Vikan


Vikan - 12.03.1970, Blaðsíða 21

Vikan - 12.03.1970, Blaðsíða 21
— Hvernig líður þér, hér er tölu- verður reykur. Það var það reyndar. Ef mér hefði verið mögulegt að finna til hræðslu, þá hefði ég gert það þarna. Við fálmuðum okkur niður hringstigann, — mjög hægt, því að við sáum ekkert fram fyrir okkur; það gat orðið lífshættulegt fyrir okkur að verða fyrir meiðslum. Svækjan var óbærileg, reykurinn var svo mikill að okkur logsveið í háls og lungu. Hundarnir komu geltandi á eftir okkur, en ekkert af hinum dýrunum. — Heldurðu að dýrin drepist þarna úti? spurði ég hóstandi. — Þau ættu að geta bjargað sér. Þau geta alltaf farið í vatnið, ef í hart fer. Stanzaðu nú, hér eru dyrn- ar, við skulum sjá hvað er bak við þær. Hann opnaði varlega. Reykurinn þyrlaðist á móti okkur og allsstaðar glórði í eldtungur. Hann flýtti sér að loka. — Það lítur sannarlega út fyrir að við verðum að snúa okkur að glugg- anum, eftir allt. — Það getur verið að þessi eldur sé aðeins frá blysunum og Ijósunum í veggnum, Ijósunum sem þau voru búin að koma upp fyrir næturstörf- in. Ég var skelfingu lostin þegar ég sá þessi blys á leiðinni út. Hann opnaði aftur, svolitla rifu. — Þetta er rétt hjá þér, lofaður veri Allah. Við erum heppin. Reyk- urinn fer í hina áttina. Hann dró mig inn fyrir hurðina og skellti henni aftur, þegar hundarnir voru líka komnir í gegn. — Komdu, nú hlaupum við. Guði sé lof að við sjáum til. Geturðu þetta? — Auðvitað. Ég vona bara að við lendum ekki í flasinu á úlfaldalest- inni. — Við verðum heppin, ég er bú- in að segja þér það. Og það vorum við. Nokkrum mín- útum síðar, eftir hlaupin gegnum kveljandi reykinn í ganginum, kom- um við að bakdyrunum. Ég tók keðjurnar frá, meðan Charles bisaði við lásinn. Lykillinn passaði og dyrn- ar opnuðust, enda voru öll járn vel smurð. Hundarnir þutu fram hjá okkur. Uti var loftið hreint og svalt. Char- les lagði armana um mig og bar mig upp brekkuna að klettinum við trén. Bakhliðið skall í lás að baki okkar og lokaði okkur úti frá Dar Ibrahim. Þá fyrst heyrði ég hávaðann. Það var ekki brakið og hávaðinn, innan úr „miðjunni", ég var orðin vön því hljóði, en þetta var nýr hávaði, eins og frá öskrandi mannhafi. Það kom frá vinstri, frá aðalhliðinu. Hundarnir voru nú orðnir rólegir, og fylgdust með okkur, þegar við gengum meðfram múrnum á bak- hliðinni. Við námum staðar í skugga við sykamortrén. Charles vafði mig að sér. — Þú skelfur, er þér kalt? — Nei, alls ekki, ekki ennþá, ég hefi ekki haft tíma til að láta mér verða kalt. Heyrirðu hrópin? Verð- um við ekki að athuga þetta? — Það er engin ástæða til þess, sagði hann þurrlega. Burtséð frá því að mér er skítsama þótt Grafton og Lethman verði að ösku, þá held ég að allir þorpsbúar séu þarna samankomnir, og bráðum koma langferðabílarnir frá Beirut, þeir láta ekki svona brennu fara fram hjá sér. Við megum heldur ekki gleyma framferði þeirra við þig, elskan mín. En hvern fjandan varstu að gera þarna inni; ég hélt þú værir fleiri mílur í burtu, og hefðir ekki hugmynd um það sem