Vikan


Vikan - 12.03.1970, Blaðsíða 31

Vikan - 12.03.1970, Blaðsíða 31
Benjamín hrökk við og leit á hana. — Er það ekki? sagði hún aft- ur. — Ég man það ekki. — Förum þangað. — Á Taft-hótelið? — Já. — Bíddu aðeins, sagði hann og hristi höfuðið. — Það er svo langt í burtu. —- Nei, aðeins tveir eða þrír kílómetrar. — Já. En kannske er enginn bar þar. — Við skulum athuga það. — En Elaine, sagði hann, — ég — hérna — hvers vegna datt þér Taft-hótelið í hug? Hún snéri sér við í sætinu og horfði á hann. — Hvað er að? — Ekkert, sagði hann. — Ég meina — ég var bara að velta því fyrir mér hvort þeir hafa bar eða ekki. Við skulum athuga það. Já, við skulum athuga hvort þeir hafa bar þar eða ekki. Þau gengu inn í Veranda- salinn og Elaine valdi borðið í horninu við gluggann. Benjamín tók af henni kápuna og þau sett- ust. Elaine leit út um gluggann um stund, en svo snéri hún sér að Benjamín. — Mér finnst eins og ég hafi verið hér áður, sagði hún. — Er ekki danssalur hérna? — Ég veit það ekki. — Jú, ég held það. Mig minn- ir að ég hafi komið hingað ein- hverntíma í einkasamkvæmi. Benjamín kinkaði kolli án þess að líta á hana. Elaine opn- aði munninn til að segja eitthvað meira, en hætti við það og yggldi sig í áttina að anddyrinu. Hún beygði sig áfram og lagði aðra hendina á handarbak Benjamíns. — Það er einhver maður þarna sem glápir á okkur, sagði hún. Benjamin hristi höfuðið. — Einn lyftuþjónanna, sagði hún. —• Hann starði á okkur þegar við komum inn og gerir það enn. — Elaine, komdu. — Sjáðu, sagði hún. — Þeir eru orðnir tveir. Þeir tala um okk- ur. — Elaine — — Þeir standa þarna og glápa á okkur. Ég er viss um að þeir eru að tala um okkur, því ann- ar var að benda á okkur. Skyndilega kom þjónustu- stúlkan og setti tvö glös á borð- ið. Síðan fór hún. Elaine leit upp og starði á eftir henni. — Hvað er að ske? sagði hún. Benjamín ræskti sig. — Benjamín? — Elaine, komdu. — Hvers vegna kom hún með þessi glös? — Ég pantaði um leið og við komu minn. — Nei, þú pantaðir ekki um leið og við komum inn. — Drekktu bara úr glasinu þínu. — Hvað? — Drekktu. — En henni hafa orðið á mis- tök. Benjamín hristi höfuðið. — Nei, sagði hann. — Ég pantaði um leið og ég kom inn. — Nei! — Elaine, ég pantaði þetta, sagði hann. ■— Ég hvíslaði þessu að henni um leið og við gengum framhjá henni. — Af hverju segirðu þetta? — Þetta er satt! — Nei! — Drekktu úr glasinu þínu! Hún leit á glasið á borðinu fyr- ir framan hana. — Þetta er ekki það sem ég vildi. —- Fjandinn hafi það! Benja- mín þreif glasið, sem var fullt af Martini, og kláraði úr því í einum teyg. —• Benjamín, hvað er að ske? — Ekkert. — Jú, eitthvað er á seyði hér. Hvað er það? — Mér líkar ekki þessi staður. — Hvers vegna? — Af því bara. — Hvers vegna laugstu að mér þessu með glösin? — Það var ekki lygi. — Af hverju ertu þá svona æstur? — Komdu! sagði Benjamín og stóð upp. Hann var rétt búinn að henda borðinu um koll, um leið, tók kápu Elaine af stólnum við hliðina á borðinu og rétti henni hendina, eftir að hafa hent nokkrum smápeningum á borðið. — Komdu! Komdu! Hann flýtti sér á undan henni út úr Veranda-salnum og fram í