Vikan


Vikan - 27.11.1969, Blaðsíða 3

Vikan - 27.11.1969, Blaðsíða 3
31. árgangur - 48. tölublaS - 27. nóvember 1969 Þuríður Sigurðardóttir söng i sjónvarpsþætti Svavars Gests um daginn og vakti mikla athygli. Þuriður er vaxandi söngkona og nýtur nú mikilla vin- sælda, sérstaklega eftir að siðasta hljómplata hennar kom út. Við heimsækjum Þuriði i þessari VIKU og ræðum við hana um sönginn, tómstundastarf hennar, hestamennsku og margt fleira. Og auðvitað höfum við Ijósmyndað Þuríði í bak og fyrir, bæði úti og inni. Það líður óðum að jólum og því fer senn að vera tími til kominn fyrir húsmæðurnar að fara að hugsa til jólabakstursins. Að þessu tilefni hefur VIKAN leitað til nokkurra ungra húsmæðra og beðið þær að koma með eftirlætis kökuuppskriftina sína. Köku- úrvalið er fjölbreytt og vonandi verða uppskriftirnar vinsælar meðal húsmæðra. „Þeir ræna landi okkar" hrópa Eskimóarnir í Alaska og mótmæla því, að stjórnin í Washington skuli hafa selt olíunámuréttindin í Alaska fyrir 900 milljónir dollara. Sérfræðingar halda því fram, að olíunámurnar undir ísnum þarna jafnist á við olíulindirnar í Austur- löndum nær. Einn þeirra sem keyptu var að sjálfsögðu Jean Paul Getty. Næsta tölublað Vikunnar er Jólablað og verður það að þessu sinni tvöfalt að stærð, rúmlega hundrað blaðsíður. Efni þess verður bæði mikið og fjölbreytt og skulu hér aðeins taldir nokkrir liðir þess: ítarlegt viðtal við séra Sigurð Hauk Guð- jónsson; hressilegt og skemmtilegt samtal við síðustu förukonuna á íslandi, Jónu Sigriði Jónsdóttur, sem er mikil hestakona og ferðagarpur og segist hafa brotið í sér hvert einasta bein í hrakningum sínum; smellin grein eftir Loft Guðmundsson, rithöfund, um gamansemi í íslenzkum ævi- sögum; „Skin frá skammdegisnótt" nefnist grein eftir Þorstein Matthíasson, þar sem spjallað er um jólahald á Islandi í gamla daga; Ingibjörg Jónsdóttir hefur samið barnasögu fyrir yngstu lesendurna og nefnist hún „Litli jólasveinninn"; „Á hestbaki til Geysis um aldamótin" nefnist frásögn af ferðalagi enskrar hefðarkonu hér á landi, en ferðasögur af þessu tagi hafa löngum notið mikilla vinsælda hér á landi; tíu mætir menn segja álit sitt á þeirri ákvörðun Castros, forsætis- ráðherra Kúbu, að fresta jólunu mfram í marz, en þessi hugmynd er góðkunn hér á landi úr gamanleiknum Delerium Búbonis. [ NÆSTU VIKU í ÞESSARI VIKU I FULLRI ALVORU ÖRVGGISLEYSI Hvert atvikið hefur að undanförnu rekið ann- að, sem leítt hefur í Ijós þá staðreynd, að ef neyðarástand skapaðist hér í Reykjavík og ná- grenni, til dæmis af völdum náttúruhamfara, sem mikil hætta er á, eða stórslysa og ófriðar, — þá ríkir alger ringulreið, svo að stórtjón mun hljótast af og miklu meira en þyrfti að verða. Almannavarnir hafa með öllu verið vanræktar á seinni árum og varla skeytt neitt sem gagnar um öryggi og velferð borgaranna, ef voveifleg- ir atburðir skyldu dynja yfir. Sérhver menning- arþjóð leggur metnað sinn í að tryggja öryggi þegna sinna eins og bezt verður á kosið og horfir ekki í þá peninga, sem slíkt kostar. Það vakti strax illan grun, þegar útvarpið stofnaði til nýs þáttar i vetrarbyrjun, þar sem hlustendur máttu hringja til þess og fá óska- lag leikið. Þessi nýjung fékk svo góðar undir- tektir strax í upphafi og svo mikið var hringt umrætt kvöld, að símakerfið fór úr skorðum. Og litlu síðar stöðvaði ein skurðgrafa bæði út- varp og sjónvarp landsmanna í heila klukku- stund. Það kom fram í blaðafregnum, að útvarp og sjónvarp hafa engar varastöðvar, sem koma sjálfkrafa inn, ef rafmagnsleysi verður. Liggur í augum uppi, að slíkt er vítavert öryggisleysi. Allar neyðarvarnir eru gagnslausar, ef ekki er hægt að koma upplýsingum og ráðleggingum til almennings. Og aftur gerðist það, kvöldið, sem útvarp og sjónvarp fóru úr sambandi, að svo margir hringdu í einu, að símakerfið rask- aðist, þannig að ekki var hægt að fá són víða í bænum nema með því að bíða óheyrilega lang- an tíma. Hvorki mun vera við rikisútvarpið né al- mannavarnir að sakast í þessum efnum, held- ur ríkið sjálft. Það er í þess verkahring að tryggja öryggi borgaranna. Það er í fyrsta lagi lágmarkskrafa að komið verði á fót varakerfi fyrir útvarp og sjónvarp, en einnig væri sann- arlega mál til komið að efla almannavarnir á sem flestum sviðum. Slíkar aðgerðir þola að sjálfsögðu enga bið, því að enginn veit, hvenær ógæfan dynur yfir. G.Gr. VI rxMIN Útgcfandl Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi Gröndai. Blaðamcnn: Dagur Þorleifsson og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Halldóra Iialldórsdótt- ir. Auglýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir. — Rit- stjórn, auglýsingar, afgrciðsla og dreifing: Sklp- holti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf: 533. Verð í lausasölu kr. 50.00. Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir 26 tölu- blöð missirislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: Nóvembcr, febrúar, maí og ágúst. 48. tbi. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.