Vikan


Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 7

Vikan - 10.08.1967, Blaðsíða 7
pAsidrinn skilst að sé, þá þýðir ekki ann- að en að segja henni allt af létta. Setji hún smásynd þína (ef synd skyldi kalla) eitthvað að ráði fyrir sig', er persónuleiki hennar trúlega ekki svo mikilsháttar, sem þú hefur til þessa álitið. HANN VILL HAFA SYSTRASKIPTI. Kæra Vika. Ég er 15 ára stelpa og systir mín er 16. Hún hefur verið með strák, sem er 17. Við fórum í partý um daginn, systir mín og ég og hann var þar líka. En í stað þess að vera með systur minni, eltist hann við mig allt kvöldið. Ég gaf hon- um auðvitað í skyn (mjög greini- lega m.a.s.), að ég vildi ekkert með hann hafa. Hann fattaði það auðvitað ekki. Nú, síðan þá hef- ur hann sífellt verið að hringja í mig og bjóða mér út o.s. frv. Ég get með engu móti losnað við ‘ann og systir er alveg niður- brotin. Hvað get ég gert til að losna við ‘ann og koma þeim saman aftur?????? Með fyrirfram þökk, Dúdú. P.S. Hvernig er skriftin? Takk fyrir allt gott. Þú getfur ekkolrtt gert nema haldið áfram að láta hann vita alveg ákveðið, að það þýði ekk- ert fyrir hann að vera að reyna við þig, fyrst þú vilt ekkert með hann hafa. Kannski hættir hann þá þessu og snýr sér að systur þinni aftur. Raunar finnst okkur þessi saga benda til þess, að pilt- urinn sé svo laus í reipunum og hæpið sé fyrir systur þína eða nokkra aðra að leggja mikið á sig til að halda tryggð við hann. Á þessum aldri dvína sorgimar furðu fljótt, sem betur fer, þótt þær geti auðvitað verið nógu sár- ar meðan á þeim stendur. Og þó að þessi strákur bregðist, finnur systir þín áreiðanlega fljótlega annan, sem henni líkar eins vel -— eða betur — við. Skriftin er dálítið viðvanings- leg, en snotur. SVAR TIL STELLU. Það er enginn séns á því að þið getið gift ykkur, meðan þið eruð svona ung, nema því að- eins að þið fáið undanþágu hjá forsetanum, en slík undanþága fæst ekki nema til komi leyfi foreldra beggja aðila. Og það lít- ur ekki út fyrir að það fáist í bráð, fyrst móðir þín lætur svona. Okkur finnst þetta óskaplega ó- sanngjamt og heimskulegt af henni, að minnsta kosti ef dreng- urinn er ekki verri en hann er, af lýsingu þinni á honum að dæma. Það er mikið til í því sem þú segir, að fyrst þið hafið verið saman í þrjú ár, þá sé varla hægt að kalla þetta neitt venjulegt smá- skot, þótt hinu megi að vísu lialda fram með nokkrum rétti, að þið séuð full ung til að leggja út í lífið fyrir alvöru, það er að segja að fara að eignast heimili og börn. Okkur finnst því engin sér- stök ástæða fyrir ykkur að leggja neina ofuráherzlu að komast í hjónabandið strax;, það kemur hvort er að að því von bráðar, að þið getið það hvað sem hver segir, ef þið verðið þá sama sinn- is og þið eruð nú. En auðvitað eigið þið að fá frið til að vera saman þangað til, og það nær engri átt að mömmu þinni hald- ist uppi að banna ykkur það. Og það er „andstyggilega neyðó“, eins og þú segir, að þurfa að beita plati til að hitta strákinn þinn og jafnvel til þess eins að fá að tala við hann. En sittu við þinn keip. Ef pabbi þinn er á þínu bandi, eins og þú heldur, er ekki alveg óhugsandi að hann geti komið vitinu fyrir mömmu þína. Kannski á mamma þín líka vinkonur, sem þú gætir leitað til og beðið þær að hafa áhrif á hana. En umfram allt, láttu ekki undan. Hversvegna táningahjónabönd eru ekki leyfð hér á landi vitum við ekki, en hætt er við að þau myndu gefast misjafnlega — jafnvel miðað við önnur hjóna- bönd — þótt á því eins og öðru kynnu allíjaf að verða undan- tekningar. ÞAU VAXA AFTUR. Kæra Vika. Við erum hérna tvær vinkon- ur, sem höfum sérstaklega mik- inn áhuga á að mála á okkur augnahárin. Við höfum ekki haft vit á að þvo þau á hverju kvöldi heldur málum við yfir þau aftur og aftur, án þess að þvo þau á milli. Loksins þegar okkur datt í hug að fara að þvo þau þá duttu þau bara hvert á fætur öðru. Svo okkur langar nú að spyrja þig kæra Vika, hvort það koma ekki ný augnahár eftir þau sem dottið hafa. Tvær forvitnar. Þau spretta áftur, verið þið vissar. En framvegis skuluð þið þvo þau á kvöldin. Að láta það hjá líða er nefnilega sóðaskapur. JÁ. VHIEHM SAMMALA 91 Hún er bceði fallegri og fullkovrmari“ CENTRIFUGAL WASH M0DEL620 EIHIIM HNAPPI veljið þér þvottakerfið, og C.W. 620 (?) ÞVÆR, (?) HITAR, © SÝÐUR, (?) MARGSKOLAR, (?) ÞEYTIVINDUR ALLAN MIDII -flLL LfNI- sápa Sápuskammtar settir í strax — vélin skolar Alveg þeim sjálfkrafa niður á réttum tíma hljóður Tekur sjálf inn sérstakt skolefni ef þér óskið að nota það Tvívirk, afbragðs þeytivinding sýna þvottagang og hitastig íesti Þarf ekki að festast niður með boltum Nœlonhúðuð að utan fínslípað, Sérlega ryðfrítt stál að innan auðveld Fullkomnasta og fallegasta vélin á markaðinum SÍMI 2 4420 - SUÐURGÖTU 10 - REYKJAVÍK. Sendið undirrit. mynd af FÓNIX C.W. 620 með nánari upplýsingum, m.a. um verð og greiðsluskilmala NAFN _______________________________________ HEIAAILI ................................... TIL FÖn'lX S.f. pósthólf 1421, Reykjavík 32. tbi. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.