Vikan - 08.08.1968, Blaðsíða 3
r
K
VIKU BROS
. -*ty
7>ys
IÞESSARIVIKII
ORKULINDIN í KLADANJ
PÓSTURINN ......
BÍSNIS, KAMMRAT?
IILÁTURINN .....
EFTIR EYRANU....
BLÓÐBAÐ í BÍÖFRU
TÓLF BÖRN — ÖLL MEÐ KEISARASKURÐI
LANDVARNIR KOSTA MILLJÓNIR
ANGELIQUE OG SJÓRÆNINGINN .
VELKOMIN í HÁBORG POPSINS .
VIKAN OG HEIMILIÐ .........
BIs.
Bls.
Bls. 10
Bls. 14
BIs. 10
Bls. 18
Bls. 20
Bls. 21
BIs. 22
Bls. 24
Bls. 46
VÍSUR VIKUNNAR:
Hve margur oft í lífsins fari fann
að foringjanna máttar lítils gæti
og þjóðin hefur þegar valið mann
í þjóðhöfðingjans mikla tignarsæti.
Um Álftanesið löngum ljómi var
er loðna og þorskur gengu þar með ströndum
og Gunnar vildi heldur hokra þar
„en horfinn vera af fósturjarðar löndurn".
En margan leikur múgsins veldi grátt
sem mjög á háum stóli vildi tróna
og lukkan einum dillar næsta dátt
en dæmir öðrum sess við öskustóna.
SPURNINGIN ER?
Hvernig er þetta með ljóðskáldin og ættjörðina? Er ættjörðin
svo leirborin, að ekki sé hægt að yrkja um hana annað en leir?
A
FORSÍÐAN:
í þessu blaði förum við með lesendurna í ferðalag til London
ásamt tveimur reykvískum stúlkum. Fljótlegasta aðferðin til
að komast þangað er með Gullfaxa Flugfélags íslands, og það
er hann, sem við sjáum á forsíðunni ásamt flugfreyjunni, Ingi-
björgu Norðfjörð.
VIKAN — ÚTGEFANDI: IIILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaða-
rnaður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson.
Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 40.00. Áskriftarverð er 400 kr.
ársfjórðungslega, eða 750 kr. misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrir-
fram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst.
r NÆSTIf
Af öllum fjölbreyttu tölublöð-
um Vikunnar er næsta blað
líklega með þeim fjölbreytt-
ustu. Þar kveðjum við meðal
annars gömlu laugarnar í
Reykjavík og heilsum þeim
nýju; sá samanburður er að
vísu óréttlátur því gömlu laug-
arnar voru komnar mjög til
ára sinna og var lítt haldið
við eftir að hilla tók undir
þær nýju han^an við götuna.
En margir < 1 góðar minn-
ingar úr gömlu laugunum og
aðsóknin al nýju laugunum
hefur verið mjög mikil í sum-
ar; margir hafa lagt leið sína
þangað til þess allt eins að
lauga sig í sól og vatni, enda
er aðstaða til sólbaðs þar með
ágætum -—■ ef sólin á annað
borð lætur sjá sig.
Helgi Sæmundsson skrifar
að þessu sinni um knatt-
spyrnuvöllinn og hugleiðir
ýmsar hliðar mannlífsins á
þeim vettvangi. Hann segir
meðal annars: „Eg hygg, að
drykkjuskapurinn væri drjúg-
um meiri í Reykjavík, ef í-
þróttirnar vantaði. Nútíma-
maðurinn verður einhvern
veginn að sleppa öðru hvoru
aftur til náttúrunnar og fá að
fara sínu fram um skoðanir
og athæfi án þess að vera
ábyrgur að lögum.“
Þá er niðurlag sögunnar um
Angelique og sjóræningjann
og þá hvílum við okkur á
Angelique um sinn. Skýrt er
frá byltingarkenndri niður-
stöðu brezks vísindamanns um
að konan sem heima situr sé
verð hærri launa en fyrirvinn-
an, viðtal við stúlkuna, sem
leikur Fleur í Forsytesögunni,
sem sjónvarpið er að byrja
með, og margt fleira er í blað-
inu, að ógleymdum hinum
vinsæla þætti Vikan og heim-
ilið.
31. tbi. VIKAN 3