Vikan


Vikan - 08.08.1968, Side 30

Vikan - 08.08.1968, Side 30
E V A L E T E V A L E T E V A L E T E V A L E T E V A L E T E V A L E T E V A L E T E V A L E T E V A L E T Stærstu framieiðendur í Noregi ó kælitækjum. Polyurethan-einangrun ó öllum tækjum. KÆUSKÁPAR, 175, 250 og 310 lítra. Stílhreinir. Allar hillur útdregnar og færanlegar. Segullæsing. Eru á hjólum. EVALET kæliskópar hafa fengið gæðamerkið „Varefakta", hæstu viðurkenningu fyrir góða kælinýtingu. FRYSTISKÁPAR, 225 lítra og 275 lítra. FRYSTIKISTUR, 300, 400 og 500 lítra. Roll Bond frystikerfið tryggir yður fullkomna frystingu. Hrað- frysting fyrir ný matvæli. Segullæsing. Eru á hjólum. Ótrúlega fyrirferðalitlir. — Hagstætt verð. Domus Medica — Egilsgötu 3 Sími 18022. K[ó!linn Framhald af bls. 13 sin í tíma. Þess í stað virti hún stúlkuna fyrir sér. Hún lítur svo sem þokkalega út, hugsaði hún. Auðvitað of þybbin og ætti að gera eitthvað fyrir hárið á sér og læra að mála sig almenni- lega Hún sneri sér til hálfs að stóra gullrammaða speglinum á veggnum og sá sér til ánægju, að þessi látlausi gullblær, sem hún hafði á hárinu þennan mán- uðinn, fór henni prýðilega. — Má ég máta þessa? spurði stúlkan og hélt upp þremur kjólum, og þegar konan vísaði henni inn í mátunarklefann, flúði hún þakklát þangað. Klefinn var lítill og þröngur, og forhengið svo nízkulega snið- ið, að það varð óhulin rönd meðfram því öðrum megin. Stúlkan lagði frá sér kassann og tók að fækka fötum, reyndi að vera eins vel upp í lokaða horninu og láta eins lítið fyrir sér fara og hún gat, ef einhver skyldi gægjast inn um rifuna. Hún braut fötin sín vandlega saman og lagði þau á stólkornið, sem þarna var. Hún renndi fyrsta kjólnum ofan vfir höfuð sér og hneppti hann vahdvirknisiega. Hve nornarleg, sem konan þarna frammi var, ætlaði hún ekki.að flýta sér um of. Kióllinn varð að vera full- kominn. Hann varð að láta hana líta út fyrir að vera granna. faera og bokkafulla. Ó, hvað hún hafði hatað siálfa sig. síðast þegar þau voru úti saman. Hann hafði farið með hana eins oe hún væri litla systir hans, og hún vildi ekki vera svo hættu- laus lengur. Vildi, að honum þætti hún spennandi, helzt of- boðlitið hættuleg. Kjóllinn varð nð gera hana að konu. ekki bara veníulegri stúiku. En hún sá þevar. að þessi kjóll var ekki sá rét.ti. Hann var alltof krakka- Jpour. Hún hengdi hann var- lega upp aftur. Velgre’ddi gullkollurinn kom í rifuna: — Hvernig gengur? .Stúlkan snerist á hæl og bar fvrir sig kiól, svo konan sæi ekki / hve gömul undirfötin hennar voru orðir, og sniáð. -— Vel, takk, hvíslaði hún. — Ég er ekki al- veg búin ennþá. Konan yppti öxlum og gekk aftur að stólnum sínum. Stúlkan fór í annan kjólinn. Hann var heldur ekki góður. Hún starði örvæntingarfull á spegilmynd sína og það var sem hún sæi þar hugsanir sínar. Af hverju hafði hann ekki beðið hana að koma með? í fyrstu hafði allt verið öðruvísi og hann hafði haft gaman af feimni henn- ar. Hann hafði farið með hana á næturklúbba, veitingahús, heim til vina sinna, alls staðar sýndi hann hana og hún hafði ekki betur séð en að hann væri stoltur yfir því. Sennilega bara af því að hún var öðruvísi, hugs- aði hún. í hópi þess fólks, sem hann umgekkst, var feimin stúlka fágæt. Kjóllinn, sem hún var nú í, var rósrnuður. Það fór hrollur um hana. Hún hafði alltaf hald- ið, að sá litur færi henni bezt, þar til að hann hafði sagt henni, að rósrautt gerði hana ennþá barnslegri. Hún flýtti sér úr kjólnum. Fyrir framan sat konan og fágaði neglur sínar, meðan hún hugsaði um stúlkuna þarna inni. Það höfðu ekki komið nema tveir viðskiptavinir í búðina þetta síðdegi, og hún gat ekki hætt að hugsa um stúlkuna þarna