Vikan - 10.08.1967, Síða 29
krónum íslenzkum) einu sinni í metró og
strætó eða öfugt.
Við tökum metróinn tii Expó. Á stöðinni Ile
Sainte-Helene er okkur sagt að fara úr. Úr
förum við, eftir göngum og rennistigum, og
sjá, hér blasir við okkur mikið mannhaf og
litaskrúð, einspori (monorail, reyndar kall-
aður minirail hér) rennur í nokkurri hæð
yfir jörðu, hvarvetna er ys og tónlist úr
hátölurum, og framundan er fánaborg með
miklu mannvirki á bak við: Bandaríski sýn-
ingarskálinn.
Það er komið undir kvöld, þegar við kom-
um hér, dumbungur í lofti og hangir yfir með
rigningu. Sannarlega ekki myndaveður. Allt
fullt af fólki. Bezt að nota tímann til að lit-
ast um og átta sig á staðháttum. Við örkum
af stað og fyrr en varir erum við komnir að
fljóti heilags Lárentíusar. Og sjá, okkur á
hægri hönd rís stór bygging hvítmáluð og
gluggalaus, fallegt íshús á súlum. Á húsinu
stendur SCANDINAVIA. Við förum þangað,
heilsum upp á íslendingana sem standa fyrir
okkar hönd og annarra íslendinga í dimmum
sal strax og upp er komið og gefa upplýsing-
ar um land og þjóð. Sýningardeildir landanna
eru uppi, en á sömu hæð og upplýsingarnar
eru líka veitingastofur „miðnætursólarinnar“,
(Midnight sun restaurant), restaurant, kaffi-
tería og bar. Við förum inn á kaffiteríuna til
að fá okkur í svanginn, setjumst við borð,
kannski ofurlítið týndir í öltum þessum ólgu-
sjó manngrúa og tröllstórra ævintýrahalla. —
Það er drungalegt úti, mjög farið að skyggja,
hreytir niður dropa og dropa og hér í kaffi-
teríunni ná veggirnir ekki nema niður að
borðbrúninni og það næðir kuldalega um
Framhald á bls. 44.
Illjusin 144 Supersonic. Þetta er
líkan af hljóöhverfunni þeirra So-
vétmanna. Þetta er rennilegur fugl
og fallegur, með fellinefi. en ekki
var tilgreint hvenær hann myndi
fara á loft.
Inngangurinn í Sovétskálann. Því
verður ekki á móti mælt, að ham-
arinn og sigðin geta verið falleg
áhöld og gott merki.
<y
L cjj,
Séð yfir hluta af
Sovétskálanum.
Þar blasir við
meðal annars ný-
tízkuleg mynd af
Lenin sáluga.
Líkan af rúss-
neskri, atómknú-
inni stöð til
vinnslu fersk-
vatns úr sjó.
Framar á mynd-
inni er svo líkan
af íbúðarhverfi.
Á vinstri blað-
síðunni sér yfir
lænuna milli Ile
St.-Helene og Ile
Notre-Dame. Það
er Sovétskálinn,
sem hæst ber
hins vegar. Mynd-
in er tekin úr
Skandinavíu-
skálanum.
Fiskeldisker í
Sovétskálanum,
líkan af kjarn-
orkuknúnum
kafbáti og annað
tilheyrandi útvegi
og siglingum í
Sovét.