Vikan


Vikan - 17.04.1969, Blaðsíða 33

Vikan - 17.04.1969, Blaðsíða 33
ilf Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Einhver verður til að teíja þig og hyggurðu á hefnd- ir. Næsta helgi færir þér tvíbent tækifæri. Kvöld vikunnar verða erilsöm og gestkvæm. Hafðu fjár- málayfirlitið í lagi. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú hefur ekki verið eins athafnasamur og nauð- synlegt er. Breytingar færa þér nýjar vonir. Verðu hluta af tekjum til góðgerðarstarfsemi. Sveigjan- leik er nauðsynlegur því breytingar eru í nánd. Tvíburamerkið (22. mal — 21. júní): Það er ýmislegt sem blæs á móti; þú lætur það ekki mikið á þig fá og mun von, bundin við næstu helgi, ráða mikiu þar um. Árangur samvizkusem- innar er að koma í ljós. Undirbúðu næstu verkefni. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Félagsskapur þinn veitir þér ekki þá næringu er þú þarfnast, breyttu þessvegna til. Taktu ekki frum- kvæðið, láttu berast með straumnum. Ljúktu störf- um þínum snemma dags, svo þú getir notið hvíldar. öyr Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Fréttir, fengnar eftir krókaleiðum, gefa þér forskot sem ræður úrslitum. Þú ferð í stutt ferðalag, sem hefur engan árangur í för með sér. Gerðu þig ekki skuldbundinn neinum. lÍF* Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september); Þú átt í brösum við fjölskylduna; láttu það ekki spilla geðró og lífsgleði út í frá. Rómantíkin er á næsta leiti ef þú gætir að. Hafðu undirbúning á sumarstarfinu. Taktu til í kringum þig. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Ovænt atvik kippir grundvellinum undan ráðagerð- um þínum og félaganna. Þér berst gjöf sem þú hefur mikil not fyrir. Aukastarf þitt gefur vonir um fasta samninga. Hugleiddu aðstöðu þína. -#p Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Uppástungur yfirmanna þinna valda þér miklum heilabrotum. Láttu aðra um rómantíkina; slíkt spill- ir fyrir þér eins og stendur. Treystu eigin dóm- greind og taktu þínar ákvarðanir. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Láttu aðra um að ákveða hlutina og frestaðu stór- framkvæmdum. Gleymdu erli daganna og rifjaðu upp gömul kynni. Njóttu helgarinnar með fjöl- skyldunni. Gönguferð upp um fjöll hefur góð áhrif. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Atburðir næstu daga eiga eftir að valda sundrung i kunningjahópi þínum. Gleðstu yfir velgengni þinni og láttu heimilið njóta þess. Veldu gjafir af ná- kvæmni. Föstudagskvöld óvenjulegt. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú þarft á styrkri stoð að halda. Þér berst bréf er setur þig í mikinn vanda. Verðu hluta af tekjunum í að endurnýja birgðirnar. Þú átt góða fjölskyldu; það reynirðu einu sinni enn. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Freistingar eru ekki allar til að standast, en beitirðu | skynsemi og gagnrýni hæfilega; þá skaðastu ekki. 1 Þú átt við harða samkeppni að etja á vinnustað; 1 taktu ekki áhyggjurnar með heim. Ronson HARÞUBRKA HEIMILANNA TILVALIN FERMINGARGJÖF EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK i6. tbi. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.