inni. Öryggisleysi hennar var næstum viðkvæmnislegt. Hún var sennilega af því tagi stúlkna, sem lagðist með manni bara af því að hún hélt, að allar hinar gerðu það. Og svo, þegar hún sæi að það skipti ekki máli hvað aðrar gerðu, væri það of seint. Konan hætti að strjúka á sér nevlurnar og leit upp. Hún reyndi að hætta að hugsa um stúlkuna. Hún veigraði sér við að viðurkenna, að það var vegna þess, að hún var einu sinni svona síálf, að hún átti svona auðvelt. með að skilgreina þessa stúlku. Hún gat lesið hveria hugsun í höfði hennar. vesrna þess að fyr- ir tíu, fimmtán árum höfðu sömu hugsanir þyrlazt um hennar eigin koll. — Fyrirgefið ... Lág rödd- in innan úr klefanum ergði hana ósegj anlega. — Já? — Enginn þessara kjóla er beinlínis eins og ég hafði hugs- að mér. . . . — Þér völduð þá siálf. Stúlkan varð kafrióð. — Ég veit,. en ég hafði látið mér detta í hug. að kannski væruð þér svo vön, að þér sæuð betur hvað hentar mér Hún stóð barna bjargarlaus og stjörf með kjólana f fanginu. — Látið mig hafa þessa og svo skal ég sjá til. Hún gekk að klefanum og rétti fram hendina. Stúlkan rétti henni kjólana, snyrtilega hengda á herðatrén, og allt í einu gat konan séð fyrir sér herbergið hennar: Lítið og dimmt og næst- um andstyggilega vel hirt. Inni í klefanum lagði stúlkan lófana að heitum kinnunum og þrýsti á. Hún hefði aldrei átt að koma inn í þessa búð. Konan hagaði sér gagnvart henni, eins og hún gæti ekki borgað. En það gat hún. í meira en mánuð hafði hún sparað. Hún hafði haldið í matinn við sig og gengið til og frá vinnu, og það hafði verið svo undarlega auðvelt af því að svo mikið var í húfi. Fyrir nokkrum vikum hafði hún rekizt á klausu í blaði, sem átti svo einkar vel við hennar eigin aðstöðu. „Þegar karlmað- urinn sér konuna aftur, eftir að hafa verið burtu um hríð, er eins og hann sjái hana í fyrsta sinn. Hann sér allt það, sem heillaði hann f upphafi, og það ásamt með því, sem hann hefur síðan fræðzt um hana, færir honum oft heim sanninn um, að hann hefur elskað hana lengi án þess að gera sér það ljóst.“ Og elskaði hann hana? Hann hlaut að gera það. — Prófið þessa tvo hérna. Konan dró tjaldið til hliðar og muldraði þakklæti fálmaði stúlkan eftir eftir kiólunum. Konan gekk hægt aftur að stólnum. Ég vildi, að hún færi að fara. Hún fer óskaplega í taugarnar á mér. Heldur hún í alvöru, að einn kióll geti öllu breytt? Hún brosti kaldhæðnis- lega með sjálfri sér. Það leyndi sér ekki, að allt, kvenfólk var jafn vitlaust, þegar karlmenn voru annars vegar. Hugsaði eins, var haldið sömu óraskanlegu sannfæringunni. Til dæmis þeirri, að einn kjóll gæti öllu breytt ...... Allt í einu minntist hún nokk- urs, og gazt ekki að því. Hún mundi eftir bláum chiffonkjól ..... Hún gat ennbá séð hann fyrir sér, léttan eins og ský. þröngan í mittið og vít.t. svifandi pils. Þennan kiól hafði hún þráð af líkama og sál. Og hver vissi, nemá hann hefði raunveru- lega getað breyll öllu? Kannski — en hún hafði aldrei fengið tækifæri til að prófa það. Hún strauk sér þreytulega um augun. Þessi stúlka þarna var svo viðurstyggilega reiðubúin að gera siálfa sig að engu. Það hafði hún aldrei verið sjálf. Hún hafði lært, að maður varð að berjast til að komst áfram, berjast og vera harður og rísa upp aftur eftir hvern ósigur. Rétt eins og hún hafði barizt til að fá þessa búð til að bera sig og var nú í þann veginn að klóra í bakk- ann. Með því móti að leggja all- an ágóða beint í verzlunina aft- ur, gera allt sjálf, og voga að kaupa kjóla eins og þann svarta þarna. Hún leit á hann þar sem hann hékk í glugganum og kinkaði kolli. Já, einmitt þessi kjóll var 30 VIKAN 31-tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.