Vikan - 06.06.1968, Blaðsíða 17
f---------------------------------------------------------A
Brezka hljómsveitin The Scaffold, sem hlotið hefur miklar vinsældir
fyrir lögin „Thank you very mueh" og „Do you remember" var nýlega
á ferð í Svíþjóð og lék þá m.a. á skemmtistaðnum Domino í Stokkhólmi
— þeim sama stað og Hljómar léku á í Sviþjóðarferðinni i vetur. Skemmst
er frá því að segja, að Scaffold hlutu mjög dræmar undirtektir hjá
sænskum, og var ástæðan einfaldlega sú, að Svíar áttu erfitt með að
skilja, hvað liðsmenn Scaffold voru að fara! Músik er ekki aðalatriðið
hjá Scaffold. Þeir halda uppi stemmingu með þvi að reita af sér brandara
en þess má geta, að tungutak þeirra er ekki sérlega auðskilið. Þeir fé-
lagarnir eru allir frá Lifrarpolli og tala að vonum þeirrar borgar mállýzku.
Þegar Scaffold fóru fyrst á kreik sungu þeir alls ekki. Þeir höfðu
raunar ekki hugmynd um, að þeir gætu sungið! Og það skipti heldur
engu máli — eða það fannst þeim a.m.k. fyrst í stað. Þeir voru bara þrír
brandarakallar, sem gátu komið fólki í gott skap. Þegar fram liðu stundir,
urðu þeir þó þeirrar skoðunar, að gott væri að skjóta inn einu og einu
lagi á stöku stað, svona til tilbreytingar fyrir áheyrendur. Og þeir settu
eitt lag inn á efnisskrána. Það hét „Today is Monday", og gerði það
mikla lukku. Það lcorn raunar út á hljómplötu en vakti enga athygli.
Síöan sömdu þeir nokkur lög til viðbótar, þar á meðal „Thank you very
much" og það var kveðjulag þeirra, þegar þeir voru að skemmta. Það
kom líka út, á plötu og, merkilegt nokk, —segja þeir sjálfir — seldist vel.
Af þessu má sjá, að söngur er aðeins lítill og óverulegur hluti af
efnisskrá þeirra. Margir eru þeirrar skoðunar, að Scaffold sé söngtrió,
og verða undrandi, þegar kemur á daginn, að svo er ekki. Þetta er
raunar eðlilegt með því að flestir þekkja Scaffold af plötum þeirra.
Þess vegna fór sem fór í Svíþjóð.
V._____________________________________________________________________________^
Hjónakornin Sandie Shaw og Jcffrcy
Banks.
Frá
Sandie Shaw
Aðdáendur Sandie Shaw
urðu heldur en ekki undr-
andi, þegar brezkt blað
upplýsti ekki alls fyrir
löngu, að þessi vinsæla
söngkona væri orðin frú.
Jafnvel nánustu vinir og
vandamenn höfðu ekki
hugmynd um, að tíu dög-
um áður en blaðið skýrði
frá þessu, hafði hún geng-
ið að eiga Jeffrey Banks,
sem er tízkuteiknari að at-
vinnu. 6. marz sl. voru þau
gefin saman í hjónaband
með mikilli leynd í ráðhúsi
Lundúna. Svaramenn voru
tveir dyraverðir á staðn-
um!
— Það var ást við fyrstu
sýn, sögðu hjónakornin,
þegar þetta spurðist. Þau
kynntust fyrir fyrir nokkr-
um mánuðum. Sandie hef-
ur fengizt við að teikna
tízkuklæðnað, og Jeffrey,
sem rekur tízkufyrirtæki,
bað hana að teikna föt
fyrir fyrirtæki sitt, Upp
frá því urðu þau mestu
mátar en fæsta grunaði, að
rómantík væri í spilinu.
Sandie segir, að hún
muni eftir sem áður halda
áfram að syngja, þótt henni
finnist súrt í broti að vera
langtímum fjarri bónda
sínum. Hún er tíðum á
hljómleikaferðum út og
suður eins og títt er um
vinsæla og eftirsótta
skemmtikrafta.
Sandie í klæðnaði sem hún hefur sjálf