt þá meðferð af,
og sjö árum síðar en hann var
dæmdur, kom það í ljós að hann
hafði krabbamein, og var hann
þá látinn laus. Hann dó í bústað
sínum á Miami án þess að kom-
ast til heilsu aftur.
★
Dollarabarnið
Framhald af bls. 13.
— Þau bjargast einhvernveg-
inn, það geturðu verið viss um.
Ah Ping kom aftur og læknirinn
sneri sér að morgunverðinum.
Seinna, þennan sama morgun
var Mary kölluð að bakdyrunum.
Ah Ping tilkynnti: — Gjöra svo
vel, frú missie, stúlkurnar eru
við bakdyrnar og vilja tala við
þig. Þetta var ekkert ný bóla,
það var oft komið með ýmis
vandamál til læknisbústaðarins.
Ah Ping stóð við hlið hennar,
meðan hún heilsaði þrem fljóta-
bátakonum, sem stóðu þar og
biðu hennar. Ah Ping fann mikið
til virðuleika síns, og fannst hann
alveg ómissandi við slíkar um-
ræður.
Ein kvennanna hélt á nýfæddu
barni í örmum sér, ruggaði því
fram og aftur af miklum ákafa,
og andlitið ljómaði af ánægju.
Hinar konurnar töluðu saman
með miklum hávaða yfir höfuð
hennar, og önnur þeirra veifaði
pela, en hin dós með mjólkur-
dufti. Ah Ping gekk fram og
öskraði: — Viljið þið þegja strax,
frú missie er hér! Hann var
hreykinn af enskukunnáttu sinni,
sérstaklega þegar hann gat beytt
henni við landsmenn sína. Kon-
urnar þögnuðu á stundinni.
Mary gekk til þeirrar sem hélt
á barninu. — Hvað get ég gert
fyrir þig? spurði hún.
— Þessi ekki geta talað, missie,
þessi ekkert mál, skaut Ah Ping
inn, og þá sá Mary að þetta var
sú mállausa, það var Mui. Mary
hafði oft látið hana ferja sig yfir
höfnina, þegar hún fór á mark-
aðinn. Hún vissi að Mui var ein,
að hún átti engin börn og að
maðurinn hennar var dáinn.
— Jæja, hver á þetta bam?
spurði hún.
Ah Ping skipti yfir í mállýzku,
sem Mary ekki skildi, til að kom-
ast til botns í þessu, og að lokum
sneri hann sér að Mary og sagði:
— Missie, Mui keypti barnið. Hún
borgaði einn dollar fyrir það.
Nú þarf barnið að fá mat, þú
sýna hvernig gefa því mat.
— Andartak, Ah Ping; fólk
kaupir ekki börn. Hvaða konu
tilheyrir þetta barn? Hún varð
að tala pidgin ensku, þegar mik-
ið lá á, því að annars fóru allar
viðræður í flækju.
— Þetta barn tilheyra Mui, hún
borga .... sagði Ah Ping ákveð-
inn, en barnið sjálft tók nú af
skarið og rak upp hljóð, til að
gefa til kynna hungur sitt, og
það linnti ekki á hljóðunum.
— Komið þá með það inn í
eldhús og við blöndum á pel-
ann, sagði Mary. Um leið og þau
komu inn í eldhúsið, hætti barn-
ið að gráta. Mary sýndi nú Mui
nákvæmlega hvernig hún átti að
blanda mjólkina, og hvernig hún
átti að prófa hitann á pelanum,
áður en hún gæfi barninu að
drekka, svo sneri hún sér að Ah
Ping. Hvað heitir mamman, sem
þetta barn tilheyrir?
Ah Ping ranghvolfdi augunum,
góndi upp í loftið, yppti öxlum,
svo sneri hann sér að annari kon-
unni, sem var með Mui, og talaði
Oðlist
fegurri
litarhátt
með
Avon
MILDU
RAKAKREMI
Létt, nærandi krem með
vökvaefnum og mýkjandi
olíum til að nota að kvöldi
eða undir lit.
Nýr, mildur, rakur líkamsá-
burður. Og til hirðu líkams-
hörundsins mjúkrennandi
áburður til að mýkja og auka vellíðan.
Avon
NEWYORK • LONDON • PARIS
SNYRTIVÖRUR
EX-32-66-EA
Heildsölubirgðir: J. P. Guðjónsson hf., Skúlagötu 26, Reykjavík.
40 VIKAN
32. tbl.