Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 28
I
VIKAN lEIMSÍEKIR
eXpO’67
er Konkordíubrúin yfir til eyjar helgrar Hel-
enu. Hún er um 700 metra löng og nær 30
metra breiS. Og síðast en ekki sízt ber að
nefna menningarmiðstöðina Place des Arts,
með þremur sýningarsölum — hvern öðrum
glæsilegri. Sá stærsti tekur 3000 manns í
sæti. Undir þessum mannvirkjum er svo bíla-
geymsla, sem tekur 850 bíla. Þú getur kom-
ið þarna akandi á bílnum þínum og afhent
hann starfsmanni bílageymslunnar við ein-
hverja lyftuna líkt og hattinn þinn í fata-
geymslu og farið síðan beint upp. Bíllinn
verður færður þér í hendur, þegar þú kemur
niður aftur. Place des Arts er inni í borginni
við aðal verzlunar- og næturklúbbagötuna,
sem kennd er við heilaga Katrínu. Öll þessi
mannvirki koma einnig í góðar þarfir að
heimssýningunni lokinni, Place des Arts er
til dæmis alþjóðleg menningarmiðstöð.
Það gefur auga leið, að 26 kílómetra neðan-
jarðarbraut, Metro, eins og þeir kalla hana,
nær ákaflega takmarkað um borg, sem telur
hátt í þrjár milljónir íbúa, eins og Montreal.
Enda er Metróinn aðeins samgöngutæki fyrir
miðborgina sjálfa og tengiliður við Expo,
meðan hún stendur. Hins vegar er strætis-
vagnakerfið samtvinnað metrónum og gild-
ir einn miði (25 kanadasent, jafngildandi 10
28 VIKAN 32- tbL