Vikan - 06.06.1968, Blaðsíða 23
Pyrsti eiginmaður hennar var
Roger Vadim, svo sem kunnugt er.
Nú er hún gift Gunther Sachs von
Opel. Eitt barn á hún, son sem hún
átti með eiginmanni númer tvö,
Jacques Charrier. Það er ekki langt
síðan þau Gunther gengu ( hjóna-
band, en nú segja skæðar tungur,
að hún halli sér æ meir að Stephen
Boyd, en hún vinnur um þessar
mundir með honum að gerð kvik-
myndar á Spáni. Monsieur Sachs er
þar hvergi nærri.
— Ástin er það mikilvægasta í
mínu lífi, segir hún. — Ástlaus get
ég ekki verið. En ástin hefur auka-
hlutverk í lífi Gunthers. Á undan
henni koma veizlur, partý og vinir.
En ég myndi aldrei reyna að breyta
honum. Ef ég fæ ást á einhverjum,
vil ég að hann haldi sér eins og
hann var við okkar fyrstu kynni.
Gunther er glæsimenni og stúlkurn-
ar dragast að honum eins og flug-
ur að Ijósi. Það þýðir auðvitað, að
við togumst á að vissu marki. Hann
vill ekki breyta sínum lífsháttum
mín vegna, og ég ekki mínum hans
vegna.
— Þegar við erum saman, læt ég
hann ráða. Ég fer með honum í
partý og á veitingastaði. Það er
ekki beinlínis heimilislíf. Kannski
kampavín og kavíar, þegar við er-
um heima, en þvílfkt er víst ekki
kallað heimilislíf.
— Ég bý í íbúð hans í París.
Þegar hann fer, flyt ég í mína íbúð.
Þar líður mér vel, þar finn ég mig
heima. Hans íbúð er eins og hótel.
Heima hjá mér læt ég alltaf loga
( arni. Eg bað hann einu sinni að
kveikja upp í arninum heima hjá
sér, og það var eins og ég hefði
beðið hann að gefa mér tunglið í
gullumgerð. Ég held, að hann hafi
óttast, að herbergið færi á kaf (
sót og reyk.
— Heima hjá mér eru margar
bækur. Ég hef lesið þær allar.
Heima hjá honum er enn fallegra
bókasafn, allar bækurnar ( leður-
bandi. En ég varð öldungis hlessa,
þegar ég ætlaði fyrst að ná mér (
bók þar. Það var ekkert innan í
þeim. Bara kilirnir. Það er víst
hægt að fá svona í metravís. Shake-
speare og Shaw á kjölunum.
— En ég verð að njóta ástar jafnt
og þétt. Það eitt vekur mér sjálfs-
traust. Ég hef ekkert sjálfstraust
sjálf. Það verður að koma frá þeim,
sem ég umgengst. Það er hættulegt
að skilja mig efir eina. Þá halla ég
mér að öðrum. Samt hef ég aldrei
Framhald á bls. 31.
Nýlega gerðist það ( Bandaríkjun-
um, að systur tvaer frömdu sjálfs-
morð, af því að þær voru ekki nógu
líkar Brigitte Bardot að dómi pabba
þeirra, sem trúlega hefur aldrei
séð BB nema á mynd. Og þótt sæt
sé hún víst, er hún ekki svo einstæð,
að annað eins hafi ekki þekkst. Og
eins og nýlega var komizt að orði
um hana: Hún er ekki lengur litli
kettlingurinn, sem mann langar að
setja undir vangann. Nú er hún
orðin risaketta.
22.tbi. VIKAN 28