Vikan - 09.09.1971, Qupperneq 12
CLARK
6ABLE
Ástarœvintýriö
sem allur heimurinn
talaði um
Ástarsaga Clark Gables og Carole Lombard,
var rómantískasta ástarævintýri
fjóröa áratugsins. Þau voru eins umtöluð
og Elisabeth Taylor og Richard Burton
eru í dag. Þau bjuggu hamingjusöm viö auð
og allsnægtir í Hollywood, en endalokin
voru harmsaga. Um þaö leyti var Clark Gable
kjörinn „konungur Hollywood". Hann
var karlmannlegur og glæsilegur og vissi
hvernig hann átti aö umgangast konur.
Á bak við hinn hamingju-
sama Clark Gable voru alltaf
konur. Það var Josephine Dill-
on, fyrsta eiginkonan, 14 árum
eldri en hann, sem leiddi hann
að þröskuldi hamingjulandsins.
Önnur kona, Minna Wallis kom
honum inn í heim stjarnanna.
Margir höfðu tekið eftir haefi-
leikum hans í fyrstu kvikmynd-
inni, þegar hann lék kúreka,
sem hafði betra lag á konum en
hestum.
Það tóku margir eftir úfnum
augnabrúnum hans, sterklega
nefinu, hlýja, smitandi hlátrin-
um og hrukkóttu enninu og
ekki sízt liðaða hárinu og sterk-
legum líkama hans. Hann var
reglulegt karlmenni. í kvik-
myndaheiminum var fólk líka
orðið hálfþreytt á væmnum
manngerðum og Valentino týp-
an var ekki lengur íjízku.
En það þurfti líka konur til
að opná augun á þeim körlum,
sem réðu og ríktu í kvik-
myndaiðnaðinum. Clark Gable
gat því ekki fengið betri tals-
mann en Minnu Wallis.
Hún var systir þekkts leik-
stjóra og þekkti alla, sem áttu
eitthvað undir sér. Hún fór til
hins mektuga Darryl F. Zan-
ucks og bað hann um' að líta á
reynslukvikmynd, sem hún
hafði grafið upp.
Zanuck horfði á myndina í
fimm minútur, þá var hann bú-
inn að fá nóg af Clark Gable.
— Hann hefur allt of stór
eyru, andvarpaði Zanuck. —
Ég þoli ekki að horfa á hann
lengur.
— En hann er ágætur leik-
ari. Og hann er ljómandi mynd-
arlegur, eiginlega líkur Jack
Dempsey, andmælti Minna.
— Það getur verið, tók Zan-
uck fram í fyrir henni. — En
eyrun eru allt of stór. Hann
gæti flogið á þeim einum hve-
nær sem er.
Og þar með var Zanuck bú-
inn að afgreiða Clark Gable.
Þetta var mesta skyssa sem
hann gerði og skrítið að hann
skyldi ekki vera dómbærari.
Minna Wallis lét þetta ekki
á sig fá. Hún fór til Irving
Thalbergs, sem var hjá Metro-
Goldwyn-Mayer.
— Láttu þér ekki detta þetta
í hug, öskraði Thalberg. —
Clark Gable er ómögulegur. É’g
hef séð hann. Eyrun á honum
eru eins og þokulúðrar!
— Hvers konar leikstjóri
ertu, sagði Minna, sem vissi vel
hvernig átti að umgangast
svona menn. — Þú veizt miklu
betur en ég hvað hægt er að
gera með myndavélunum, það
er hægt að gera kraftaverk með
réttri lýsingu og réttum fjar-
lægðum.
Hún hætti ekki fyrr en Thal-
berg settist tautandi inn í sal-
inn, þar sem reynslukvikmynd-
ir eru sýndar. Og þegar mynd-
inni lauk, var sigurinn unninn.
Thalberg varð að viðurkenna
að þessi Clark Gable væri eig-
inlega nokkuð góður. Og eyr-
un, já, það var þá eitthvað til
að spreyta sig á sem leikstjóri.
Hann hafði komizt út úr verri
klípu.
Clark Gable var kallaður til
skrifstofu forstjórans. Hann
stóð frammi fyrir Thalberg,
þráðbeinn, myndarlegur, horfði
beint í augu hans með hlátur-
mildum augum. Það var ör-
yggi yfir allri persónu hans og
Thalberg fannst hann mjög
glæsilegur, þrátt fyrir eyrun.
Hann fékk strax hlutverk á
móti Constance Bennet í „Auð-
veldasta leiðin“. Og áður en
upptakan var hálfnuð, var hon-
um boðinn samningur upp á
650 dollara á viku. Sá samn-
ingur var undirritaður í janú-
ar 1931.
Áður en janúarmánuður rann
upp næsta ár, hafði hann svo
sannarlega unnið fyrir kaupi
sínu. Hann lék í tólf kvikmynd-
um það árið og jafnvel i tveim-
ur í senn.
Nú var Hollywood og reynd-
ar Ameríka öll búin að eignast
kvikmyndahetju, glæsilegan
kraftakarl, sem alls ekki var
búinn að losa sig við framkomu
skógarhöggsmannsins. Þetta var
hraustur maður, sem ekki hik-
aði við að flengja konurnar og
ætlaðist svo til að þær bæðu
hann fyrirgefningar.
Nú var ekkert lát á bréfum
frá aðdáendum. Mestan sigur
vann hann í kvikmyndinni „A
Free Soul“, þar sem hann lék
með Leslie Howard og Normu
Shearer.
Og samt var árið 1931 ekki á
enda.
Það voru ekki eingöngu kon-
ur, sem hrifnar voru, karlmenn
höfðu líka mikið dálæti á hon-
um. Þeir gátu lært af honum
hvernig bezt var að meðhöndla
konur. Hann varð yfirleitt
allra eftirlæti.
En þegar konur um allan
heim óskuðu einskis frekar en
að fleygja sér fyrir fætur hans,
voru það aðeins tvær, sem áttu
einhvern þátt í einkalífi hans.
Önnur var fyrsta kona hans.
Josephine Dillon. Þegar Clark
Gable varð frægur, fylltist leik-
skóli hennar í Hollywood. Ung-
ir leikarar vildu gjarnan greiða
35 dollara fyrir tímann til að
fá kennslu hjá konunni, sem
hafði mótað Clark Gable.
En á miðju ári 1931, þegar
allt gekk sem bezt hjá honum,
skrapp Clark Gable til Santa
Ana, sem -er rétt sunnan við
Hollywood, til að kvænast konu
frá Texas, svo lítið bæri á. Það
leið ekki á löngu áður en nafn
hennar varð kunnugt. Hún hét
Marie Langham og hún átti son
og dóttur. Þau höfðu reyndar
Framhald á bls. 33.
12 VIKAN 36. TBL.