Vikan - 12.09.1968, Side 2
V E RÐTRYGGO
Li FTRYGG I N G
Tryggingafræðingur Andvöku hefur útbúið nýja verðtryggða líftryggingu, sem er
algjör nýjung hér á landi.
Gamla líftryggingaformið, sparilíftryggingin, sem flestir kannast við, kemur nú, því
miður, ekki að tilætluðum notum.
Þessi nýja trygging,, sem er hrein áhættulíftrygging, er sérstaklega sniðin fyrir lönd,
þar sem ör verðbólga hefur komið í veg fyrir eðlilega starfsemi líftrygginga, eins og
t.d. her á landi. í tryggingunni hækkar tryggingarupphæðin og iðgjaldið árlega
samkv. vfsitölu framfærslukostnaðar.
Dæmi: Hefði Sigurður Sigurðsson, sem var þrítugur 1962, líftryggt sig fyrir
kr. 222.000.00 og greitt þá kr. 1.000.00 í iðgjald, væri hann tryggður í dag fyrir
kr. 317.000.00 og greiddi kr. 1553.00 í iðgjald.
Vér hvetjum alla fjölskyldumenn, sem hafa velferð
fjölskyldu sinnar í huga, að hafa samband við Aðal-
skrifstofuna Ármúla 3 eða umboðsmenn vora og
fá nánari upplýsingar um þessa nýju líftryggingu. ÁRMÚLA 3 SÍMI 38500
LÍFTRYGGINGÍAFÉLAGIÐ ANDYAKA
Það er komið á daginn, sem
margur spáði, að þegar nýja-
brumið færi af sjónvarpinu,
tækíu menn að gagnrýna það
ákaft,. Ánægían yfir fæðingu
barnsins er farin að dvína, og
í slaðinn er farið að skamma
það og siða og reyna að ala
það upp. Við þessu bjuggust
flestir.
Á einu atriði gagnrýninnar
ættu forráðamenn sjónvarps-
ins að taka meira mark en
öðrum. Það eru raddir þeirra,
sem amast við hinum mörgu
glæpaþáttum: Dýrlingnum,
Farðjaxlinum, Maverik,
Hauknum og hvað þeir nú
heita allir saman. Ekki var
ástæða til umkvörtunar, þeg-
ar Dýrlingurinn einn prýddi
dagskrána. En þegar fleiri
slíkir þættir fylgdu í kjölfar-
ið, og meira að segja enn
óhugnanlegri, þá er von að
mörgum þyki nóg um. Þátt-
um af þessu tagi er ætlað það
hlutskipti eitt að vekia ó-
hugnað og spennu. Ef til vill
má segia, að tilbreyting geti
verið að horfa á slíka þætti
hæfilega sjaldan. En þegar
þeim er demt yfir menn næst-
um á hverjum degi, jafnvel á
sunnudagskvöldum, þá getur
svo farið, að jafnvel þeir,
sem hafa gaman af „svona
löguðu“ fái sig fullsadda.
Annað ber að hafa í huga:
Vísindalegar rannsóknir hafa
leitt í liós, að glæpaþættir
hafa skaðleg áhrif á börn. Það
gagnar lítið að lýsa rækilega
yfir, að þessir þættir „séu
ekki ætlaðir börnum“, eins
og komizt er svo kurteislega
að orði í sjónvarpinu okkar.
Það er alkunna að heimilis-
hættir eru þannig hjá flestum,
að börnin fara sínu fram og
horfa á það sem þeim sýnist.
Rökin með sýningu slíkra
þátta eru ósköp einföld: Fólk-
ið vill þetta! „Fólkið“ er að
sjálfsögðu alls góðs maklegt,
og auðvitað „ræður“ það í
lýðræðisþjóðfélagi. En ætli
stundum sé ekki nauðsynlegt
að hafa vit fyrir þeim, sem
ekki gera sér ljóst, hvað þeim
er fyrir beztu?
2 VIKAN 36-tbl