Vikan - 09.09.1971, Blaðsíða 5
Hdusl- osi^velmrííy.ktm 1971
Munið, að hjá okkur fáið þið allar stærðir í nýtízku fatnaði fyrir konur á öllum aldri.
Verðlistinn Verðlistinn
v/Laugalæk (Kjóladeild) sími 33755 Hlemmtorgi (Kápudeild) sími 83755
Shirley Temple og
Shirley McLaine
HallólH-
Þú vilt víst ekki vera svo vænn
að fræða mig um dulftið sem
liggur níðþungt á hjarta mínu
um þessar mundir. Eru Shirley
Temple og Shirley McLaine ein
og sama manneskjan? Ef svo er
ekki, hvað hefur þá orðið af
henni Shirley litlu? Og annað,
hvernig lýsir hundaæði sér?
Vonandi treystirðu þér minn
kæri til að greiða úr þessu fyrir
mig, því eins og ég tók fram
fyrir nokkrum sekúndum, þá
verð ég ekki í rónni fyrr en ég
fæ að vita þetta.
Eg hef verið að glugga í gaml-
ar Vikur (1950—1960) nú und-
anfarið og komizt að þeirri öm-
urlegu niðurstöðu að þær taki
hinum nýju mikið fram. Er þetta
ímyndun eður ei? Amen.
P.S. Þú veizt ekki hvort komið
er á markaðinn meðal við
feimni. Er skriftin Ijót eða fal-
leg og sérðu nokkuð hve gömul
ég er og hvernig sálarástandi
mínu er háttað? Og svo að lok-
um ætla ég að trúa þér fyrir
því að ég hef mikinn áhuga á
spákonum og öllu þesslags.
Heyrðu, það er eins og mig
minni að þið hafið haft ein-
hvern þátt í gamla daga, sem
var þannig að einhver mann-
eskja spáði fyrir fólki gegn
þóknun og upplýsingum um af-
mælisdag, fæðingarár og því-
umlikt. Ekki satt? Og getið þið
þá ekki tekið þann hátt upp á
arma ykkar aftur?
Heldurðu að ég geti orðið stúd-
ent, góði minn? Og er ég með
fuliu viti eður ei, að þinu áliti?
Sórrugis.
Því fer víSs fjarri aS leikkonur
þær tvær, er þú nefnir, séu ein
og sama manneskjan. Shirley
litla hélt áfram aS leika i kvik-
myndum eftir aS hún komst til
fullorSinsára, en þótti standa sig
þar miSur en sem barnastjarna.
Hún giftist kvikmyndaleikara aS
nafni John Agar, leiSindaskepnu
og rudda, sem rak hana einu
sinni háólétta út úr húsinu um
miSja nótt, til aS geta skemmt
sér þar i næSi meS frillu sinni.
Þau skildu. SíSar fór Shirley eitt-
hvað aS grufla í pólitik og gerS-
ist þá mjög afturhaldssöm, eins
og reqlan virSist vera meS
Hollywood-stjörnur sem út i
stjórnmál fara.
HundaæSi flyzt aSeins milli
dýra, en menn geta einnig smit-
azt af því, þótt þeir qeti ekki
flutt smit sín á milli. Hjá hund-
um kemur sjúkdómurinn fram í
æSi, þannig aS þeir bíta allt
sem fyrir verSur. Veikinni fylg-
ir sár þorsti, sem sjúklingurinn
þó ekki getur svalaS, þar eS
kverkarnar herpast saman. Fyrr
meir voru flestir þeir, sem bitn-
ir voru af óSum hundi, dauSa-
dæmdir, en skömmu fyrir síS-
ustu aldamót fann hinn frægi
franski visindamaSur Louis Pas-
teur upp bóluefni, sem dugSi
gegn sjúkdómnum. Frá þvi var
sagt fyrir skömmu í grein í Vik-
unni, eSa nánar tiltekiS í 24. tbl.
þessa árs.
Pósturinn er varla óvilhallur aS-
ili til aS skera úr um, hvort Vik-
unni hafi fariS aftur síSan á
næstsíðasta áratug, en fróSlegt
væri aS heyra álit fleiri aðila
um þaS efni. Ekki höfum viS
heyrt af neinu lyfi gegn feimni,
sem viS treystum okkur til aS
mæla meS; ætli þú verSir ekki
aS taka þaS hjá sjálfri þér. —
Skriftin er ekki sem verst, þótt
falleg geti hún ekki talizt. Þessi
þáttur, sem þig rámar í, var
reyndar i Fálkanum, en ekki i
Vikunni. Ekki hefur komiS til
orSa aS Vikan tæki hann upp,
en útilokaS væri þaS sjálfsagt
ekki.
Þú ert varla vitlausari en al-
mennt gerist, svo aS þess vegna
ættirSu til dæmis aS geta náS
stúdentsprófi.
Svar til R. P.
Sé þaS svo aS þú viljir ekki sam-
farir fyrir trúlofun, ættirSu
hvergi aS fara. En ef þú hefur
ekkert á móti kynmökum viS
hann út af fyrir sig, en vilt að-
eins forSast aS verSa barnshaf-
andi , þá er svo guSi fyrir aS
þakka að nú á tímum eru til
mörg handhæg ráS til aS forS-
ast ótímabæran barnagetnaS. —
Benda má í því sambandi á Pill-
una margumtöluðu, og þar aS
auki kvaS nú vera fariS aS
sprauta kvenfóik viS þessu.
SnúSu þér til heimilislæknisins
þíns og ráSgastu viS hann um,
hvaSa aSferS muni heppilegust
fyrir þig.
Skriftin er óregluleg og ekki er
bréfiS alveg villulaust.
— Mamma þín sagði mér að'
segja þér allt um blómin og
býflugurnar, en ég held að
það sé bezt þú horfir á sjón-
varpsmyndina!
36. TBL. VIKAN 5