Vikan


Vikan - 06.06.1968, Blaðsíða 28

Vikan - 06.06.1968, Blaðsíða 28
LILDU LiluU LILUU LILJU Liljubindi eru betri Fást í næstu búð. Fjarlægið nagla- bðndin á auðveldan hátt Hinn sjálffyllti Cutiþen gefur níýkj- andi lanolínblandaðan snyrtilög, einn dropa í einu, sem mýkir og eyðir óprýðandi naglaböndum. Cutipen er eins og fallegur, óbrjótandi sjálfblekungur sérstaklega gerðúr lil snyrtingar. Hinn sérstæði oddur hans snyrtir og lagfærir naglaböndin syo að neglur yðar njóti sín. Engra pinna eða bómullar er þörf. Cutipen er algerlega þéttur, svo að geyma má hann í handtösku. Cufáp&Hs fæst 1 ölium snyrtivöruverzlunum. Handbærar áfyllingar. Fýrir stökkar ncglur biðjið um Nutrinail, vítamínblandaðan naglaáburð, sem s'eldur er í pennum, jafn handhæg- um í noktun og' Cutipen. Hvað ertu að hugsa Framhald af bls. 13. Hann sat þögull og horfði á hana meðan hún tók til ost og ávexti. Augu hennar skiptu litum, frá gráu yfir f grænt, eins og stein- ar í fjallalæk, þegar hún horfði á hann. — Hvað ertu að hugsa? spurði hún. Hann hafði verið að hugsa um að hún hefði komið með nýja teg- und af osti, en hann svaraði, eig- inlega hálf vélrænt: — Um það hvað þú ert falleg. Daginn eftir hringdi Rut til skrif- stofunnar og spurði símastúlkuna hvort það væri nokkur Birgit Hell- man starfandi við fyrirtækið. — Það hlýtur að vera fröken Hellman í útflutningsdeildinni, sagði stúlkan og gaf henni sam- band, áður en hún gat komið í veg fyrir það. — Fröken Hellman, sagði lág, þýð og svolítið hás rödd, einmitt sú rödd sem átti við konur af þessu tagi. Rut gretti sig og lagði sfm- ann á. Þetta kvöld lagði hún á borð við blómagluggann, og setti skál með blómstrandi hyacintum á mitt borðið. Ilmur þeirra var svo sterk- ur að hann fyllti stofuna. Það snjó- aði fyrir utan og snjóflygsurnar festust á rúðunum. — Mér fannst upplagt að borða hér í kvöld. Hér er svo skemmti- lega notalegt í svona veðri. Svo er ekki heldur sjónvarpið til að trufla okkur. Hann starði á hana, og allt í einu fannst honum sem hann væri að kafna, honum fannst sem vafn- ingsiurtirnar hennar væru að snú- ast um hálsinn á sér. Þess utan var líka þáttur í sjón- varpinu. sem hann hafði mikinn áhuga á. Hún gat varla verið af- brýðisöm út í sjónvarpið? Hún var í nýjum kjól, silfurglitr- andi kokkteilkjól. Furðulegt uppá- tæki, hugsaði hann, að hafa svona mikið við klæðnaðinn á veniulegu kvöldi! Auðvitað voru þær konur leiðinlegar, sem ekkert hirtu um út- lit sitt og iögðu enga rækt við klæðnaðinn, nema ef þær ætluðu eitthvað út. En Rut klæddi sig upp á hverju kvöldi, aðeins fyrir hann einan. Ja, það mátti segja að hann var heppinn með konuna. — Hvað ertu að hugsa? sagði hún eftir smástund. Hann var að skera kjötið sitt, eða að revna að borða það, hissa á því með sjálfum sér að hann hafði enga matarlyst, þótt matur- inn væri mjög girnilegur. — Fa er að hugsa um hvað þessi kjóll fer þér vel, svaraði hann. Morgunloftið var milt, snjórinn hafði bráðnað mikið um nóttina. Hún var í rauðri kápu, með svart- an hatt úr minkaskinni og í svört- um kuldaskóm. Grönn, glæsileg og spennt eins og stálfjöður, gekk hún til húsvarðarins f anddyrinu og spurði eftir fröken Hellman. — Á áttundu hæð, herbergi núm- er 811, sagði hann. Nokkrum mínútum síðar stóð hún á löngum gangi og horfði á nafn- spjaldið á hurð númer 811: B. Hell- man, einkaritari, stóð á spjaldinu. Hún barði snöggt á hurðina og gekk inn. Fröken Hellman starði á hana, gat ekki verið eldri en tuttugu og fimm ára, Ijóshærð og lagleg, en ósköp venjuleg stúlka. Hún var í svartri peysu, sem náði upp f háls, og utan yfir peysunni var hún í stórköflóttu vestispilsi, f skærum litum; alveg laus við að vera gtæsi- leg. Hún hafði ekkert fyrir því að standa upp, þegar Rut kom inn, leit aðeins upp og hélt höndunum kyrrum á leturborði ritvélarinnar. — Þér eruð fröken Hellman, er það ekki? - Jú. — Þér virðist þekkja manninn minn? — Ég? Já, það gæti verið. Hvað heitir hann? — Ég er frú Björk. Fröken Hellman breytti ekki um svip, hún var alveg róleg. — Jæja, sagði hún. — Ég er hingað komin til að tala alvarlega við yður. Þér hagið yður eins og asni, og þér ættuð að hætta því. Annað hef ég ekki að segja. Fröken Hellman starði á hana, svo fór hún að hlæja. — Jæja, svo þér komuð þess vegna. Það er mjög vingjarnlegt. — Mgðurinn minn kann illa við, — ja, hvað á að kalla það, — áhuga yðar, en hann kann ekki við að segja yður það. Hann vil! aldrei særa fólk, hann er of viðkvæmur og tillitssamur til þess. En ég held því fram að tillitsleysi geti stund- um verið gott, það getur líka ver- ið nauðsynlegt. — Já, því gæti ég trúað. Fröken Hellman hallaði sér aft- ur á bak í skrifborðsstólnum, rugg- aði sér frá einni hlið til annarrar, og hafði ekki augun af Rut. Hún hló með sjálfri sér. — Hann kærtr sig alls ekki um þessar óþverra bækur, sem þér er- uð að lána honum. Hann kann ekki við að segja yður það. — Og hvers konar bækur eru þetta? Fröken Hellman virti hana fyrir sér, frá hvirfli til ilja, lét augun hvíla um stund við mjóslegna og svolítið skakka fótleggi hennar. — Það hefur hvorugt okkar áhuga á slíkum bókum ... Hún gretti sig, þegar hún nefndi titil bókarinnar, sem hún hafði séð í skjalamöppu Kurts. — Jæja, var það hún? Ég hef nú ekki lesið hana ennþá. — Þér ættuð að hætta að hengja yður á mann, sem hefur ekki nokk- urn áhuga á yður. Það borgar sig ekki, það get ég fullvissað yður um. Hann er mjög aðlaðandi mað- ur, og þér eruð ekki sú fyrsta sem eltið hann á röndum. En þér verð- ið aðeins til athlægis. Hann er Dömusíðbuxur. Barna - unglinga og fullorðsinsstærðir Fylgizt með tízkunni SOLÍDÖ umboðs- & heildverzlun Bolholti 4 Vel klædd eru börnin í fötum frá okkur Póstsendum Ms U toGidim Laugavegi 31 Sími 12815 28 VIKAN 22-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.