Vikan - 24.09.1970, Qupperneq 6
Einu sinni
SMJÖRLÍKISGERÐ AKUREYRAR HF.
UMBOÐSMENN:
JOHN LINDSAY. Sími 26400, KARL OG BIRGIR. Sími 40620
Svar til E.G.
Af frægum mönnum í sporð-
drekamerkinu má nefna franska
rithöfundinn Albert Camus, rúss-
neska rithöfundinn Dostóévskí,
Grace Kelly furstaynju af Mó-
nakó, Martin Luther, Maríu An-
toinettu, drottningu Lúðvíks
sextánda Frakkakonungs, Jjýzka
hershöfðingjann Moltke, Picasso,
frægasta listmálara samtímans,
Rommel, einn snjallasta hers-
höfðingja Þjóðverja í síðari
heimsstyrjöld, þýzka skáldið von
Schiller, valsakónginn Johann
Strauss.
Fólk úr sporðdreka og hrút á
ekki beint vel saman. Mikil
ágengni fylgir þessum merkjum
báðum og veldur oft og tíðum
árekstrum þeirra á milli. Þó er
til að sæmilegt samstarf takist
með þeim, og áorka þeir þá oft
miklu.
Enn til Kittyar
Aumingja þú. Við vorkennum
þér af heilum hug, en annað og
meira stendur varla á valdi okk-
ar að gera í málinu. Það er sem
sagt ekkert annað hægt að sjá
og skilja á bréfinu en að dreng-
urinn vilji sem minnst með þig
hafa að gera. Svo er að skilja að
þessi nótt ykkar í tjaldinu hafi
ekki snúið hug hans til þín,
nema síður væri, þar eð að henni
lokinni skilaði hann hringnum.
Með því gefur hann greinilega
bendingu um að honum sé eng-
in alvara með þig; það er því að
minnsta kosti ekki hægt að segja
að hann sé tvöfaldur í roðinu
hvað þetta snertir.
Því miður bendir ekkert til að
þú hafir neitt upp úr því að elt-
ast við hann frekar. Hann væri
ef til vill fáanlegur til að gamna
sér eitthvað við þig ef svo bæri
undir, eins og í tjaldinu, en jafn-
vel það er vafasamt. Þér finnst
þetta sjálfsagt heldur nöturlegt
svar, en því miður gefa þær upp-
lýsingar, sem er að finna í bréf-
inu frá þér, ekki tilefni til ann-
ars. Við myndum eindregið ráð-
leggja þér að sniðganga hann al-
gerlega, þegar hann kemur suð-
ur í haust, fara ekki fet með
honum í bíó eða neitt annað.
Kannski gæti það einmitt orðið
til að vekja aftur áhuga lians á
þér, ef hann fengi þá hugmynd
að þú liefðir engan áhuga á hon-
um lengur og vildir ekki sjá
hann! það er aldrei að vita nema
hann sé af þeirri sortinni. En ef
hann fer aftur að fara á fjör-
urnar við þig, skaltu ekki láta
undan umsvifalaust, heldur að
láta hann ganga talsvert á eftir
þér, vera afundin og lofa lionum
að vorkennast ærlega. Þá gæti
komið í ljós hvort honum væri
nokkur alvara með þig eða ekki.
En sem sagt, það er af og frá
að þú farir nokkuð að stíga í
vænginn við hann að fyrra
bragði, það yrði varla til neins.
Reyndu að vera hörð af þér og
hætta að hugsa um hann; svo-
leiðis getur verið nógu erfitt, en
tekst þó venjulega og stundum
vonum fyrr.
Sambúð fólks úr voginni og
steinbukknum gengur oftast erf-
iðlega. Vogmenni eru yfirleitt
opinská og fús til að taka þátt í
gleði og sorgum annarra, en
steinbukkar hins vegar þögulir
og innilokaðir. Vogmenni eru oft
nokkuð yfirborðskennd, stein-
bukkar hins vegar dálítið þyrk-
ingslegir.
Skriftarstíllinn bendir helzt til
þess að þú sért vandvirk, góð-
viljuð og viljir helzt gera gott
úr hverju máli, en líklega ertu
ekki of viljasterk. En svoleiðis
nokkuð er vel hægt að þjálfa
upp í sér.
Everything is beautiful
í síðasta Pósti lofuðum við
hásu hænunni frá Húsafelli
að birta fyrir hana textann við
þetta lag, ef okkur tækist að
krækja í hann. Og viti menn,
það hefur tekizt. Hér er þá text-
inn:
Jesus loves the litlle children
All the children of the world.
They are yellow, black and
white,
they are precious in his siglit.
Jesus loves the little children of
the world.
Everything is beautiful, in its
own way.
Like a starry summernight and
a snow-covered winters‘s day.
Everybody is beautiful, in their
own way.
Under God‘s heaven, the world‘s
gonn find a way.
There is none so blind, as he
who will not see:
We must not close our minds,
we must let our thoughts be
free.
Every hour that passes by, mak-
es the world a little bit older.
It‘s time to realize that sinnin'
lies our eyes
an it‘s growing bolder.
Everything is beautiful, etc.