Vikan - 09.09.1971, Blaðsíða 29
Frú Sieglinde brosti og yppti
öxlum.
— Landið er mjög fallegt og
ég kann prýðilega við mig hér,
sagði hún. — íslendingar eru
mjög elskulegir í viðmóti og
ég á marga góða vini hér. En
tónlistarlífið er nokkuð í mol-
um og því ekki sérlega girnk
legt fyrir óperusöngvara að
setjast hér að. Grundvöllurinn
hefur ef til vill ekki verið lagð-
ur alveg rétt. Til að hægt sé
að flytja óperur þarf auðvitað
fyrst og fremst skólaða óperu-
söngvara. í Þýzkalandi þurfa
óperusöngvarar að ganga í
gegnum að minnsta kosti fjög-
urra ára skóla. Slíkum skóla
þyrfti að koma upp hér á landi,
cg þá auðvitað undir stjórn
reyndra manna.
— En hvað heldurðu um
efniviðinn í óperusöngvara hér-
lendis, ef hæfileg undirbún-
ingsmenntun væri fyrir hendi?
— Efniviðinn vantar ekki.
Og áhuginn er áreiðanlega fyr-
ir hendi, en jafnframt nokkurt
kæruleysi, látið reka á reiðan-
um. Ég verð því miður að
segja að flutningi þeirra óperu-
verka, sem ég hef séð á íslandi,
hefur verið nokkuð ábótavant.
É'g veit, sagði frú Sieglinde
ennfremur, — að ísland er fá-
mennt og allir kvarta þar um
fjármagnsskort. En samt virð-
ist vera til nóg af peningum
þegar til dæmis þarf að byggja
sporthallir eða kvikmyndahús.
En konserthús er ekki til á ís-
landi.
Islenzkir söngvarar þyrftu
að fá aukin tækifæri til að
halda konserta, sagði Sigurður.
— I Þýzkalandi er konsertlíf
mjög auðugt, eins og raunar allt
tónlistarlíf. Og ég verð að
segja að mér finnst það dálít-
ið táknrænt i'yrir viðhorfið til
fagurmenningar hérlendis að
Háskóli íslands, æðsta mennta-
stofnun þjóðarinnar, byggir
bíó en ekki tónleikahöll, sem
full þörf er þó fyrir. Háskóla-
bíó er eins og menn vita ekki
fallið til tónlistarflutnings, og
þar að auki er aldrei hægt að
halda tónleika þar á kristileg-
um tíma því að þá er verið með
bíósýningar. — Jafnvel þótt
Framháld á bls. 47.
Börn þeirra hjóna, Daníel
og GuSfinna.
36. TBL. VIKAN 29