Vikan - 14.05.1970, Page 15
Appelsínupönnukökur
Veniulegt pönnukökudeig hrært
út með 3V2 dl af appelsínusafa og
2'/2 dl af vatni. Þeim er rúllað sam-
an strax og settar ! eldfast form og
penslaðar með bráðnu smiöri. Sykri
stráð yfir og appelsínusafi kreistur
að lokum yfir. Bakaðar við 275°
ofarlega í ofni þar til sykurinn er
orðinn stökkur.
☆
Pönnukökur eru vinsæll réttur víða um heim.
Hér á landi er algengast að bera fram pönnu-
kökur meS kaffi en þær má einnig bera fram
sem forrétt, snarrétt eSa ábætir. GætiS þess
þegar deigiS er útbúiS, aS hræra þaS ekki of
mikiS þá verSur hræran seig og pönnukökurnar
þar af leiðandi seigar. Bezt er aS pönnuköku-
deig bíði tilbúið í ca. Vz klst. áður en kökurnar
eru bakaðar. Þá getur verið að þynna þurfi
deigið dálítið. Pönnukökudeig geymist marga
daga í kæliskáp. Þá er sjálfsagt að geyma
pönnukökur og hræru í djúpfrysti.
Rússneskar
pönnukökur
100 gr smiör eða smjörlíki
125 gr hveiti
2'/2 dl vatn
2'/2 dl rjómi
5 egg
3 msk. sykur
rifið hýði af V2 sítrónu
15 gr saxaðar möndlur
smjörliki til steikingar
sulta
flórsykur
Smjörið bræti og hveitið hrært
útí, þynnt með vatninu og rjóman-
um. Potturinn tekinn af hitanum.
Eggjrauður hrærðar útí ein og eins i
einu. Sykur, stítrónuhýði og möndlur
settar saman við. Hvíturnar stíf-
þeyttar og settar saman við. Bakið
4 pönnukökur úr deiginu. Þegar
þeim er snúið er gott að nota flatt
pottlok sér til aðstoðar og hafa lok
á meðan kökurnar eru að gegnbak-
ast. Pönnukökurnar síðan lagðar
saman með góðri sultu og flórsykri
stráð yfir að lokum.
2°. tbi. VIKAN 15