Vikan - 12.03.1970, Qupperneq 14
NR. 3 TIL ÚRSLITA
uncn KvnsLoom
ÁSGERDUR FLtSADÓITIR
VIKAN-
KARNABÆR
LJÖSMYNDIR:
SIGURGEIR SIGURJONSSON
Ásgerður er 15 ára, fædd
11. nóvember, 1954, elzt af
þremur dætrum Flosa Þór-
ormssonar, verkstjóra. og Sig-
urborgar Jónsdóttur. Hún er
168 cm á hæð, Ijóshærð og
með blá augu.
Ásgerður er í þriðja bekk
Verzlunardeildar Laugalækj-
arskólans, og hefur mest
gaman af því að vélrita, svo
og af málunum; ensku, þýzku
og dönsku. Félagsfræði er
henni minnst að skapi og seg-
ir hún þá námsgrein þurra og
langdregna. Gangi henni vel
í prófum í vor segir hún að
sig langi til að hætta og fara
í Verzlunarskólann, jafnframt
því sem hún vill læra að
syngja. Verði ekki af Verzl-
unarskólanáminu ætlar hún
áfram í sönginn (sem hún
getur byrjað á næsta vetur)
og síðan jafnvel í hjúkrun
eða Ijósmóðurnám. Tvö und-
anfarin sumur hefur hún unn-
ið undir stjórn föður síns í
verksmiðjunni Sanitas, og
kann því ágastlega.
Til útlanda hefur hún ekki
komið enn, en heldur mest
upp á Akureyri af þeim stöð-
um sem hún hefur heimsótt
hér á landi. Ásgerður segist
skemmta sér hæfilega, einu
sinni eða tvisvar í mánuði, og
þá fer hún á dansleiki, aðal-
lega Las Vegas, eða í bíó.
Tónlist er henni vitaskuld
áhugamál og þá aðallega
poppið svo og þjóðlagatón-
list. Henni var boðið að
syngja með hljómsveit sem
leikur á Keflavíkurflugvelli,
en eftir íhugun afþakkaði
hún — leizt ekki á staðinn.
„Það bezta sem hún les
eru spennandi ástarsögur og
aðrar „ævintýrasögur" eins
og hún orðaði það sjálf.
Það sem henni fannst einna
helzt ábótavant við ungu kyn-
slóðina var of miklar reyk-
ingar og allt of mikil áfengis-
neyzla.
14 VIKAN 11 tbl-