Vikan - 12.03.1970, Síða 24
Pctcr, Henry og Jane ræða saman og komast að ýmsum niðurstöðum.
FONDA - FEDGININ
ÞaS er ekki eingöngu
í útliti sem þau eru
hvert öðru lík. ÞaS er
meS ýmsa hæfileika
eins og meS
blóSflokka, þeir
eru ákveSnir fyrir
fæSinguna, þótt Peter
sem er yngstur,
vilji ekki viSurkenna
þaS, þá vita þau
Henry og Jane þaS
mætavel, enda
eru þau eldri og vísari.
Ilenry í Mr. Roberts“.
Henry í „Þrúgur reiðinnar“.
Henry Fonda og Francis Brokaw.
hennar fyrir 35 árum. Það er allt
í lagi að hugsa þetta, en mér
finnst ekki að hún geti sagt slíkt
í blaðaviðtali. Þegar á allt er lit-
ið, þá er ég þó faðir hennar.
Peter átti það til að sýna alltof
mikla viðkvæmni.
—Ég sé í gegnum pabba, ég
vildi óska að hann reyndi að
opna augun og skilja mig.
Henry hefur bæði opnað aug-
un og skilið sitt af hverju.
- Ég ber virðingu fyrir Pet-
er, segir hann nú. — Ég kemst
ekki hjá þeirri staðreynd að
hann hefur náð langt fyrir sinn
aldur. Peter er 29 ára, Henry 64,
og fyrir 35 árum lék hann í New
Faces á Broadway fyrir 35 doll-
ara á viku, þó er ekki úr vegi að
spá því að eftir fimm ár verði
Grand Island í Nebraska aðal-
lega kynnt sem fæðingarstaður
Henry Fonda í ferðamannapés-
um.
Fonda er sonur prentara, sem
var mjög ákveðinn og aftur-
haldssamur.
Fonda-feðginin voru ekki sér-
staklega samrýmd, fyrr en nú
upp á síðkastið. En það vill oft
verða svo að frægðin færir sumt
fólk nær hvert öðru. Henry hef-
ur nú nýverið lokið við sjötug-
ustu og aðra kvikmynd sína,
„The Cheyenne Social Club“.
Jane hefur nýlega fengið verð-
laun gagnrýnenda í New York
fyrir hlutverkið Cassandra í
„They Shoot Horses". Og svo er
það Peter, það lítur út fyrir að
hann verði milljónamæringur
fyrir þrítugt, fyrir að framleiða
og leika í „Easy Rider“, sem er
ein af þessum litlu kvikmyndum,
sem slá út þær stóru. Viðurkenn-
ingin og aldurinn hefur breytt
þeim öllum, sér í lagi börnunum.
Jane hefur ekki legnur áhuga á
að líkja eftir Brigitte Bardot.
Nýlega birtust myndir af henni
í móðurhlutverki sínu, á síðum
McCall magasíns, og finnst henni
það snöggt um eftirsóknarverð-
ara en að láta myndir af sér í
innstungu Playboy. Hún er
heldur ekki lengur á þeirri skoð-
un að Evrópa sé eftirsóknarverð-
ari en Ameríka. Hún segir nú:
Eg á heima í Ameríku, hlut-
verkin bíða mín þar. Þetta segir
hún eftir þriggja ára vist í
Frakklandi. Stúlkan sem af-
þakkaði hlutverk í Bonnie og
Clyde og Rosemary's Baby, ætl-
ar ekki að láta fleiri slíkar
skrautfjaðrir fjúka úr hatti sín-
um. — Eg tek því sem að mér
verður rétt, jafnvel hlutverki í
söngleik. Peter, sem áður var
kviklyndur og erfiður í um-
gengni, er nú kvæntur maður og
tveggja barna faðir, og faðir
hans segir að hjónabandið hafi
verið það sniðugasta sem hann
hefur gert fram að þessu. Hann
er auðvitað nokkuð hávær enn-
þá, en nú hrista þeir ekki höfuð-
in vandræðalega í kvikmynda-
verunum, þeir kinka kolli vand-
ræðalega.
Þessi feðgin hafa sannarlega
náð frægð. En hversu dásamlegt
hefur það verið?
- Ég er ekki taugaveiklaður,
segir Henry Fonda, — en ég
held að maður verði leikari
vegna þess að maður er eitthvað
afbrigðilegur, og það er ekki
alltaf auðvelt. Maður kemst
fljótt úr jafnvægi, er uppstökk-
ur og óþolinmóður. Stundum
finnst mér ég vera einhvers stað-
ar milli þilja. Ég las einu sinni
í blaðagrein að Jane Fonda hafi
sagt að foreldrar hennar lifðu
eins konar gervilífi. Og á öðrum
stað að henni fyndist að það
hefði átt að sálgreina föður
Jane Fonda í sóíbaði á ströndinni.
24 VIKAN n-tbL