Vikan - 08.07.1971, Side 43
„Heimurinn er fullur af ó-
vættum.“
„Hvaða óvætti? Hvað meinar
þú eiginlega, drengur?“
„Þú hefir séð okkur ömmu og
fleiri eins og okkur. Það hljóta
að vera óvættir, sem ráða því,
að sum börn verða að lifa svona
og verða betlarar og ræflar.“
Ferðamaðurinn horfði þung-
búnum undrunaraugum á
drenginn. Hvað var það, sem
kom þessum unga villimanni til
að hugsa á þennan hátt.
„Kantu að lesa?“
„Nei.“
„Kann amma þín að lesa?“
„Nei.“
,;En leikbræður þínir?“
„Drengir, sem kunna að lesa
leika sér ekki við mig.“
„Hver hefur þá sagt þér frá
óvættinum?“
Hann þagði stundarkorn og
horfði á st. Georg, svo sagði
hann:
„Ég veit það ekki. Kannski
amma, en þó held ég ekki. Hún
segir mér aldrei neitt svona. Ég
held helzt, að ég hafi alltaf vit-
að þetta, eða þá að mér datt
bað í hug núna. En það er samt
áreiðanlega satt, þér er óhætt
að trúa því.“
..Skrökvar þú aldrei?“
..Ég skrökva aldrei nema þeg-
ar ég má til.“
..Þarftu þess stundum?“
...Tá.“
..Hvenær helzt?“
. Ég þarf þess oft. Helzt þó á
veturna þegar kalt er og amma
lasin og langt er síðan við
höfum borðað.“
„Stelurðu aldrei?“
Hann leit snöggt upp, og í
augnaráðinu var tortryggni og
reiði.
..TTss! TTss! Ekki reiðast. Ég
segi ekki frá — útlendingur —
bara forvitinn."
Aftur horfði hann niðurfyrir
sig og sagði lágri röddu:
„Allir drengir eins og ég
stela. Við stelum allir. Annars
værum við ekki til.“
..Er gaman að stela?“
..Nei.“
„Aldrei neitt spennandi?“
..Nei, en það er hættulegt.
T líttu á örið á enninu á mér.
■Tárnsmiður rak rörbút í mig,
ég reyndi að stela frá
honum. Ég var ekki nógu var-
,,_ár — amma . . .“
TTann þagnaði skyndilega, og
•’nfTlitið myrkvaðist í vanmátt-
”"ri tilfinningabendu gráts og
grimdar.
Ferðamanninum varð hverft
”’ð. eins og hann sæi nú fyrst
Vi^orsu heimskuleg og þarflaus
t°":í yfirheyrsla var.
„Svona drengur minn,“ sagði
hann sneipulega. „Við skulum
sleppa þessu og koma út í sól-
skinið. Þú átt sjálfsagt eftir að
sýna mér margt ennþá.“
Þeir gengu út úr kirkju hins
heilaga Georgs. Hádegissólin
skar í augun og hálfblindaði þá
eftir kirkjurökkrið.
Þeir fáu, sem á ferli vorji
þræddu forsæluna eftir föng-
um, en þessi fámenni könnun-
arleiðangur lét hitann ekki á
sig fá. Síðasti kofinn í útjaðri
bæjarins var næstum falinn
milli trjánna. Þetta er lítill leir-
kofi, sem stendur í illa hirtri
garðholu og limgerði umhverf-
is. Við rætur óræktarlegs pálma
lá fótalaus maður og lék sér að
tveimur hvolpum.
Göngumennirnir stefndu á
hæð fyrir utan bæinn þar, sem
gamalt kastalavirki reis gneipt
og þunglamalegt með turnum
og skotaugum. Einhver ögrandi
drýgindasvipur hvíldi yfir því,
líkt og það manaði alla heri
veraldar að koma og reyna
styrkleik sinn. Jafnvel úr
fjarska mátti þó sjá að hinir
afarþykku múrar þess mundu
betur fallnir til þess hlutverks,
sem þeir nú gegndu, að styðja
vafningsvið og aðrar flækju-
iurtir en að standast árásir nú-
tíma herja. Það minnti á hetju,
sem komin er í kör.
Vinstra megin við virkishæð-
ina, og nokkru nær bænum var
önnur minni hæð, með annað
mannvirki. Það var einfalt og
stílhreint, sett saman úr fimm
hlutum: Þremur tilhöggnum
eikarstaurum, gildum kopar-
krók, og svo sem þriggja metra
löngum kaðli — gálgi.
Gesturinn beygði upp á
gálgahæðina og drengurinn á
eftir. Hann var þróttlítill og
dróst aftur úr á brattanum.
TTæðin var grýtt og sólbrunnin.
Neðantil, á móti norðvestri óx
lítill runni kræklóttra kastan-
íutrjáa, annars var hún gróður-
laus. Þarna reis þetta æva-
forna tákn mannlegs réttlætis
— langur staur, grafinn niður í
jörðina; annar miklu styttri lá-
réttur út frá efri enda hans, og
sá þriðji á ská í kverkinni svo
að sá lárétti félli ekki niður
undan þunga hangans. Staur-
arnir voru bikaðir, og kaðallinn
barkarlitaður eins og net fiski-
mannanna við víkina. Hér var
allt auðsiáanlega í bezta lagi.
„Þið haldið þessum tækjum
furðu vel við, eða hefur ein-
hver verið hengdur nýlega?
„Nei, það eru víst mörg ár
síðan sá síðasti var hengdur. En
böðullinn er skyldugur til að
Winther bríhiíl
Þríhjólin vinsælu alltaf fyrirliggjandi.
Einnig reiðhjól í öllum stærðum.
Súlbrún án
súlbruna ^
John
Lindsay bf.
SÍMI 26400
27.TBL.VIKAN 43