Vikan - 24.09.1970, Síða 46
ar, nema eitt, hver var sá seki?
— Joel Weir, sagði ég við Li-
am og Tessu, þegar þau voru að
fara. — Ég sagði lögreglunni að
Joel hefði heimsótt hana.
— Það er búið að yfirheyra
Joel, sagði Liam. Ég spurði ekki
hvernig hann hefði frétt það. —
Hann sagðist ekki hafa séð Sa-
valle þetta kvöld, var alltof önn-
um kafinn við að binda bátana
sína.
Þá datt mér í hug að enginn
vissi hvar Stuart Kimberley hefði
haldið sig þetta kvöld. En það
gat ekki verið Stuart, hugsaði ég
með hryllingi. Stuart var einhver
hluti af fyrra lífi mínu, hann gat
ekki framið slíkt ódæði, jafnvel
þótt Savalle hefði valdið honum
vonbrigðum.
Ég hlýt að hafa blundað undir
miðnættið, því að ég hrökk upp
við að einhver gekk framhjá her-
berginu mínu. Ég settist upp og
fékk einhverja ónotatilfinningu.
Það þýðir ekki að finna til ein-
hvers, sagði ég við sjálfa mig, þú
verður að sjá hvað þetta er.
En ég heyrði það, — fótatak
yfir höfði mér, í herbergi Savalle.
Ég flýtti mér fram úr rúminu
og gægðist út um dyrnar, og í
skininu frá náttlampanum sá ég
að dyrnar voru opnar og að lyk-
illinn stóð í skránni. En það sást
ekkert ljós, svo að hver sem þetta
var, hlaut að hafa vasaljós. Og
þetta var ekki Savalle ... það
gat verið að hún væri komin
til að hæðast að okkur, fyrir það
að við héldum að hún næði ekki
til okkar lengur .. .
Ég varð að telja í mig kjark
við hvert skref í áttina að. stig-
anum. Mér var ískalt á höndun-
um, þegar ég stökk að dyrunum,
sneri lyklinum í lásnum og flýtti
mér til að ná í Nicholas ...
Ég veit ekki hvern ég bjóst við
að finna þarna uppi... Liam eða
Stuart, Alan eða Joel. Tveir
þeirra höfðu heimsótt Savalle.
En ég var algerlega óviðbúin,
þegar Nicholas kallaði, eftir að
hann var búinn að opna herberg-
ið: — Frú Dariby!
Hann fékk ekkert svar.
— Viljið þér koma niður, eða
viljið þér heldur að ég læsi yður
inni og hringi til lögreglunnar.
Hann kom niður stigann og
stóð svo hjá mér og frú Mede,
sem líka var komin á kreik. Á
næsta augnabliki kom frú Danby'
niður, reiðileg á svipinn, en sýni-
lega skelkuð.
— Ég á þessa lykla, hún gaf
mér þá! sagði hún, mjög hrað-
mælt.
— Hve marga lykla? spurði
Nicholas.
— Þrjá. Einn að dyrunum í
veggnum, annan að garðstofunni
og svo þennan.
— Hversvegna? spurði Nichol-
as og þegar frú Danby svaraði
ekki, sagði hann:
— Til að þér gætuð haldið
áfram við að færa henni brenni-
vín, eftir að þér voruð farin héð-
an! En yður er fullvel ljóst að
þér hafið engan rétt til að ganga
um þetta hús, síst af öllu um
þetta leyti sólarhrings! Fáið mér
lyklana!
Með fyrirlitningarsvip og
hreyfingum, sem minntu nokkuð
á Savalle, fór hún ofan í vasa
sinn og fleygði lyklunum á gólf-
ið. Nicholas tók þá ekki upp.
— Gjörið svo vel að hringja í
lögregluna! sagði hún eggjandi.
— Haldið þér að það geti bjargað
yð.ur? Það breytir ekki þeirri
staðreynd að hún er dáin, og það
er nú nokkuð á huldu um dánar-
orsökina!
— Það er annað sem við verð-
um að athuga nú, sagði Nicholas
kuldalega. — Hvaða erindi áttuð
þér þarna uppi?
— Þér voruð að leita að ein-
hverju, sagði frú Mede með fyr-
irlitningu. — Að hverju voruð
þér að leita?
— Ýmsu smádóti, sem ég hafði
skilið eftir. Ég þurfti að ná í það.
Þetta var ekki sennilegt. Ekk-
ert okkar trúði henni. Frú Dan-
by hafði verið hrifin af Savalle,
hafði verið henni einstaklega trú.
Ég sá að Nicholas hafði mestan
hug á að láta hana sleppa, en frú
Mede sagði, svo ákveðin að ég
varð undrandi:
— Ég hringi til lögreglunnar,
Nicholas.
— Nei. Hann rétti úr sér. —
Ég skal hringja.
Hann gekk fram hjá okkur og
niður stigann.
Ekki veit ég hverjar spurning-
ar lögreglan lagði fyrir frú Dan-
by.
Frú Mede lagði sig, en við Nic-
holas höfðum enga löngun til að
fara í rúmið eftir þennan nætur-
þátt. Hann sagði:
— Það væri gaman að vita
hvort mér yrði veitt eftirför, ef
ég færi nú út að ganga.
— Segið ekki slíkt, Nicholas,
sagði ég lágt. Þetta var í fyrsta
sinn sem ég hafði kallað hann þvi
nafni og ég varð kafrjóð. Hann
tók eftir því, bæði að ég hafði
kallað hann Nicholas og að ég
roðnaði.
— Serena, sagði hann blíðlega,
— ég vildi óska að þér hefðuð
ekki dregizt inn í þetta mál.
— Ég er nú samt fegin að ég
skyldi vera hérna, sagði ég.
Hann brosti, í fyrsta sinn síðan
Savalle dó. Hann beygði sig yfir
mig og kyssti mig. Þetta skeði
svo skyndilega að ég áttaði mig
ekki fyrr en hann rétti úr sér aft-
ur. Þá fann ég þrýsting vara hans
og hjartað hamaðist í brjósti mér.
Mig langaði til að faðma hann að
mér, en ég vissi að það var ekki
tímabært...
— Ég hata ekki Savalle, sagði
hann rólega. — Hún eyðilagði
sjálf líf sitt og nú er hún horfin.
Ég kaupi annað hús, þetta hús
minnir of mikið á hana. Við verð-
um að finna annan stað seinna ...
Hann lauk ekki við setninguna.
Hafði hann hugsað „fyrir okk-
ur“? Sögulok í næsta blaði.
Renault 12.
Enginn kaupir Renault
eingöngu til þess að sýnast
....þó fallegur sé
Fyrir íslenzkar Stærri hjól
aSstæður Sterkara rafkerfi
sérstaklega Hliðarpanna á undirvagni
Öryggi 60 hestafla vél
Skemmtilegir framhjóladrif
aksturshæfileikar 4 girar alsamhæfðir
Þægindi gólfskipting
sjálfstæð fjöðrun (gormur) á
hverju hjóli,
tveggja hraða rúðuþurrkur
fótstigin rúðusprauta
ný gerð af baksýnisspegli
jafnt fyrir nótt sem dag.
Öskubakkar í afturhurðum o.fl.
Þessi atriði hér að ofan eru 12, þau hefði
verið hægt aS hafa 24, jafnvel enn fleiri.
Þess gerist ekki þörf, eftir áratuga reynslu
af Renault. Leitið frekari upplýsinga.
KRISTINN
GUÐNASON
KLAPPARSTÍG 25-27,
SlMI 22075
46 VIKAN 39- tbi.