Vikan


Vikan - 08.08.1968, Síða 27

Vikan - 08.08.1968, Síða 27
Allar verzlanir í Carnaby Street eru opnar út á götu eins og á markaSi, og inngangurinn oftast skreyttur litskrúðugu gervigróðri og fjöðrum. En hér eru engir prangarar að ota vöru sinni að fóikinu, allir ganga út og inn án nokkurrar þvingunar, móta og skoða. I einni búðinni eru nokkur smáborð innan um fatnaðinn og skart- gripina og þar er hægt að fó alls konar veit- ingar. Sætin eru aðeins fyrir grennstu tegund mannfólks, en það hentar einmitt þeim Björk og Önnu Siggu og þær smeygðu sér í stólana við eitt borðið og fengu sér þjóðlegan enskan rétt, steak and kidney pie, sem bragðaðist þeim ógætlega við glymjandi hljómlistina, sem hér mætir fólki úr hverju skoti. Síðan var bara að standa upp og fara að gramsa í vörunum, sem héngu og lágu þar á víð og dreif. Þótt Carnaby Street sé einna þekktust erlendis af öllum götum í London um þessar mundir, veit hver sannur Lundúnabúi, að Kings Road er miðstöð listamanna þar, nokkurs konar vinstri bakki Signu. Reyndar hafa þeir hér eins og þar orðið að hörfa nokkuð frá Kings Road vegna ásóknar ferðamanna og staðurinn einkennist nú mikið af hippies og flækingum í ýmsum gervum. En mannlífið er margbreytilegt, og ógleyman- legt er að hafa verið síðdegis á laugardegi á Kings Road. Þar er líka mergð lítilla og frum- legra fatabúða, butiques, og það hýrnar yfir ís- lenzku stúlkunum við þá sjón. Hér eru þær að skoða í glugga einnar búðar þar, sem ber hið frjálslega nafn „Just looking" — sem sagt allir velkomnir inn að skoða, þótt pyngjan sé kannski tóm þá stundina. Anna Sigga er nú ekki viss um hvað mamma hennar myndi segja, ef hún kæmi heim með einn svona síð- og hrokkinhærðan eftir sumar- dvölina. Hins vegar finnst henni gaman að horfa á hann eins og fleira hér í Carnaby Street. Hér úir og grúir af undarlegum uppátækium, bæði í fatnaði og hegðun. (Neðst t.v.). Ekkert má bera svip góðborgarans í Carnaby Street. Hér er stór og glæsilegur bill alþakinn rósamálningu — og því ekki það? Anna Sigga hefur aldrei komið til útlanda, en í þetta skipti var ástæða til að gera sér dagamun, því að hún var að Ijúka kennaraprófi í vor. Hún hefur þó ekki kvatt alla skólagöngu, því að næsta vetur ætlar hún að bæta við sig einu ári og taka stúdentspróf. Björk hefur útþrána í blóðinu og notar árin meðan hún er ung og óbundin til þess að sjá sig um ( heiminum. Um leið og farfuglarnir koma á vorin, fer hún að ókyrrast í vetrarstarfinu á skrifstofunni, og brátt er hún aftur á leið út í lönd. Þótt hún hafi ferðast víða, hefur hún aldrei komið til London. Þær eiga því viðburðarríka ferð fyrir höndum, og fá lesendur VIKUNNAR að fylgjast með þeim fyrsta dag ferðarinnar. Það er lagt snemma af stað og það gefur ferðinni sérstakan blæ, einhver eftirvænting liggur í loftinu. Ævintýrið byrjar eiginlega strax og komið er [ Boeingþotu Flugfélags Islands, því að varla er hægt að hugsa sér skemmtilegri og þægilegri farartæki. Það er eins og að sitja heima hjá sér í stofunni, nema hvað þar hafa fæstir þjónustufólk til að stjana við sig allan tímann. I flugvélinni eru allar óskir fólks uppfylltar hvað mat og alla þjónustu snertir, rúmt er um farþegana og vélin er björt og loftið þægilega svalt og tært allan tímann. Þegar k<imið er til London fara þær Björk og Anna Sigga strax að skoða borglna og byrja auðvitað á því sama og annað ungt fólk hvað- anæva að i»r heiminum — á Carnaby Street. Frá þeirri uppsprettu má rekja marg' í klæðaburði unglinga út um allan heim, meðal annars til íslands. Síðan er London fortíðar og nútíðar skoðuð, hallir, minnismerki, garðar, torg og skemmtistaðir, og býður VIKAN ykkur með þeim í þann leiðangur — í máli og myndum hér á síðunum. i Tvær vinkonur, þær Anna Sigríður Einarsdóttir og Björk Þórðardóttir eru að leggja af stað í ferðalag með Flugfélagi íslands. Ákvörðunar- staðurinn er Kaupmannahöfn, þar sem þær ætla að vinna fyrir sér ( sumar. En þar sem það tekur ekki nema tvo og hálfan klukkutíma að gera lykkju á leið sína til London, breytir það ekki miklu, þótt þær stanzi ( nokkra daga og haldi svo áfram til Kaupmannahafnar. Breytir það ekki miklu? Jú, það er víst óhætt að slá því föstu, að það breytir töluvert miklu ( augum beggja þessara stúlkna, að fá þarna tækifæri til að skoða eina stærstu og glæsilegustu borg í heimi, borg, sem býður upp á næstum allt, sem nokkur getur látið sér detta í hug eða langað til að sjá. í London og nágrenni eru margar af stærstu, fegurstu og sögufrægustu byggingum hins vestræna heims, skemmtigarðar, torg og umhverfi borgarinnar er yndislegt og stórbrotið, mannmergðin óskapleg og svo fjölbreytt — og mislit — að það mætti eyða mörgum dögum aðeins við að horfa á fólkið. Þarna er fólk af öllum kynstofnum, enda- laus straumur hvítra, svartra, gulra og brúnna manna, óendanleg til- breytni í klæðaburði, skikkjuklæddir svertingjar, indverskir karlmenn með vefjarhött og konur þeirra í litríkum sharong og rauðan blett á enni og þannig mætti lengi telja — en gleyma þó ekki einu furðulegasta fyrirbærinu, nútíma ungu fólki, sem hvergi er meira af en ( London og setur svip sinn á götulífið, a.m.k. í mörgum hverfum borgarinnar. Þessi stóð þarna og spilaði á gítar í miSju Carnaby Street, og það hefur þurft mikla hug- vitssemi til að finna aðra eins larfa og hann hefur hengt utan á sig. Hér leyfist öllum allt og lífsgleðin finnur sér marga undarlega vegi. Verzlunarfólkið hér, einkum karlarnir við söluvagnana, tala ensku alls ólíka því, sem skóla- stúlkur læra á Islandi, og þeir tala hratt og m'kið, kannski til að ferðamaSurinn fái ekki lima til aS átta sig á skiptimyntinni. Hér eru aurarnir taldir með peningum og hjá almenn- ingi í stórum löndum, þar sem lífsbaráttan er hörð, er hver græddur eyrir betri en ekkert.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.