Vikan - 27.11.1969, Blaðsíða 14
Það hefur heldur lítið borið á Þuríði Sigurðar-
dóttur, og er það miður, því hún er fyrsta flokks
söngkona - auk þess sem hún er falleg og
gædd persónutöfrum í ríkum mæli.
VIÐTAL VIÐ ÞURÍÐI
SIGURÐARDÖTTUR,
SÖNGKONU
Texti:
Ömar Valdimarsson
Myndir:
Sigurgeir Sigurjónsson
Sú söngkona yngri kyn-
slóðarinnar á íslandi sem
mest liefur borið á í seinni
tíð, er tvímælalaust Shady
Owens. Hún á það skilið, og
Shady syngur aðallega bítla-
lög. En sú söngkona yngri
kynslóðarinnar sem einna
minnst hefur borið á, og á
það alls ekki skilið, er Þur-
íður Sigurðardóttir.
Það er kannske skiljan-
legt, því að allt frá því að
hún byrjaði að syngja að
staðaklri, fyrir rúmum tveim
árum, hefur hún sungið á
sama stað, og ein hefur hún
aðeins sungið inn á eina
plötu. Það var núna nýlega,
og þá komst fólk að því, að
Þuríður er alveg fvrirtaks
söngkona.
Við Iieimsóttum hana um
daginn á heimili hennar,
Laugarneshúið, þar sem liún
býr með foreldrum sínum
og systkinum — ásamt 10—
12 hestum — og röbbuðum
við hana um liitt og þctta;
aðallega þetta:
Ilún kom fyrst fram þegar
hún var 1(3 ára. Nú er hún tví-
tug, frekar hávaxin og grönn,
með skolleitt hár og fallegt
bros. En brosið er ekki ])að
eina sem er fallegt við Þuru,
hún er í alla staði gullfalleg
stúlka, og kunningi minn
sagði mér einu sinni að ef
hann væri eitthvað niður-
dreginn, þá færi liann bara
inn á Röðul og horfði á Þuru
syngja. Það er mörgum allra
meina hót að horfa á fallegt
kvenfólk.
En bezt er að láta hana
sjálfa tala, og hún segir okk-
ur frá því hvernig það at-
vikaðist að liún fór út i söng-
inn.
„Þá var ég 16 ára,“ segir
14 VIKAN
48. tbl.