Vikan


Vikan - 27.11.1969, Blaðsíða 28

Vikan - 27.11.1969, Blaðsíða 28
 FRÚ ARNDtS ELLERTSDÖTTIR Þetta er mjög gömul uppskrift, sem amma mannsins míns, frú Margit Vibe-Lund, bakaði alltaf fyrir jólin. Eg hef ákveðið að halda þessari uppskrift við lýði og nota hana á hverjum jólum sem „jólaspesialitet“, hvað snert- ir smákökur. 750 g ljóst sýróp 250 g smjör (eða smjörlíki) 250 g sykur 2 tesk. pottaska (uppleyst í svolitlu öli). Þetta er látið í pott og hitað upp að suðumarki. — Síðan er blandað saman við: 1 kg hveiti 1 tesk. kanell 1 tesk. negull 1 tesk. engifer 1 tesk. kardimommur 125 g malaðar möndlur 75 g fínskorið súkkat 50 g sykraður appelsínubörkur rifinn börkur af 1 sítrónu. Deigið á helzt að bíða 1 viku á köldum stað (ekki í ísskáp), flatt þunnt út, skorið út með glasi, pikkað svolítið í þær og svo eru kökurnar bakaðar við meðal hita. FRÚ NÍNA GÍSLADÖTTIR 4 eggjahvítur 150 g sykur 200 g hakkaðar möndlur V2 tesk. lyftiduft. Eggjahvíturnar stífþeyttar, síð- an er sykrinum, möndlunum (hakkaðar með hýðinu) og lyfti- duftinu bætt út í. Bakað í velsmurðu hringformi í um það bil 45 mínútur, eða þar til kakan losnar frá. Hiti 300 gr. Það má nota kökuna sem des- ert og hafa þá ís með henni, eða búa til á hana súkkulaðiglassúr, bera fram með þeyttum rjóma og skreyta, t. d. með jarðarberj- um. Glassúr búinn til úr: flórsykri, kakó, linu smjöri og sterku kaffi. FRÚ KRISTiN BERNHÖFT 1 bolli smjörlíki (175 g) % bolli strásykur % bolli púðursykur 2 egg, hrærð saman 2t4 bolli hveiti V2 tesk. salt 1 tesk. Iyftiduft V4, tesk. vanilla 1 bolli möndlur 400 g Sirius suðusúkkulaði. Einnig má hafa minna af möndl- um og setja í staðinn 1 bolla af rúsínum (Sun-Maid). Þetta er hrært deig, sett á plötu með 2 teskeiðum, bakað í ca. 10—15 mín. við 300—400 gr. F. Þessar kökur breiða sig dálít- ið út á plötunni. £8 VJKAN 48- tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.