Vikan - 09.09.1971, Side 4
Wiithtr bríhiíl
Þríhjólin vinsælu alltaf fyrirliggjandi.
Einnig reiðhjól í öllum stærðum.
önhi
Spítalastfg 8 — Sími 14661 — Pósthólf 671 L
KOLÐU
R,c\jal
búðingarnir
ERU BRAGÐGOÐIR
MATREI88 LAN AUÐVELD
Fjórar bragðtegundir:
Súkkulaði
Vanillu
Kaiamallu
Hindberja
Til aðlu I flestum
matvöruvorzlunum
landsina
P0STURINN
I Evuklæðum einum
Kæri Póstur!
Ég vil byrja á að þakka þér fyr-
ir allt gamalt og gott. Ég kaupi
Vikuna í lausasölu og hef gert
það í nokkurn tíma. Það er
margt gott í Vikunni og annað
sem er ekki gott. En mér finnst
framhaldssögu’rnar beztar og vil
þakka þér sérstaklega fyrir sög-
urnar Gleymdu ef þú getur og
Þar til augu þín opnast. Svo er
margt annað sem er gott, eins
og myndasögurnar. En þá er
bezt að snúa sér að efninu
sjálfu. Ég les gamlar Vikur og
í Viku frá 1970 sá ég auglýsta
bók, sem hét A Evuklæðum ein-
um. Var pöntunarseðill með-
fylgjandi. Mig langar að biðja
þig að gefa mér upplýsingar
um það hvar þessi bók fæst, ef
hún er til sölu, og hvort pönt-
unarseðillinn sé í gildi.
Með fyrirfram þökk.
Armann Jónsson.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni, ef
þú getur lesið hana?
_
r~---------A——-H
Pöntunarseðillinn, sem þú skrif-
ar um og sendir, mun ekki leng-
ur í gildi. Ef einhver ein-
tök af bókinni skyldu enn vera
á lausum kili, mundi þeirra helzt
að leita hjá fornsölum.
Skriftin bendir á samvizkusemi
og vandvirkni.
Joseph Kennedy
Kæri Póstur!
I Morgunblaðinu um daginn
kom mynd af Joseph Kennedy,
syni Roberts Kennedy, mig
langar að fá að vita aðeins
meira um hann en að hann sé
mikill siglingakappi, til dæmis
hvenær hann er fæddur og
hvort hann sé lofaður.
Svo þakka ég Vikunni fyrir allt
gamalt og gott og vona að hún
verði alltaf jafn skemmtileg.
Ein áhugasöm.
P.S. Hvað lest þú úr skriftinni?
Fæðingardag Kennedys þessa
höfum við ekki getað grafið
upp, en hann mun vera um tví-
tugt. Eftir því sem við vitum
bezt er hann engri heitinn. Fyr-
ir skömmu hlaut hann dóm fyrir
að reykja hass og vakti það
nokkra athygli, sem undarlegt
má heita, því að í Bandaríkjun-
um er fyrir löngu hætt að telja
hassneyzlu til tíðinda.
Skriftin ber vott um skapfestu
og reglusemi.
Hæsti foss á landinu
Kæri Póstur!
Ég þakka þér fyrir allt gamalt
og gott. Ég les alltaf Vikuna og
mér finnst hún skemmtileg. Ég
vona að þú leysir úr þessu fyrir
mig. Það hafa risið deilur milli
mín og pabba um hvaða foss
sé hæstur á landinu. Ég held því
fram að það sé Háifoss en pabbi
segir að það sé Glymur. Viltu
leysa úr þessu fyrir mig?
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
IG. BR.
Okkur er sagt af fróðu fólki að
Glymur sé hæstur.
Ef maður hefur gert
eitthvað Ijótt
Kæri elskaði og dýrkaði Póstur!
Mig hefur lengi langað til að
skrifa þér en ekki orðið af því
fyrr en nú. Það sem ég hef að
segja er ekki mikið, en það er
þetta: Er hægt að verða ófrískur
áður en maður hefur byrjað á
túr í fyrsta sinn, ef maður hefur
gert eitthvað Ijótt. Ef ekki, eru
til einhver tilfelli. Vonast eftir
svari fljótt.
Ein sem veit þetta ekki.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni, og
hvað heldurðu að ég sé gömul?
Nei, Pósturinn veit ekki um nein
„tilfelli" þess að stúlkur, sem
ekki eru byrjaðar að hafa á
klæðum, hafi orðið ófriskar. Úr
skriftinni er ekkert lesandi,
nema hvað Ijóst er af henni og
bréfinu að þú ert mikið barn.
4 VIKAN 36. TBL.