Vikan


Vikan - 06.06.1968, Blaðsíða 37

Vikan - 06.06.1968, Blaðsíða 37
Carlos var rómverzk-kaþólsk- ur, svo það virtist ekki vera neitt í veginum fyrir því að þau fengju að eigast. En faðir Önnu varð áhyggju- fullur. Honum fannst prinsess- an vera of lengi á Spáni. Hann fór því í stutta heimsókn til kastalans í Toledo, til þess að hitta föður Carlosar, Alfonso af Bourbon. Þessi fundur þeirra varð afdrifaríkur og ekki Önnu í vil. Fyrir mörgum öldum var barátta á milli frönsku kon- ungsfjölskyldunnar og ættleggs Bourbonanna, sem kenndur er við Spán. Greifinn af París neitaði a'ð kannast við kröfu Alfonsos um titilinn „Prins hinna tveggja Sik- ileyja“. í reiði sinni sneri greif- inn aftur heim til Louvecienne og tók Önnu með sér. Hann tilkynnti opinberlega að dóttir hans, sem var 24 ára, væri of ung til að giftast. Hann hafði greinilega gleymt því að hann var aðeins tuttugu og tveggja ára, þegar hann kvæntist, og að konan hans var þá aðeins átján ára. En hin tuttugu og fjögra ára Anna hafði lært það af reynsl- unni, að það borgaði sig að vera þolinmóð. Þau Carlos skrifuðust á og ákvóðu, sín á milli, að bíða í eitt ár. Hann fór til New York til að kynna sér bankastarfsemi. Þau skrifuðust á daglega, þangað til örlögin léku aftur á þau. Anna var að fletta amerísku tímariti og datt þá ofan á mynd í blaðinu, sem gerði hana alveg undrandi. Þetta var mynd af Carlosi, arm í arm með fyrirsætu, Cöleen Bennet að nafni. Anna krafðist engrar skýring- ar. Hún var niðurbrotin og, að því að henni fannst, auðmýkt, svo að hún tók saman pjönkur sínar og fór til Brazilíu, þar átti hún æskustöðvar sínar. Ennþá einu sinni var hún á flótta frá minningunum. Faðir Carlosar, Don Alfonso, dó í febrúar,' 1964. Enginn meðlim- ur frönsku konungsfjölskyldunn- ar fylgdi honum til grafar. f júní, sama ár, var gert brúð- kaup Claude, yngri systur önnu, og Amedee d‘Aosta, hertoga. Car- los, sem nú var orðinn ættar- höfðingi, var ekki viðstaddur brúðkaupið. En Anna var þar, mjög glæsi- leg, í grænum kjól. Gestirnir tóku eftir því að hún var hlédræg og þögul. Raunin var sú að hún var á barmi örvæntingarinnar. Nokkrum dögum síðar kyngdi hún stolti sínu og biturleika, og fór til Toledo, til að hitta Carlos, sem var þá kominn heim frá Ameríku. ' Það var enginn hávaði eða á- sakanir milli þeirra. Þau féllust í faðma, og strikuðu yfir fortíð- ina. Anna neitaði að hreyfa sig frá kastalanum, og var þar í nokkra mánuði. Hvernig maður skolar Kyrrstætt rafmagn ur þvottinum sínum Bætið E.-4 út í síðasta skolvatnið. Látið þvottavélina þvo þvottinn í 3 mínútur, þá drekkur það í sig þau endurbyggjandi efni, sem finnast í E.-4. (Við smáþvott eigið þér aðeins að hreyfa létt við þvottinum með hendinni). E-a er hagkvœmasl Auk hinnar vinsælu 1/1 líters flösku fæst E.-4 nú einnig í 2 Vj líters risa- flösku með handarhaldi. — Þegar þér kaupið hana, sparið þér 30%. Frá Dansk Import A/S, Köbenhavn Herlev. Innflytjandi: íslenzka Verzlunarfélagið hf., Laugavegi 23, sími 19943. Þvotturinn hefur nú verið endur- byggður. Hver einasti þráður er þakinn ótrúlega þunnri E.-4 himnu, sem er á þykkt við móle- kúl. Þegar þvotturinn er þurr, „ýta“ himnurnar hinum einstöku þráðum hvorum frá öðrum, svo þvotturinn verður gljúpur, létt- ur og svalur, eins og hann væri nýr. Rafmagnið er horfið úr nyl- on-þráðunum, vegna þess að þeir nálgast ekki hvern annan vegna hinnar þunnu E.-4 himnu, Það er auðvelt að ganga frá strauning- unni þegar þvotturinn hefur ver- ið skolaður í E.-4. 22. tu. VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.