Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 6
ur meira og minna haldnar svona
vonlausri ást úr fjarlægð. Þær
iðkuðu þetta eins og hvert ann-
að sport. Ætli þú verðir ekki að
gera slíkt hið sama?
LAGIÐ LARA.
Kæri Póstur!
Gelur þú frætt mig á hvað lag-
ið „Laura“ úr Dr. Zivago“ er
gamalt? Hvort það er samið fyr-
ir myndina eða áður.
Inga.
Ekki hefur okkur tekizt að afla
okkur óyggjandi upplýsinga um
aldi^r lagsins (það mun réttu
nafni heita Lara), en langlíkleg-
ast þykir okkur að það sé samið
af tilefni myndarinnar.
TATTÓVERAÐUR Á MAGANUM.
Pósturinn, Vikunni.
Ég er tuttugu og fimm ára
gamall.
Ég var ungur í siglingum og
hef nýlega gerst landkrabbi,
vegna þess að ég ætla að fara
að giftast.
í Marseille lét ég eitt sinn
tattóvera mig. Myndin er af
nöktum kvenmanni og var tattó-
veruð á magann á mér (að vísu
var ég þá ekki allsgáður).
En nú er ég í klípu, því að
konuefnið mitt veit þetta ekki.
Hvað ætli hún segi, þegar hún
kemst að þessu? Myndin er væg-
ast sagt mjög klúr.
Hvað get ég gert?
Ráddu mér nú heilt, Póstur
sæll, þú sérð að ég er í hræði-
legri klípu.
Kisi.
Því er nú fjandans ver, Kisi
minn, að þú verður að sitja uppi
með þinn klúra kvenmann, hvort
sem þér líkar betur eða miður,
því að tattóveringu er ekki nokk-
ur leið að ná af sér, að því er
læknavísindin herma. Það er því
ekki um annað að ræða fyrir þig,
en að segja konuefninu eins pent
frá þessu og þér er framast unnt,
of afhjúpa svo bambann. (Raun-
ar stórfurðar okkur á því að hún
skuli ekki hafa uppgötvað þetta
leyndarmál þitt fyrir löngu, þeg-
ar núverandi samfélagshættir eru
hafðir í huga; þið eruð jú komin
að giftingu). Sé stúlkan skyn-
söm og raunsæ, ætti hún að geta
fyrirgefið þér þetta, allir hafa
sína breyskleika og kringum-
stæðumar iráða oft meira um
hegðun manna en þeir eiga gott
með að vara sig á. Sem sagt, sé
þér alvara með að halda áfram
með kvenmanninn, sem okkur
ÁST í MEINUM.
Kæri póstur!
Ég ætla nú að leita ráða hjá
þér um mál, sem ég get ekki
leyst sjálf af hendi, og býst við,
að þú eigir heldur ekki mjög
gott með það.
Þannig er mál með vexti, að
ég er ástfangin af trúlofuðum
manni, og ég er búin að vera
það síðan ég sjá hann fyrst, en
það eru komin rúm tvö ár síð-
an. Ég sá hann fyrst á balli, og
frá þeirri stundu er ég sá hann
fyrst, hef ég ekki getað gleymt
honum og hef þess vegna ailtaf
reynt að sjá hann eins oft og ég
hef getað. Ég hef aldrei getað
kynnzt honum persónulega. Hann
er fimm árum etdri en ég. Þegar
ég sá hann fyrst var ég nærri
því 16 ára, en nú er ég rúmlega
18 ára. Síðastliðna tvo vetur hef
ég verið í skóla, þar sem ég hef
ekki getað séð hann! Ég hef oft
reynt að gleyma honum, en það
hefur ekki tekizt. Það mun því
ekkert þýða fyrir þig að segja
„reyndu að gleyma honurn". —
Mig hefur oft dreymt hann á
næturnar og hann fer aidrei úr
huga mér. Ég heyrði í vor, að
hann væri trúlofaður. En það
virðist vera sama. Ég get aldrei
gleymt honum. Nú ætla ég að
leggja fyrir þig þessa þungu
spurningu: Hvað get ég gert? —
Ég held, að þetta sé ekki nein
venjuleg unglingaást, sem dofn-
ar eftir nokkra mánuði. Það er
kominn það langur tíma. Ég hef
verið með nokkrum strákum síð-
an, en aldrei verið neitt hrifin
af þeim, og ég veit að ég mun
aldrei verða hrifin af öðrum
manni. Nú ætla ég að biðja þig
að gefa mér eitthvert ráð við
þessu, ef þú getur.
Mið fyrirfram þökk fyrir
svarið.
Ein sem þarfnast ráða
á stundinni.
Ja, það er sveimér ekki lítil
ást, sem þarna er á ferðinni hjá
þér. En þar sem þú þekkir ekki
manninn persónulega, er hætt
við, að þú yrðir fyrir vonbrigð-
um, ef þú skyldir fá tækifæri
til þess að kynnast honum. Svona
ást í fjarlægð er afar óraunveru-
leg, — eins og hver önnur blekk-
ing eða óskadraumur. En hvað
um það: Kannski er ástin það
yfirleitt, þegar allt kemur til
alls. Við getum því miður ekk-
ert ráðlagt þér. Hins vegar get-
um við huggað þig með því, að
hér fyrr á árum, þegar róman-
tíkin var og hét, voru allar stúlk-
1. Tvöfalt hemlakerfi.
2. Stýrisstöng með sérstöku
öryggi, þannig að hún fer í
sundur við harðan árekst-
ur.
3. Fullkomið hita- og loft-
ræstikerfi. Hitablástur
hreinsar einnig afturrúður.
4. Hurðir opnast 80°.
5. 9,25 m snúnings þvermál.
6. Sérlega þægileg sæti.
Framstólar með mörgum
stillingum. „
(voi.vo'
VOLVO 144
- NÝTT ÚTLIT - AUKIN ÞÆGINDI -
- MEIRA ÖRYGGI -
hefur verið valinn sem bíll ársins af „Spiegel" í Hollandi og
„Teknikens Várld“ í Svíþjóð fyrir að vera öruggur, sterk-
byggður og nýtízkulegur í útliti.
6 VIKAN 32- tbl-