Vikan


Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 31

Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 31
K1IEIKJARAR Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrvai en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. EinkaumboS: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavík. STJÖRNUSPA - * Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl); F.iármunir þinir nýtast einstaklega vel. Þú færð góðar fréttir sem vekja hjá þér endurnýjaðan kraft. Útlitið er yfirleitt gott og þú skalt láta hendur standa fram úr ermum. Nautsmerkið (21. apríl — 21. mai); Hafðu fremur hægt um þig, en leggðu áherzlu á störf þín. Ákvarðanir sem þú tekur munu standast vel. Hafðu samráð við fjölskyldu þína, ekki vera einstregingslegur í hugsun. Heillatala er fjórir. I Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní); Vertu vakandi fyrir viðskiptamálum þínum, mörg tækifæri ættu að gefast í því sambandi. Þú verður fyrir bagalegum töfum og verður að hætta við fyrir- ætlanir þínar. Þú starfar lítið að félagsmálum. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú færð fréttir af ættingjum þinum sem koma þér til að undrast, en láttu ekki hafa neinar skoðanir eftir þér þar að lútandi. Láttu ekki bera mikið á þér, starfaðu að málum þínum í ró. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú hefur forystu í fjölskyldunni í ákveðnu máli, en þú verður að taka fullt tillit til álits annarra. Þú kynnist mönnum sem gætu orðið þér að miklu liði, ef þú grípur tækifærin. Heilladagur er laugardagur. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú ert bjartsýnn og einkar heppinn við það sem þú hefur fyrir stafni. Margar hendur verða á lofti til að aðstoða þig, ef þú aðeins gefur það í skyn. Reyndu að nota tímann á kvöldin i einkaþarfir. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlf): Leggðu þig fram og reyndu að tileinka þér sem flest af því sem þú sérð í kringum þig. Nokkrar tafir verða á afgreiðslu máls sem þú hefur mikinn áhuga á. Vertu varkár í viðskiptum við hitt kynið. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Sjáðu svo um að þér gefist tími til að fara vel yfir áætlanir þínar og gera þér ljósa grein fyrir stöðu þinni, áður en þú hefst handa. Það er svo að sjá sem þú komir ár þinni kænlega fyrir borð. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst); Vertu vel vakandi gegn tækifærum er varða verzlun og viðskipti. Þú skreppur í ferðalag sem veitir þér mikla ánægju. Þú færð fréttir um æskilega fram- vindu mála. Þú færð greidda gamla skuld. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Byrjaðu daginn snemma, þá mun þér verða mikið úr verki. Það kemur sér vel að þú verðir snemma búinn með dagsverkið og getir sinnt öðru. Fjölskyld- an þarfnast krafta þinna meir en endranær. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september); Þú færð gott tækifæri, annað hvort fyrir þig sjálfan persónulega eða fjölskyldu þína. Notaðu kvöldin til að sinna smærri verkefnum, sem þú hefur látið sitja á hakanum. Helllalitur er blár. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Taktu ekki mörg verkefni að þér í einu, leggðu á- herzlu á að ljúka einu áður en þú byrjar annað. Hagaðu störfum þínum svo að þú eigir frí nokkur kvöld og getlr létt þér upp. 32. tbi. VIICAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.