fram fór hér. Hvað kom fyrir? — Þeir fóru með mig hingað aft- ur. Svo sagði ég honum í stuttu máli frá öllu sem fyrir mig hafði komið. En þegar hann fór að býsn- ast yfir því, sagði ég: — En þú, hvað varst þú að gera hér? Hvað kom þér til að leita að mér. Hvernig vissirðu að ég var hér? — Ég heyrði til þín. Þú öskraðir eins og sírena, áður en eldurinn brauzt út — En hvernig komstu inn aftur, þeir sögðu að þú hefðir flúið út um stóra hliðið. — Það gerði ég líka. Þeir reyndu að svæfa mig með þessum viður- styggilegu eiturlyfjum, en ég þótt- ist bara sofa. Jassim, karlgreyið, lét gabbast, og svo sló ég hann niður og flýtti mér út. Það var bara fjandi óþægilegt að þeir höfðu tekið frá mér fötin mín, þegar þeir læstu mig inni .... Ég skil ekki hve Lethman er einfaldur, að honum skyldi detta í hug að það gæti hindrað mig í því að fara allra minna ferða, ef ég kæmizt út. — Hann þurfti sjálfur á þeim að halda. Hann ók bílnum þínum til Beirut, og hefir eflaust viljað llkjast þér sem mest. — Bölvaður dóninn! En svo tók ég lyklana af Jassim og hljóp út, .nakinn, eins og ég kom í heiminn. Ég fann þessar buxur t einum klef- anum, tók bara það nauðsynlegast, og hélt áfram. Ég vissi að ef þeir veittu mér eftirför, þá myndu þeir fara beina leið að vaðinu, svo ég hljóp bak við húsið, meðfram kvennabúrsgluggunum. Þú hefðir átt að sjá hve glæsilegur ég var, með buxurnar í hendinni og stöðugt að stinga mig á þyrnum. — Vesalingurinn minn. — Já, og svo nam ég staðar and- artak, bak við trén og kom mér ! buxurnar, og þá„ . . þá heyrði ég þig æpa. Gerði hann þér eitthvað skrattakollurinn? — Ekkert að ráði, ég öskraði þegar kötturinn kom. Hvernig komstu svo inn? Hann hafði horft leitandi niður fyrir sig, meðan við vorum að tala saman, og rak svo upp óp og beygði sig niður. — Hér er það . . . Hvað var ég að segja? Jú, þegar ég heyrði þig hljóða. Ég flýtti mér í buxurnar og hljóp eins hratt og ég komst að stóra hliðinu, en þeir höfðu lokað því. Þá fann ég reykjarlyktina og hljóp, eins og skrattinn væri í hæl- um mér að glugganum þarna og klifraði inn. Það var ekki svo erfitt. — Ekki erfitt! Ég sá nú vegginn ! fyrsta sinn utan frá. — Mér sýnist þetta ómögulegt. — Ekki fyrir svona stóran, sterk- an og hughraustan mann eins og Charles, aðdáenda þinn og auð- mjúkan þjón. Ég vissi að þú varst komin út í trjágarðinn, því að ég heyrði þig kalla á hundana, og þeg- ar ég kom þangað, sá ég Orkina hans Nóa á eynni ! tjörninni. Heyrðu, hvað ertu með um hálsinn? — Það er verndargripur, sem ég keypti fyrir bílinn þinn, til varnar gegn vonda auganu. Þú sagðir að það væri nauðsynlegt að eiga slíkan verndargrip, sagði ég. — Þetta er handa þér, ástin mín, ég held að þetta sé mesti heillagripur. Þú ert næstum þv! eins glæsilegur og ég. — Það þýðir ekkert fyrir þig að vera með gullhamra. — Ég er ekkert að gera að gamni m!nu, mér finnst þú mjög glæsileg- ur. — Sama segi ég, þú ert eins og hellt hafi verið yfir þig úr ruslafötu, Framhald á bls. 47 XI. tbi. VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.