Vikan - 13.03.1969, Qupperneq 26
Svo sem fyrr greinir urðu menn ekki á eitt sáttir
um heiti á æskuhöllina við Skaftahlíð. Borgarráð
felldi framkomna tillögu um að kalla húsið Tóna-
bæ en vildi kalla það Hlíðabæ í staðinn, en loks
varð að ráði að leggja nafngiftina undir dóm þeirra,
sem sæktu húsið fyrstu vikuna. I»ar fékk nafnið
Tónabær flest atkvæði.
Unga fólkið hefur sótt
Tónabæ (?) vel, síðan
hann var opnaður. I»ó
er greinilegur mismun-
ur á því, hvað laðar
unglinganna mest að. —
Þegar táningahljóm-
sveitir leika, er troð-
fullt út úr dyrum, en
a.ðsóknin er dræmari,
þegar plötukvöld eru
eða þjóðlagakynningar.
OG ÞA FEKK ÆSKAN
Verðmunur er á aðgöngumiðum, eftir því hvað á borð
er borið. Dýrast er að sjálfsögðu, þegar hljómsvcitir
leika fyrir dansi, en ódýrara er önnur kvöld, stundum
a\lt niður í 25 krónur og ekkert fatageymslugjald, gos-
flaskan kostar 15 krónur. En þótt í embætti plötu-
snúðs hp.fi valizt hæfur og vinsæll maður, Pétur Stein-
grímsson, reyna tekjulágir unglingar fremur að safna
fyrir hljómsveitakvöldunum og fara síður á þjóðlaga-
l'.völd og plötukynningar, þótt því fylgi minni fjárpt-
lát. En allt þr.rf sinn aðlögunartíma, og kannski gerir
loðnan okkur aftur loðin um lófana . . .