Vikan - 12.02.1970, Qupperneq 7
þjóðlagasöng? Ég heí mjög mik-
ið yndi af söng og hef allgóða
rödd og hef oft verið spurð að
því, hvers vegna ég lærði ekki
að syngja. En satt að segja hef
ég ekki hugmynd um, hverjir
taka að sér að leiðbeina fólki og
segja því hreinskilnislega hversu
mikla hæfileika það hefur í þessa
átt. Ég er fremur hæglát og
feimin og get alls ekki hugsað
mér að fara að troða einhvers
staðar upp og syngja, án þess að
hafa fengið einhverja kennslu
eða leiðsögn áður.
Svaraðu mér fljótt. Með fyrir-
fram þakklæti.
Ein söngelsk.
Langflestir daegurlagasöngvarar
hafa víst lítið sem ekkert lært
aff syngja og ekki nema fáir
þeirra kunna meira aff segja aff
lesa nótur, sem hlýtur þó aff vera
frumskilyrðiff til þess að geta
lært ný lög og sungið rétt. Okk-
ur lízt prýffilega á það sjónar-
miff þitt aff fara ekki aff syngja
opinberlega, fyrr en þú hefur
lært eitthvað. Söngnám hlýtur
aff auka sjálfstraust þitt og
stuðla aff miklu betri árangri en
ella. Söng er hægt aff læra í Tón-
listarskólanum og ennfremur hjá
einkakennara, en margir kunnir
söngvarar taka nemendur í
einkatima, svo sem María Mark-
an, Stefán fslandi og Guffrún Á.
Símonar, svo aff örfá nöfn séu
nefnd. Það ætti því ekki að vera
erfitt fyrir þig aff öfflast þá leiff-
sögn o>>r þjálfun sem þarf til aff
hæfileikar þínir fái notið sín sem
bezt.
Líta niður á Tónabæ
Kæri Póstur!
Við erum hér nokkrir 17 og 18
ára unglingar, sem langar til að
leggja fyrir þig eina spurningu:
Hvers vegna líta allir jafnaldr-
ar okkar niður á Tónabæ?
Það hefur ekki alltaf verið
svona, að minnsta kosti ekki
fyrst eftir að staðurinn var opn-
aður. Fyrir nokkrum vikum fór-
um við þangað á laugardags-
kvöldi og skemmtum okkur
prýðilega. Þegar við svo sögðum
öðrum kunningjum okkar að við
hefðum farið þangað, litu þeir
bara niður á okkur.
Við viljum skora á unglingana
á þessum aldri að koma einhvern
tíma á ball, það er að segja séu
þau ekki of gömul til að koma
þangað.
Fyrir hönd okkar skrifar:
Arnheiður Sigurjónsdóttir.
Ekki vissum viff það fyrr, aff
unelinear litu niffur á Tónabæ.
Starfsemin þar virðist hafa geng-
iff framar öllum vonum og staff-
urinn njóta hinna beztu vin-
sælda. En líklega er hann mest
sóttur af yngstu unglingunum, ef
svo má aff orffi komast. Ætli
ástæðan til þess aff kunningjar
ykkar fitja upp á nefið yfir
Tónabæ, sé ekki eingöngu sú, aff
þeir telji sig upp úr því vaxna
aff sækja slíkan staff og séu nú
farnir aff hugsa „hærra“. Annars
væri frófflegt aff heyra álit fleiri
unglinga á þessu máli.
Hvernig á ég að
krækja í hann?
Kæri Póstur!
'Ég er áskrifandi Vikunnar, og
ástæðan til þess að ég skrifa þér
er sú, að ég hef tvisvar áður
skrifað til þáttarins „Mig
dreymdi" og í bæði skiptin rætt-
ust draumarnir alveg eins og
spáð var.
En núna er ég í herfilegum
vanda. Fyrir tveimur árum
kynntist ég strák (þá var ég
þrettán ára), sem er einu ári
eldri en ég Ég var með honum
í eitthvað tíu daga, en þá þurfti
ég að fara heim. Við vorum sam-
an í sveit. Við vorum búin að
ákveða að hittast, þegar hann
kæmi heim. En ekki talaði
stráksi við mig, þegar hann kom
í bæinn. Samt hef ég alltaf beð-
ið og vonað. Hann er í sama
skóla og ég, og sé ég hann því
oft á böllum. En ég get ekki tek-
ið í mig kjark og boðið honum
upp, því að ef hann neitar, þá
er mér allri lokið. Ég get ekki
hringt til hans, því að hann hef-
ur engan síma. Ég get ekki
gleymt honum.
Elsku Póstur! Gefðu mér nú
ráð, svo að ég geti krækt í hann.
Að lokum ætla ég að spyrja
þig einnar spurningar: Lestu öll
bréf sem þér berast?
Ein sem vonast
eftir góðu ráði.
P.S Hvernig er skriftin? —
Þakka fyrir allt gamalt og gott
í Vikunni.
Á næsta balli skaltu ekki hika
viff að ganga beint til hans,
hneigja þig fallega, brosa eins
blítt og þú getur og bjóffa hon-
um upp. Það eru afar lítil lík-
indi til þess, aff hann neiti aff
dansa viff þig, jafnvel þótt hann
elskj þig ekki eins heitt og hann
gerffi í sveitinni. Og jafnvel þótt
hann verffi svo dónalegur að gera
þaff, þá veiztu þar meff vissu
þína og getur hætt aff hugsa um
hann og gera þér gyllivonir. —
Óvissan er verst. En ætli hann
sé ekki bara feiminn og upn-
b»rffarlaus — alveg eins og þú?
Ástarævintýri sem hefjast í
sveitasælunni, eru oft lífsseigari
en önnur. — Auffvitaff lesum viff
öll bréf, sem okkur berast. Hvað
annaff? — Skriftin er i meffal-
lagi.
Strákurinn, sem ég er með,
gaf mér minnsta kveikjara sem
ég hef séð — svo lítinn að ég fæ
varla nógu litla steina I hann.
Annar strákur gaf mér kveikjara,
sem hann keypti í siglingu
— honum er fleygt þegar
hann er tómur. Ekki mon ég,
hvorn ég lét róa fyrr,
kveikjarann eða strákinn.
Ég er alltaf að kaupa
eldspýtur, en þær misfarast
með ýmsum hætti.
En eld þarf ég að hafa.
Hver vill
gefa mér
RONSON?
TILVALINN TIL TÆKIFÆRISGJAFAR
Mig langar svo í einhvem af þessum
Milady gas kveikjari
Comet gas kveikjari
Adonis gas kveikjari
Empress gas kveikjari
Til gefenda RONSON kveikjara: Áfyllingin tekur
5 se:kúndur, og endist svo mánuSum skiptir. Og
kveikj arinn — hann getur enzt aS eilifu.
RONSON
EinkaumboS:
I. Guðmundsson t Co. hf.
7 tw VIKAN 7