Vikan


Vikan - 11.12.1969, Page 20

Vikan - 11.12.1969, Page 20
— Finnst þér ættjarðarástina vanta? — Mér finnst hana alveg vanta, já. Ég hef talað við ung- linga, sem segja að þeim sé al- veg sama hvort þeir væru ís- lendingar eða eitthvað annað. Svona nokkuð hefðum við, ég og mínir félagar, ekki getað sagt í gamla daga. Nú orðið búa svo margir fslendingar erlendis, og það er engu líkara en það þyki fínt að vera fæddur í stóru heimsborgunum, New York og Kaupmannahöfn og London! Þetta breytist allt með breyttum tímum. Það er kannski sama líka, hvar maður er fæddur, bara ef maður er almennileg mann- eskja. Myndin sem prýðir vegginn er altaristafla úr Grímstungukirkju í Vatnsdal, gerð 1782 af Jóni Hallgrímssyni frá Kast- hvammi í Laxárdal, S.Þing. Við höfðum alltaf morgun- söng í skólanum, og það held ég hafi haft drjúg áhrif til að við- halda þessu andrúmslofti. Aðal- lega voru sungin ættjarðarkvæði, en innan um var kannski einn og einn sálmur eftir Matthías. Þið hafið vitaskuld fylgzt vel með bókmenntum samtím- ans? — Ojá, það var bókasafn í skólanum frá upphafi. Eitthvað mun hafa brunnið af bókum með skólahúsinu á Möðruvöllum, ég held þó furðu lítið. Það var stafli af pokum í skáp í bókasafninu, og þegar brann, voru bækurnar látnar í pokana og þeim hent út um gluggann. Með því móti mun hafa tekizt að bjarga miklu fleiri bókum en ella hefði orðið. — Faðir þinn var sem sagt í senn bóndi og kennari, fyrir ut- an margt annað. Hann hlýtur oft að hafa átt strangan dag. — Já, hann átti oft erfitt, því að auk annars var hann alltaf heldur heilsutæpur. Á þessum árum var hann á ferðalögum og skrifaði Flóru íslands. Hún kom út 1901. Hann ferðaðist um land- álar, reyktir lundabaggar og annað þetta góðgæti, sem fólki þótti þá. Laufabrauð var alltaf bakað, mikið af því, og svo jólakökur, gyðingakökur og fleira. En raunar var tilbreytnin í mat óvíða mikil; aðstaða varla til þess. Þegar ég man fyrst eft- ir, mátti heita að það væru hlóð- ir á hverjum bæ. En heima hjá Þetta langspil var í eigu afa Huldu, Stefáns Stefánssonar frá Heiði í Göngu- skörðum. y: v.y.y, i mmmm ■ • —M ■iillii I I ' I X ; ■ ^7' ’ / v/,/, ■ Á 1?« L ■ ■ S ÞÁ HREIFST MAÐUR FRÁ HVIRFLI TILIUA ið mestallt til að safna í hana efni. Það var mikið starf, því að heldur lítið hafði verið gert að þessu áður. Raunar hjálpaði Ol- afur Davíðsson pabba talsvert við þetta, þegar hann var veik- ur. Ólafur var minn fyrsti kennari og mikill vinur okkar krakkanna. Hann var sérkenni- legur maður um margt, ákaflega vel viti borinn og mikill afkasta- maður, þótt ekki væru allir dag- ar fullir vinnudagar hjá honum. — Nú fara jólin í höndy með öllu sem þeim fylgir. Eg geri ráð fyrir að þú sjáir nokkurn mun á þeim nú, frá því sem þau voru á bernskuárum þínum fyr- ir norðan. — Mér finnst jólin hafa verið mikið hátíðlegri áður; það er bú- ið að taka af þeim hátíðleikann. Eða kannski væri réttara að segja að við hefðum tekið þetta frá okkur sjalf, Nú leggur fólk ákaflega mikið upp úr jólagjöf- um og öllu þessu umstangi. Um- stangið var raunar fyrir hendi í gamla daga líka, því að margt þurfti að gera. Allir á heimilinu þurftu að fá nýja flík, og þar sem margt fólk var þurfti mik- ið að baka. Það voru ákveðnar kökutegundir og ákveðinn mat- ur sem hafður var til jólanna, hangiket og grjónagrautur, mag- mér var eldavél. En ég held að óhætt sé að segja að víðast hvar hafi verið hlóðir framundir fyrri heimsstyrjöld. Þá fóru að koma litlar eldavélar. Það var gert vegna upphitunarinnar, því að annars var engin upphitun á bæjunum. — Hvernig var hátíðahöldun- um sjálfum háttað, í stórum dráttum? — Fyrst var lesinn lesturinn, áður en setzt var að borðum. Yfir jólin borðuðu ævinlega all- ir saman. Annars borðuðu pilt- arnir í sinni borðstofu, og vinnu- fólkið við stórt borð í eldhúsinu. Og gamla fólkið — á heimilinu voru ömmur mínar báðar og afi — það borðaði uppi á lofti, hvert á sínu rúmi og var skammtað. En á jólunum voru allir við sama borð. Pabbi las lesturinn og svo var sungið. Hljóðfæri var ekki, nema langspih sem afi minn átti, og á það spilaði hann sálmana. Yfir þessari máltíð hvíldi alltaf ákaflega mikill hátíðleiki. Um gjafir var ekki hugsað, því að þær tíðkuðust ekki þá, nema hvað til þess var séð að allir fengju nýja flík, til að enginn færi í jólaköttinn. Það þurfti ekki að vera mikið, piltarnir fengu kannski milliskyrtu og krakkarnir skó. En Valtýr bróð-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.