Vikan


Vikan - 27.11.1969, Blaðsíða 30

Vikan - 27.11.1969, Blaðsíða 30
Nútímabörn Mikil gróska er nú hlaupin í þá tegund tónlistar, sem hér á landi hefur verið kölluð þjóðlagatónlist. Nýir söngflokkar hafa sprottið upp, eins og gorkúlur á haug. Hefur starfsemi þjóðlagaklúbbsins Víki- vaka í Tónabæ án efa orðið til þess að blása lífi í þessa músik, en á samkomum Víkivaka hefur verið fjölmenni og mikill áhugi komið í Ijós. Þjóðlagasöngur er kannski ekki rétta orðið yfir þessa músik, því að oftar er um að ræða gamanvísur eða hreinlega eitthvað heimatilbú- ið. Þeir eru þó til sem hafa hallast að því, að kalla slíka músik ný- þjóðlög, en okkur finnst slíkt orð svolítið hátíðlegt og ekki beint við hæfi, því að með hugtakinu þjóð- lag er átt við lag, sem hefur lifað á vörum einnar þjóðar um langan aldur. Hvað sem því líður, þá eru söngflokkar af þessu tagi orðnir nokkuð margir, að minnsta kosti á höfuðborgarsvæðinu, og er nú lið- in sú tíð, þegar Savanna-tríóið var eina söngtríóið á kreiki. Einn þess- ara flokka er eða öllu heldur var „Nútímabörn". Nútímabörn voru í upphafi fimm og létu víða í sér heyra síðastliðinn vetur; komu með- al annars fram f sjónvarpi. Síðan rak að því, að flokkurinn varð ein- um færri, og voru þau því fjögur, sem sungu inn á hljómplötu þá, sem innan tíðar 'kemur á markað. Um svipað leyti og Nútímabörn sungu inn á plötuna urðu þær hrær- Framhald á bls. 47 Ævintýri Innan skamms er væntanleg tveggja laga plata með hljómsveit- inni Ævintýri. Lögin á plötunni heita „Ævintýri", sem er íslenzk útgáfa af laginu „Time is on My Side", en það lag hefur hljómsveit- in Marmelade leikið á plötu; hins vegar er Pílagrímakórinn frægi úr Tannhéuser eftir Wagner, og hef- ur Þórir Baldursson útsett lagið fyr- ir Ævintýri plús aðstoðarlið með strengi og horn. Ævintýri flytja einnig eitt lag á væntanlegri hæg- gengri hljómplötu frá Tónaútgáf- unni, þar sem fram koma 12 ólíkar hljómsveitir og söngvarar. Þá er þess að lokum að geta, að í undir- búningi er 12 laga plata, þar sem Björgvin Halldórsson mun syngja ýmis vinsæl lög. Sú plata mun að líkindum koma á markað eftir ára- mót. Mary Hopkin Næsta Eurovision-söngvakeppni verður haldin í Hollandi á vori komanda. Af Englands hálfu mun Mary Hopkin taka þátt í keppn- inni að þessu sinni. Að venju verð- ur efnt til keppni um það lag, sem Mary mun flytja. Verða 6 lög að lokum valin, og mun Mary syngja þau í nýjum sjónvarpsþætti, sem Cliff Richard hefur með höndum hjá brezka sjónvarpinu. Munu áhorfendur síðan skera úr um það, hvaða lag verður fyrir valinu. Mary lét nýlega frá sér fara nýja tveggja laga plötu og heitir lagið, sem upp snýr, „Fields Of St. Etienne". Þá hefur Mary að und- anförnu komið fram á einum þekkt- asta skemmtistað í London, Hotel Savoy. Hún er um þessar mundir í Bandaríkjunum og hefur komið fram í skemmtiþáttum Andy Willi- ams og Ed Sullivan. ☆ 5 30 VIKAN 48- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.