Vikan - 24.09.1970, Side 3
39. tölublaö - 24. september 1970 - 32. árgangur
I ÞESSARI VIKU
Parapsychology nefnist á ensku ein grein
sálfræðivísinda, sem lítt er þekkt
hérlendis, þótt hún fjalli einmitt um efni, sem
kváðu íslendingum hugleikin flestum
fremur. Það er að segja svokölluð
dulræn fyrirbrigði. I þessari
Viku verður viðtal við Erlend Haraldsson,
sálfræðing, um vísindi þessi.
Froskmennska er ein af vinsælustu íþróttum
nútimafólks, og á dögunum brugðu
blaðamaður og Ijósmyndari frá Vikunni
sér austur að Þingvöllum og
köfuðu í Flosagjá. I þessari Viku koma
myndir ásamt frásögn af þvi afreki.
«
Hippunum er oft og mikið hallmælt
og ekki alltaf af miklum skilningi eða
sanngirni, en víst er hitt að með
fáu fólki er fylgst af meiri forvitni þetta árið.
Evrópskir hippar héldu fyrir skömmu
festíval við Rotterdam í Hollandi og birtast
myndir og frásögn af því i þessu blaði.
Um þessar mundir er að koma út á ensku
ævisaga Faruks, síðasta einvalds Egypta. Þar
er sagt frá lifi hans allt frá barnæsku
og er frásögnin sannarlega forvitni-
leg. Síðast er greint frá þeirri hugmynd Faruks
að stjórna sjálfur herjunum í stríðinu við
ísrael 1948. Þar með fékk hann Nasser
það vopn i hendur, sem hann þurfti til að
velta síðasta faraóinum úr há-
sætinu. Vikan birtir úrdrátt úr þessari nýju bók
og kemur fyrsti hlutinn i næsta blaði.
I næstu viku hefst ný og spennandi
framhaldssaga, sem nefnist Oskilabarnið og
er eftir Lena Louis. Þar segir frá nokkrum
. leigjendum í gamla húsinu á
Östermalm. Hver um sig bjó yfir leyndar-
máli, sem enginn vissi um, þar til dag
nokkurn að óskilabarn fannst í stigaganginum.
Frásagnir af landafundum og ferðum
sæfara til forna hafa löngum þótt eftirsóknar-
vert lesefni. í næstu viku birtist
meðal annars efni af því tagi. Loftur Guð-
mundsson rithöfundur hefur tekið saman
söguna um Ferdinand Magellan og
ævintýraferðir hans.
í NÆSTU VIKU
FORSÍÐAN
Forsíðan er frá lepðangri Vikunnar, þegar kafað var ofan í Flosagjá
og nánar er sagt frá inni í blaðinu. (Ljósm. Egill Sigurðsson).
í FULLRI ALVÖRU
VÍTAHRINGURINN
Vitahringurinn — þáttur i umsjón Olafs Ragn-
ars Grimssonar um hið eilífa kapphlaup kaup-
gjalds og verðlags — er liklega athyglisverðasta
innlenda efnið, sem sjónvarpið hefur boðið upp
á, siðan það kom úr sumarleyfi sinu. Þátturinn
fór strax fjörlega af stað og gaf góðar vonir,
þegar fólk á förnum vegi sagði frá viðbrögðum
sinum við dýrtiðinni. Mátti þar kenna ýmsa mekt-
armenn, svo sem Agnar Bogason, Harald A. Sig-
ursson og fleiri. Síðan hófst umræða i sjónvarps-
sal, og voru þátttakendur sex karlar og tvær
konur, sitt úr hverri áttinni.
Ekki verður sagt, að samræðurnar hafi verið
hógværar og málefnalegar, heldur var þvi likast
sem maður væri staddur í kaffitima á einhverjum
vinnustað og fengi að hlusta á rifrildi fólks úr
öllum flokkum. Þátturinn var með öðrum orðum
þverskurður af viðhorfi fólks til þessa mesta og
erfiðasta vandamáls þjóðfélagsins nú á dögum.
Allir voru óánægðir, kaupmaðurinn ekki síður en
fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar.
Þátturinn um vítahringinn var sannarlega tíma-
bær. Hann var fluttur örfáum dögum eftir að
stórfelld hækkun á landbúnaðarvörum gekk i
gildi. Nú í ár þarf verkamaður að vinna fleiri
stundir til að sjá heimili sinu fyrir mjólk og kjöti
en hann þurfti fyrir fimm árum. Haustið 1964
kostaði mjólkurlítrinn 6.40 kr. og var þá tíma-
kaup samkvæmt 2. taxta Dagsbrúnar 34.34 kr.
Nú í haust kostar mjólkurlítrinn 18.00 kr., en
timakaup Dagsbrúnarverkamanns er 79.60 kr.
Annað stjórnarblaðið gerði ofangreinda hækk-
un að umræðuefni um daginn og kenndi stefn-
unni i landbúnaðarmálum um. Lokaorð blaðsins
voru á þessa leið: „Hvar á þetta allt svo að enda?
Er hægt að una þessu öllu lengur?" Niðurstaðan,
sem almenningur dró af sjónvarpsþættinum var
mjög i anda þessara spurninga, nema hvað þar
var ekki aðeins átt við hækkun landbúnaðarvara,
heldur verðbólguna í heild.
í þann mund sem þessar linur eru hripaðar
niður berast þær fregnir, að húsmæður á Eskifirði
hafi haldið með sér fund til að mótmæla hækkun
landbúnaðarafurða. Þær skoruðu jafnframt á hús-
mæður um land allt að gera slikt hið sama. Við-
brögð húsmæðranna á Eskifirði eru Ijós vottur
þess, að almenningur uni þessu ekki öllu lengur.
G.Gr.
VirVHPi Útgefandl: HUmlr hf. Ritstjórl: Gylfi
Gröndal. BlaSamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitstelkning: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: SigriOur Ól-
afsdóttir. — Ritstjóm, auglýsingar, afgrelOsla og
dreifing: Skiphoiti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf
533. Ver6 i lausasölu kr. 50,00. ÁskriftarverO er 475
kr. fyrir 13 tölublöö ársfjóröungslega, 900 kr. fyrir
26 tölublöö misserislega. — Áskriftargjaldið greiðist
fyrirfram. Gjaldd. eru: Nóv., febrúar, mai og ágúst.
39. tbi. VIKAN 3