anddyrið. Afgreiðslumaðurinn brosti þegar hann sá hann og sagði: — Gott kvöld, herra Gladstone. Benjamín flýtti sér framhjá honum. — Benjamín? sagði Elaine. — Komdu! Hann dró hana út. — Benjamín? Þekkja þeir þig hérna eða hvað? Þau gengu út um dyrnar og út að bílastæðinu. Benjamín opnaði dyrnar fyrir hana og lét hana hafa kápuna. — Viltu fara inn? sagði hann. — En . . . Benjamín? — Djöfull! Inn með þig, Elaine! Hún fór inn í bílinn og Benja- mín lokaði á eftir henni; fór síðan inn hinum megin. Um leið og hann hafði lokað á eftir sér byrgði hann andlitið í höndum sér og hristi höfuðið. í dágóða stund sat hann þannig. -— Elaine, sagði hann að lokum. — Mér líkar við þig. Mér líkar afskap- lega vel við þig. Hún horfði á hann en svaraði ekki. — Trúirðu því, Elaine? Hún kinkaði kolli. — Trúirðu því? — Já. — Þú — þú ert fyrsta mann- eskjan í langan tíma sem mér hefur líkað við. Fyrsta persónan sem ég hef getað afborið að vera með. Hún tók með hendinni í aðra hendina á honum og dró hana frá andliti hans. — Ég mei'na — þetta líf virð- ist allt vera svo tilgangslaust. Þetta er ekki neitt neitt. Hann hikaði andartak en dró svo hend- ina að sér og hristi höfuðið. — Mér þykir fyrir þessu, sagði hann og fór í vasann eftir bíllyklun- um. — Ég skal fara með þig heim. Hún horfði á hann setja bílinn í gang. — Benjamín? sagði hún svo. — Já? — Heldurðu við einhverja konu? Benjamín stirðnaði. Elaine hristi höfuðið. — Fyr- irgefðu, sagði hún. — Elaine? — Fyrirgefðu, endurtók hún. — Mér kemur þetta ekkert við. Benjamín snéri lyklinum ró- lega til baka og drap á bílnum. I nokkrar mínútur starði hann á höndina á sjálfum sér, en svo út um gluggann. — Það skeði SKEMMTILEG FRAM H ALDSSAG A í SÉRFLOKKI. bara, sagði hann. — Bara eitt- hvað andstyggilegt sem skeði með öllu hinu. Hann leit á ahna. — Skilurðu það. Geturðu skilið það, Elaine? Hún kinkaði kolli. — En hvað finnst þér um mig? — Hvað? — Já, hvað finnst þér um mig núna? Hún kinkaði kolli. — Hvað finnst þér? Elaine yppti öxlum. — Ég held að þú haldir við einhverja konu, sagði hún. — Hvað annað á ég að halda? — Fyrirlíturðu mig? Hún leit á hann. — Er það ekki, Elaine? Hún tók aftur í hendi hans. •— Benjamín? sagði hún — Var hún gift? Hann kinkaði kolli. — Fjölskylda? — Sonur. Já, hún var gift og átti son. — Komust þeir að því? — Nei. — Og nú er allt búið? — Já. Elaine hristi höfuðið. — Hvers vegna ætti ég að fyrirlíta þig? sagði hún. — En Elaine — ég meina . . . sagði hann um leið og hann sneri sér að henni, — hvað ef það væri einhver sem þá þekkt- ir? Hvað myndi þér þá finnast? — Ég veit það ekki. — Myndirðu hata mig? — Það held ég ekki, sagði hún. — Var það? — Hvað? — Var það einhver sem ég þekki? — Nei. — Bara kona sem þú hittir á bar? Benjamín kinkaði kolli. — Og var hún einmana og leið og allt það? — Já. — Jæja, þá reikna ég með að þú hafir létt af henni leiðind- unum. Ég meina — mér kemur þetta í rauninni ekkert við. Mér þykir fyrir því að ég skuli vita þetta. — Nú? — Ja, það virðist valda þér einhverjum áhyggjum að ég skuli vita það. — Elaine, það veldur mér Framhald á bls. 45 n. tbi. VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.