Vikan


Vikan - 27.11.1969, Page 20

Vikan - 27.11.1969, Page 20
Byrði stórveldisins er þung. Þótt flestar þjóðir sem einhvern- tíma hafa axlað þá byrði minn- ist stórveldistíðarinnar sem dýrðlegasta tímabils sinnar sögu, þá litu margir þeirra, sem lifðu þau tímabil, öðruvísi á málin. Einkenni mikilla stórvelda eru oft köld stífni, hroki, hræsnisfull siðavendni, skattpínsla, styrjald- ir. Þessvegna hefur mörgum þjóðum farið svo, að þegar þær um síðir losnuðu við byrði stór- veldisins, þá vörpuðu þær önd- inni guðsfegnar og fóru að skemmta sér. Tímar léttlyndis og lausungar fylgja jafnan í kjölfar stórveldistímabila. Bretland eftir síðari heimsstyrjöld er að vissu marki dæmi um þetta, svo og Svíþjóð eftir dauða Karls tölfta; þá var Bellman uppi. Og í Frakk- landi sagði sama fyrirbrigði til sín að Lúðvík fjórtánda liðnum. Á tímum sólkonungsins í Ver- sölum hafði vegur Frakklands orðið meiri en nokkru sinni fyrr eða síðar; sigrar Napóleons voru, þegar allt kom til alls, aldrei annað en örvæntingarfull tilraun til að endurheimta fyrir Frakk- land það, sem það þegar hafði endanlega misst. En vegsemdin varð þjóðinni þungur baggi. Al- þýða manna var sárþjáð af kvöðum og skattaálögum, sem fóru til að standa straum að hirð- dýrðinni í Versölum og lang- vinnum og blóðugum landvinn- ingastríðum sólkonungsins, sem hann um síðir hafði lítið upp úr nema skaðann og skömmina. Þegar Lúðvík fjórtándi var allur, mátti með sanni segja að Bretar væru búnir að taka frumkvæðið í heimspólitíkinni úr höndum Frakka. Frakkland var að vísu stór- veldi áfram, en ekki jafn öflugt og áður. Og fólkið fann til léttis, ríkrar þarfar til að slappa af og létta sér upp eftir alla þessa þungu og tilgerðarlegu barok- dýrð, sem einkennt hafði stjórn- artíð Lúðvíks fjórtánda. Þar gekk á undan með góðu fordæmi Fil- ippus hertogi af Orléans, bróður- sonur Lúðvíks, sem stýrði Frakk- landi sem ríkisstjóri næstu árin eftir lát föðurbróður síns, en hinn nýji konungur, Lúðvík fimmtándi, var þá ennþá ómynd- ugur. Filippus þessi var næsta ólíkur frænda sínum gamla, ær- ingi og háðfugl sem hæddist að trúarbrögðum og yfirleitt öllu, sem bar svip af formfestu og hátíðleik. Árið 1723 varð Lúðvík fimm- tándi myndugur, þá aðeins barn að aldri. Sama ár hafði Filippus hertogi orðið bráðkvaddur; valdamesti maður ríkisins um hríð varð nú forsætisráðherrann, hertoginn af Bourbon, sonarson- ur Condés, sem var einn beztu hershöfðingja Lúðvíks fjórtánda. Helzta afrek þessa hertoga var að koma til leiðar hjónabandi Madame de Pompadour í öllu sínu veldi, er hún var einráð í rekkju Frakkakonungs og þar með yfir Frakklandi öllu. k

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.