Vikan


Vikan - 08.08.1968, Síða 9

Vikan - 08.08.1968, Síða 9
SvfþfóO paradls ðrlö 2000 f Bandaríkjunum er það orðin mikil atvinna að spá í framtíð- ina; hver „hugmyndaverksmiðj- an“ af annarri er sett á stofn. Hefur gífurlegt fjármagn verið lagt í þessa starfsemi. Til dæmis hefur General Elec- tric stofnað fyrirtæki að nafni TEMPO (Technical Management Planning Organization) í Santa Barbara í Kaliforníu, þar sem tvö hundruð vísindamenn, félags- fræðingar og verkfræðingar í- grunda nú framtíðina og hafa til þess fjárstyrki sem nemur þrjú hundruð og fimmtíu milljónum króna á ári. Annað fyrirtæki svipað eðlis og enn þekktara er Hudson Institute, sem Rand Cor- poration rekur. Yfirmaður þess, Herman Kahn, er sagður vera heimsins snjallasti framtíðar- rannsóknari. Fyrir nokkrum ár- um gaf hann út bók, sem hét „Hugleiðingar um það sem er ó- hugsandi“, og fjallaði um kjarn- orkustríð nú á dögum. Nú hef- ur hann ásamt einum starfsbróð- ur sínum gefið út aðra bók sem heitir „Árið 2000“. Kahn heldur að í öllum ríkj- um heims hafi menn það betra árið 2000 en nú, en lífskjaramun- ur þróaðra landa og vanþróaðra hafi þá enn aukizt. 1965 var brúttóþjóðarframleiðslan á mann tólf sinnu hærri í fyijrnefndu ríkjunum, en 2000 verður hún orðin átján sinnum hærri. Ástæð- an er fyrst og fremst hin óhemju- lega fólksfjölgun vanþróuðu ríkj- anna. íbúafjöldi þeirra er nú tvö þúsund og þrjú hundruð milljón- ir, en verður kominn upp í fjög- ur þúsund og átta hundruð millj- ónir árið 2000. Fjölgunin í þró- uðu löndunum verður miklu hóf- legri. Japan er land framtíðarinnar númer eitt, álítur Herman Kahn. Þenslan er hra(ðari þah en í nokkru öðru landi; það leynir sér ekki nú þegar. Japan, Bandarík- in, Kanada og Svíþjóð verða „úr- valsríki" heimsins eftir rúm þrjá- tíu ár. Svíþjóð fær mjög góða spádóma. 2000 verður það eitt af efnahagslegum stórveldum heimsins, „sannkölluð paradís“, segir Kahn. 'Ymsum öðrum iðn- veldum gengur miður; þau staðna eða lenda jafnvel í afturför. Þannig á Vestur-Þýzkaland fyrir höndum að verða annars flokks iðnveldi, og í þeim flokki eru og verða Sovétríkin. Kahn: Árið 2000 verða Japan, Bandaríkin, Svíþjóð og Kanada fjögur aðaliðnveldi heimsins. S|áiO GniKkland og elsKIO Herforingjastjórnin gríska hef- ur verkað á túrista sem slæm fuglahræða, efnahag landsins til mikils skaða. En nú hafa herfor- ingjarnir fundið upp á mótleik. Auglýsingamenn hennar eru farnir að nota kvensemi landa sinna sem beitu fyrir ferðakonur. „Grikkland er eitt þeirra landa, þar sem ástin er í mestum há- vegum höfð,“ stóð nýlega í Limd- únablaði einu, er grískir aðilar standa að. „Ungir Grikkir eru þekktir sem góðir elskhugar og það er opinbert leyndarmál að sumar norðurevrópskar fegurðar- dísir fara til Venusar eigin lands til að kanna það mál.“ Þessu til áherzlu hefur útgáfu- fyrirtæki eitt í Aþenu gefið út bók með þýðingum á nauðsyn- legustu ástarorðum af grísku á ensku, þýzku, frönsku og vita- skuld sænsku. w IUNDIRFATATIZKUNNI undirkjólar meö áföstum brióstanöldum komnir á ÍSLENZKAN MARKAÐ GÆÐAMERKIÐ/q-feW/ frá Marks & Spencer tryggir yöur vANDAÐA vöru a HÓFLEGU veröi IÐUNN ^tSTRÆTl 31. tbi. VIKAN 9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.