Vikan


Vikan - 12.03.1970, Blaðsíða 47

Vikan - 12.03.1970, Blaðsíða 47
MIOA PRENTUN HILMIR HF SKIPHOLTI 33 - SlMI 35320 sinni. — Látum hann aðeins í friði, sagði hann. — Segðu okk- ur nú alla söguna. Frú Braddock fór að þurrka sér um augun og Benjamín settist. — Jæja, sagði herra Braddock og tók fram stól. — Eruð þið búin að ákveða hvenær? — Nei. Frú Braddock settist og tók í aðra hendina á syni sínum. — Ertu búin að segja Robin- son-hjónunum frá þessu. — Nei. — Hringjum snöggvast í þau. — Nei. — Ó, sagði herra Braddock, — ég skil. Þú vilt bíða aðeins með það. — Ó, Ben, sagði frú Braddock og fór að gráta aflur. Beniamín ræskti sig. Ég held það sé betra að þið vitið af því, sagði hann, — en Elaine veit þetta ekki ennþá. Frú Braddock hætti að þurrka sér um augun og lét vasaklútinn síga hægt og rólega. — Veit hún ekki hvað ennþá? spurði herra Braddock. — Að v’ð ætlum að giftast. — Hvað? — Það er svona klukkutími síðan ég ákvað það. Herra Braddock leit á konu sma og síðan á Beniamín. —- Þú hlvtur þó að hafa talað um þetta við hana? Beniamín hristi höfuðið. — En þú hefur þó skrifað henni? — Nei. — Hringt í hana? — Nei. — Guð minn góður. Ben. sagði herra Braddock. — Þú æsir okk- u.r upp og ætlarðu svo að segia okkur að bú hafir ekki beðið hennar ennbá? — Einmitt. Herra Braddnck stóð unn og benti á ferðat^sVupa á gólfinu. —; Hvað er með þetta? — Ég ætla að keyra upp til Berkeley í dag. — Og biðja hennar? — Já. — Jæja, sagði herra Braddock, tók við vasaklútnum af konu sinni og setti hann í vasann. — Þetta hliómar hálf-ankannalega. Til hvers ætlar þú að fai'a með farngur með þér? — Ég er að flytja. — Og búa þar? — Já. — Ben? sagði frú Braddock og horfði á hann. — Við héldum að þú . . . — Hægan lagsi, sagði herra Braddock. — Hún er þarna upp- frá að ljúka við skóla og þú ætlar bara að fara þangað og búa í nágrenni við hana? — Já. — Ben, þú getur ekki gert það. — Ég ætla nú samt að gera það. — Seztu niður og skrifaðu henni, sagði herra Braddock. — Hringdu í hana. Gerðu eitthvað annað en að fara þangað og angra stúlkuna einfaldlega vegna þess að þú hefur ekkert annað að gera. — Ég elska hana, sagði Benja- mín. Hann stóð upp og beygði sig niður til að kyssa móður sína á kinnina. Svo tók hann ferða- töskuna og koddann upp af gólf- inu. — Ben, hlustaðu á mig, sagði faðir hans. — Ég er viss um að þú elskar hana. Og mér lízt ljóm- andi vel á þetta. Þú og Elaine. En drottinn minn dýri! Benjamín gekk að dyrunum. — Þú þekkir stúlkuna ekkert, Ben. Hvernig veiztu að hún vill giftast þér? — Hún vill það ekki — ennþá. — Nú? Ja — er ... henni hlýtt til þín? Líkar henni við þig? — Nei. — Guð minn almáttugur, Ben! sagði herra Braddock og fórnaði höndum um leið og hann sté eitt skref áfram. — Þú getur ekki vaðið þarna upp eftir og ruðzt inn í líf hennar svona? Benjamín opnaði dyrnar. — Ég sendi ykkur heimilisfangið mitt, sagði hann. Klukkan var farin að nálgast fimm þegar hann kom til Berka- ley og göturnar voru fullar af fólki og bílum. Hann komst inn á aðalgötuna og lagði fyrir fram- an hótel. Um stund stóð hann og horfði á stúdentana sem fylltu allar götur og fór svo inn. Gamall maður við afgreiðsluborðið