Vikan


Vikan - 12.03.1970, Blaðsíða 5

Vikan - 12.03.1970, Blaðsíða 5
MARIANNE FAITHFUL Ósjálfrátt kannast maður við nafn þessarar ensku leikkonu, sem einu sinni bjó með Mick Jagger. Hún er tuttugu og þriggja ára og á fjögurra ára gamlan son, sem heitir Nicholas. Hún átti hann með eiginmanni sín- um, sem er listaverkasali. Drengurinn er hér með móður vísur vikunnar Öld vor er sögð af spjátri spillt spurt er þó lítið að sökum með dárlegu fasi daegur hvert dýrtíðin ríður þökum. Brýtur nú flest í bága við boð vorra kristnu fræða líkast til var hér lítið á Lútherstrúnni að græða. Menningu vorri miðar hægt mun hana eitthvað dvelja aðgang að portum annars heims atvinnumiðlar selja. En ráðsmenn Drottins hér reisa fjöld rándýrra kirkjubákna. Sérð' ekki Garún svartan blett á samvizku fleiri djákna. korn sinni á flugvelli i London, og virðist vera feiminn, því hann felur sig bak við loðfeld móður- innar. En hún er á leið til að heimsækja vin sinn, leikstjórann Mario Schiffano, í Róm. En hún segir: — Ég hef engan hug á að giftast honum, ekki frekar en Mick Jagger. • Er fjárdráttarmál eitt var tekiff fyrir í rétti í París, kom vitni í vitnastúkuna. Hvert er nafn yffar, spurði rannsóknar- dómarinn? Crowschezev-Kchou- westerwez, var svariff. Hvernig í ósköpunum skrií'ið þér þaff? Meff bandstriki! • Istvan Szechyeni var frægur ungverskur greifi og vís- indamaffur. Hann varff vitskert- ur og læknar töldu, aff hið eina sem gæti hjálpaff honiun væri aff tefla skák. Ungur stúdent var því fenginn til aff tefla viff greif- ann og fékk hann álitlega upp- hæff fyrr. Eftir sex ár varff greif- inn aftur heilbrigffur, en stúd- cntinn fékk ólæknandi sinnis- veiki. • Lífiff er auffugra af þeirri ást, sem fór til spillis. — Tagore. • Talan 13 er mjög mikil happatala á italíu. Og til marks um þaff eru stúlkur vanar að hafa þrettán gripi á talnabandi sínu, sem vernd gegn freistaran- um. YFIR TVÆR MILLJÓNIR KRÖNA FYRIR AÐ FLJÚGA MEÐ VÖÐVAAFLI Maðurinn í apparatinu þarna heitir Mike Dolling og býr í Swindon í Wiltshire á Englandi. Hann er sannfærður um að hann geti flogið á vöðvaafli einu sam- an með því að hagnýta sér flug- tækni leðurblökunnar, sem hann fullyrðir að fljúgi betur en nokk- ur fugl. Fyrsta „flugvélin“ hans, sú sem sést á myndinni, komst ekki fet frá jörðu hvernig sem hann lét, en nú ætlar hann að búa til aðra úr balsatré og alúm- íni, og eiga vængirnir að öllu leyti að vera eftirmynd leður- blökuvængja. Dolling er ekki eini Bretinn sem er að fikta við þetta. 1959 lofaði brezki iðnjöfurinn Henry Kremer hárri fjárhæð hverjum þeim er flogið gæti á vöðvaafli eina mílu enska, eða rúma sex- tán hundruð metra. Síðan hafa aðrir aðilar bætt við fjárhæðina, svo að nú orðið nemur hún tveimur milljónum. Flestir þeir sem sérfróðir kall- ast í flugi eru á einu máli um að Dolling muni mistakast, sem og öllum öðrum er reyni að fljúga á þennan hátt. IX. tb! VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.