Vikan


Vikan - 08.08.1968, Síða 36

Vikan - 08.08.1968, Síða 36
Til er ágætur dans, sern heitir Rumba; nýjasta dansinn þeirra í Ameríku mætti skíra og gefa svipað nafn: Bumba. Hann er sem sé fólginn í því að láta eitthvað milli tveggja bumbna og stjákla svo eftir hljóðfalli án þess að missa hlut- inn niður, og auðvitað má ekki snerta hann með höndunum. í þessu skyni hafa verið framleiddar sérstakar bumbu- kúlur, sem minna mest á smágerð tund- urdufl. Enda fylgir sögunni, að börn hafi lítið gaman af þessum leik; hann sé mest iðkaður af fólki, sem hafi gam- an af að dufla. Frakkar hafa upp á síðkastið stigið nokkuð í vænginn við Rauða-Kína, og meira að segja hafa franskir læknar nú tekið til vísindalegrar athugunar gamalt húsráð frá Kína. Það kvað iðulega koma fyrir karlmenn, að þeir verði þreyttir á ástarleikjum, eða önnur almenn þreyta komi í veg fyrir, að þeir séu hæfir í þann leik um stundarsakir. Við þessu áttu Kínverjar hinir fornu ágætt ráð: Að nudda höfuðið á viðkom- andi manni á ákveðnum stöðum. Þetta tóku Frakkar sér fyrir hendur að prófa — og sanna. Áhrifamesti nuddstað- staðurinn á höfðinu er ofarlega á hnakkanum, nær uppi undir hvirfli (sjá mynd). Aðrir tveir eru svo neðar, eða í hnakkagrófinni (sjá mynd). Tíu mínútum áður en karlinn á að láta til sín taka, ber að nudda þessa staði með löngutöng. Þá hverfur honum öll svefn- og hvíldarþörf, en önnur þörf kemur í staðinn. Ef ungir menn eru yfir sig ástfangnir, kvað geta komið til mála, að þeim bregðist karl- mennskan, þegar ó þarf að halda. Samkvæmt kínversk-franska ráðinu á þá að nudda þá um hálsinn aftanverðan og allt niður á efsta hryggj- arliðinn með frottéefni vættu í Kölnarvatni. Þeim karlmönnum, sem eru farnir að verða þreyttir á konunni í bólinu, ráðleggja Kínverjar og Frakkar þetta: Flugsið ykkur beina línu frá líf- beininu upp í bringubein. Mælið tveggja fingra breidd niður frá naflanum og strjúkið yður þar hring eftir hring með löngutöng án afláts í þrjár mínútur. Ennþá áhrifameira verður þetta, ef þið gefið ykkur fimm mínútur í viðbót til þess að láta rennvotan, kaldan klút liggja á umræddum stað á eftir. 36 VIKAN 31- tbl

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.