leit upp frá dagblaðinu sínu. — Eru nokkur herbergi laus? spurði Benjamín. Maðurinn kinkaði kolli. — Með síma? — Sum. — Gott, sagði Beníamín, — ég ætla þá að ná í farangurinn minn. Hann snerist á hæl og gekk til dyra en stanzaði og gekk aftur til mannsins. — Nokkur góð veitingahús hér í nágrenninu? — Niðri á horni. Beniamín þakkaði fyrir sig og eekk niður á götuhornið. Eftir að hafa farið vandlega yfir mat- seðilinn sem var límdur í glugg- ann, fór hann inn og leit í kring- um sig; valdi borð. Þjónustu- stúlka birtist við hlið hans með matseðilinn. — Eg var að spekúlera í hvort ég þyrfti að gera pöntun áður en ég ætlaði að borða hér í kvöld. — Þér getið það hvort sem heldur, herra. — En verður ekki orðið skrambi margt hérna um átta- leytið? — Það er erfitt að segja um það. Benjamín kinkaði kolli. — Jæja, sagði hann, — viltu þá taka frá borð fyrir mig. — Nafn? — Braddock. Herra Benjamín Braddock. — Borð fyrir hve marga? — Bara tvö? — Tvo? — Já, sagði Benjamín, — og — gætum við fengið þetta borð þarna í horninu? Hann benti í fjarlægasta hornið. — Alveg eins og þér óskið, herra minn. í herberginu hans var sími á borði við hliðina á rúminu. Hann settist og horfði á hann lengi vel án þess að snerta hann. Loks tók hann tólið upp, en skellti því nið- ur áður en miðstöð svaraði. Hann stóð upp og gekk út að glugganum. Á götunni fyrir neð- an var allt morandi í stúdentum og öðrum íbúum borgarinnar; sumir rápuðu á milli búða og aðrir stóðu í smáhópum og töl- uðu saman. Benjamín horfði á þá um stund en fór svo úr og í bað. Síðan skipti hann um föt og greiddi sér vandlega. Þá sett- ist hann við símann, ræskti sig og tók upp tólið. — Halló? sagði hann þegar miðstöð svaraði. — Gætuð þér gefið mér símanúmerið hjá El- aine Robinson? Hún er hér í háskólanum. Framhald í næsta blaði. Hringur soldánsins Framhald af bls. 21 augun eru stór eins og mylluh|ól og svört eins og nóttin. — Það er vegna þess að ég reykti þennan óþverra, sem Grafton gaf mér. — Það datt mér í hug. Var það gott? — í fyrstu er það gott, maður verður svo blessunarlega laus við áhyggjur. En svo er eins og beinin morkni og heilinn verður eins og lopi, það er ekki hægt að hugsa. Ó, Charles, veiztu að þeir verzla með eiturlyf? — Ég veit það, ástin mín. Leth- man sagði mér sitt af hverju, hann virtist varla vita hvað hann talaði um. Vissir þú að hann er eiturlyfja- neytandi? — Grafton sagði það. Talaði hann nokkuð um andlát Harrietar frænku? Sagði hann þér að hún væri dáin? — Ég vissi það. Ég leit undrandi á hann. — Áttu við að þú hafir vitað það allan tímann? — Já. — Hvernig vissirðu það? — Það voru auðvitað getgátur til að byrja með. Vissir þú ekki að hún hafði líka ofnæmi fyrir köttum? — Hún? Það hefi ég aldrei heyrt. En nú skil ég. Þú varst svo skrltinn, þegar ég sagði þér að bað hefði verið köttur í rúminu hennar, þér fannst það ekki geta fallið inn í myndina. — Eigum við ekki að reyna að komast eitthvað. þar sem við getum séð hvað er að ske? Við fórum að leita fyrir okkur eftir einhverri leið upp á klettinn. — Sagan af kettinum gerði mig grunsaman. Þá reiknaði ég með því 11. tbi. VIKAN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.