Vikan


Vikan - 06.06.1968, Blaðsíða 32

Vikan - 06.06.1968, Blaðsíða 32
Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. EinkaumboS: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavik. STJÖRNUSPÁ ■ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Á einhvern hátt rýmkast hagur þinn. Viss persóna sem þú hefur ekki haft mikil samskipti við sýnir þér mikla vinsemd. Þú verður að yfirstíga smá örðugleika á ferðalagi. i Vogarmerkið (24. september — 23. október) Áhyggjur þínar eru meiri en ástæðurnar fyrir þeim. Þú verður mjög heppinn í öUum framkvæmdum. !• Láttu til skarar skríða í húsnæðismálum. Haltu þig að gömlu félögunum, þeir eru tryggastir. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Ný kynni við yfirmenn þína gefa þér meiri mögu- leika en áður til að ná marki þínu. Reyndu að kynn- ast þeim utan vinnutíma, ef nokkur tök eru á. Þú verður að sýna mikla þolinmæði á heimilinu. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Vinur þinn verður fyrir happi og munuð þið halda það hátíðlegt á eftirminnilegan hátt. Vertu ekki feimin við að gera að gamni þínu. Notaðu frístund- irnar til útiveru. Tvíburamerkið (22. ma( — 21. júní); Vandamál þitt er þannig vaxið að þú verður einn að glíma við það, en þú munt áreiðanlega vaxa af þeirri raun. 1 vikulokin eru tækifæri fyrir ástfangna til að tjá sig. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Málefni sem lengi hefur angrað þig kemst á veru- legan skrið vegna atheina kunningja þíns. Ættingi þinn þiður þig um greiða sem reynist mjög tíma- frekur. Ein persóna veitir þér óþægilega athygli. Á Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú hefur verið sakaður um kæruleysi og ættirðu við fyrsta tækifæri að hrista það orð af þér. Þú kemur breytingum til leiðar á vinnustað, til hagsbóta fyrir vinnufélagana. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Brask sem þú hefur lengi átt í fær nú sanngjarnan endi og muntu anda miklu léttar. Þú hefur erfitt verk með höndum, gættu þess að fagna sigrinum ekki of snemma, það eru ennþá veikir hiekkir. W Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú ert ákveðinn i að láta til skarar skríða í ákveðnu máli. Bezti tíminn til framkvæmda er á mánudag og þriðjudag. Vertu spar á kraftana, þar til á loka- sprettinum. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Náinn vinur þinn hefur orðið fyrir óláni og skaltu ekki láta þitt eftir liggja að létta undir með honum. Þú ferð á samkomustað þar sem þú verður vitni að atburði, sem veldur þér heilabrotum. te* •*wmr Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Breytingar á fjárhag þínum valda þér nokkrum áhyggjum og um leið undrun. Þú fréttir um mögu- leika sem gætu orðið þér til mikillar hjálpar, en þú ert mjög ragur. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Hugur þinn snýst um farartæki sem freistar þin mikið. Þú færð að heyra hól um sjálfan þig og ert hreykinn undir niðri. Þú færð óvænta gjöf og góðar fréttir. Heillalitur blár.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.