Vikan - 08.07.1971, Síða 14
-tno
vmnur aO
LP.
Mjög stutt spjall við Ágúst Atlason
Ömar Valdimarsson
heyra
má
Það var gaman að hitta Ágúst
aftur. Því settumst við saman,
spiluð.um plötur og rifjuðum
upp gamlar endurminningar
frá þeim tíma að hann var einn
„grísanna minna“, og við vorum
saman í skóla... hrekkja stelp-
urnar í bekknum.
Inn í milli sagði hann mér
upp og ofan af áformum þeirra
félaga í Ríó-tríóinu. „Við erum
bara að bíða eftir því að kom-
ast inn í stúdió til að taka nýja
LP-plötu,“ sagði Ágúst, um leið
og hann setti á nýjustu plötu
þeirra írsku Dubliners, „Revo-
lution“.
„Við erum með allt efnið til-
búið, svo það eina sem á eftir
að gera er að fínisera það og
spila það inn. Gunnar Þórðar-
son verður sjálfsagt með .okkur
á þessari plötu eins og þessari
síðustu (Sittlítið af hvurju) og
eins var hann með okkur í
sjónvarpsþætti sem við tókum
upp um daginn.“
„Aíiícið frumsamið á þessari
nýju plötu?“
„Já, allavega helmingurinn,
bæði eftir okkur í sameiningu
og svo sitt í hverju lagi. Nokk-
ur laganna hafa orðið til á æf-
ingum nýlega, en svo eru þarna
allavega tvö lög sem áttu 'að
fsira á síðustu plötu, þá sem
var tekin í Háskólabíói, en því
miður þá misheppnuðust þau í
upptökunni, svo við ákváðum
að láta þau bíða þar til síðar.“-
„Voruð þið sjálfir ánœgðir
með „Sittlítið af hvurju“?“
„Já, svona miðað við aðstæð-
ur og þá staðreynd að þetta var
fyrst og fremst tilraun, þá vor-
um við ánægðir, þótt alltaf
megi gera betur, eins og þar
stendur. Við stefnum sem sé
að því að gera betur núna ...“
„Er eitthvað hæft í þeim orð-
rómi að þið séuð að hugsa um
að hœtta í haust?“
„f augnablikinu finnst mér
það heldur ólíklegt, en maður
veit aldrei hvað skeður. Ég
reikna þó síður með því, en
það hefur oft komið til tals hjá
okkur að minnka eitthyað við
okkur spileríið; vinna heldur
meira að ákveðnum verkefnum
sem ekki hefur verið tími fyrir
hingað til. Eftir meira en 5 ár
eru menn náttúrlega orðnir
þreyttir.“
„Nokkuð stór á döfinni — til
dæmis utanlandsferðir?"
„Ekkert ákveðið, en það er
alltaf gaman að koma til út-
landa ekki sízt til að spila. Helgi
er þó nýlega farinn (fór fyrir
tveimur vikum, 21. fyrra mán-
aðar) til Evrópu, sem hann ætl-
ar að keyra í gegnum ásamt
gömlum skólafélögum sínum.
Annað er ekki ákveðið.“
☆
Ágútt Atlaton með skeggið mikla.
Ríó-tríó: Ágúst, Helgi og Ólafur. (Ljósm. Þórir).
14 VIKAN 27.TBL