Vikan - 08.07.1971, Síða 15
Yvonne Elliman —
nálægt Jesú.
Hvffrig Yviuk Wm
mri Mm MnUeni
Yvonne Elliman kom til
Bretlands frá Hawaii fyrir
tveimur árum síðan til að koma
fram fyrir drottninguna. Hún
endaði sem María Magdalena í
rokkóperu Rice & Webber’s,
„Jesus Christ — Superstar“.
Að koma fram fyrir drottn-
inguna? Já, Yvonne var talið
trú um af kunningja sínum á
Hawaii að hún væri mjög um-
töluð í Bretlandi og að það væri
búið að bóka hana á „kabarett'*
sem væri haldinn til heiðurs
drottningunni, Royal Variety
Performance. Yvonne dreymdi
um að verða stjarna og hún var
því auðveld bráð. Faðir hennar
er óbreyttur verkamaður, jap-
anskur, og hann auraði saman
fyrir farinu til London.
Það var einmanalegur staður
fyrir gamla og fátæka og. jáfn-
vel ennþá einmanalegri fyrir
blekkta og sára stúlku af jap-
önskum og evrópskum ættum.
En Yvonne fékk sér íbúð og *
innan skamms hafði hun náð
sér í umboðsmann og við og við
fékk hún vinnu með Scott
Walker ,þeim er var í Walker
Brothers.
En svo kom trúin inn í líf
hennar og hún kynntist þeim
félögum Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber. Þeir „uppgötv-
uðu“ hana og ákváðu að það
skyldi verða Yvonne Elliman
sem ætti að syngja hlutverk
Maríu Magdalenu í óperunni
þeirra.
„Hversu stór þáttur er trúin
í lífi mínu?“ endurtekur hún
spurninguna. „Ég er ekki skírð
og sjálfsagt er hægt að segja að
ég sé ekki trúuð í þeim skiln-
ingi að ég sæki mikið kirkju.
Framhald á hls. 47.
Pósthólf
553
IFICOULD
ONLV REMEMAER
DAVID'S NAME
Það hafði ekki liðið vika frá
því að sólóplata David’s Cros-
by kom út þar til hann fékk
gullplötu fyrir afrekið, svo
mikil var salan. Og í Bret-
landi seldust meira en 2000
plötur á dag og samkvæmt upp-
lýsingum hljómplötuverzlana
hér á íslandi má reikna með að
nú séu um það bil 800 eigend-
ur plötunnar hér. (Um leið og
David fékk sína gullplötu, fékk
„Four Way Street“, tveggja
platna albúm CSN&Y gull-
plötu).
En ekki voru allir ánægðir
með plötuna. f brezka músík-
blaðinu Melody Maker ritáði tiJ
dæmis Richard Williams harða
dóma um hana og fara hér á
eftir glefsur úr rætnum og ó-
réttlátum dómi:
„ ... Vandamálið með David
Crosby er að hann langar að
setja dagbókina sína á plötu.
Hann er bara alls ekki hógu
skemmtileg þersóna og þegar
hann hefur eitthvað skemmti-
legt til frásagnar eyðileggur
hann það með allskonar fárán-
leik og lélegri kímni (hvernig
nokkur getur tekið hann alvar-
lega eftir „Almost Cut My
Hair“, skil ég aldrei).
Músík er hatur, löngun, ótti,
dýrð, sorg... allt, en það þarf
listamann til að skapa góða
músík og Crosby verður aldrei
listamaður — jafnvel þó hann
verði 100 ára. Því meira sem ég
hlusta á hann því betur skil ég
hvers vegna McGuinn rak hann
úr Byrds eftir „Mind Gard-
ens“...“
Síðan heldur Williams áfram
í svipuðum dúr og segir síðan
að hann muni sjálfsagt, þrátt
fyirr allt, spila plötuna við og
við, því David hafi með sér
mjög góða menn — eins og satt
er. Síðan segir Williams:
„Gott hjá þér, Dave; þú ert
að gera það sem þig langar að
gera og enginn þarf að hlusta á
þig frekar en hver vill. En þú
og félagar þínir eru í hættu: Þið
eruð svo leiðinlegir að við get-
um varla haldið buxunum upp
u mokkur svo af hverju stökkv-
ið þið ekki um borð í bátinn
ykkar og fáið ykkur frí —
Framhald á bls. 47.
Hæ.
Ég hef verið að fylgjast
spennt með hvað blessuðu bréf-
ritararnir hafa sagt um þáttinn
þinn og er svona bæði sammála
og ósammála þeim. Nafnlausa
bréfritaranum í fyrsta bréfinu
er ég nærri alveg sammála, því
mér finnst „Led Zeppelin 111“
alls ekki svo léleg. Og með per-
sónulegu skoðanirnar finnst
mér að þú megir alls ekki hafa
of mikið af því, en kannski
eitthvað svolítið. Að vísu er ég
þér sammála í nokkrum atrið-
um eins og að mér finnst John
Lennon alveg stórkostlegur og
það er svo sannarlega stórvið-
burður að Deep Purple heim-
sækja okkur alla leið hingað.
Hins vegar er ég sammála Ingu
Karlsdóttur og „nafnlausa bréf-
ritaranum“ (þó fyrir mér sé
hún sannarlega ekki nafnlaus)
að þú megir ekki skrifa of mik-
ið um Trúbrot.
Svo finnst mér að þú ættir að
kynna meira erlendar hljóm-
sveitir því við vitum svo óskap-
lega lítið um þær og í guðanna
bænum skrifaðu nú nóg um
Deep Purple og eins mættirðu
segia okkur hvað Led Zeppelin
væru að aðhafast núna. Veiztu
nokkuð hvenær fjórða platan
þeirra kemur út? Geturðu gef-
ið nokkra skýringu á að „Lög
Framháld á bls. 50.
27.TBL. VIKAN 15