Vikan - 09.09.1971, Síða 24
RÚLLUTERTUR
Á
VMSA iiegu
Vilji maður baka
eitthvaS reglulega
gott, sem einnig er
fljótlegt, þá er
rúlluterta lausnin.
Hér fara á eftir
nokkrar ólíkar rúllu-
tertuuppskriftir.
Hafið hugfast við
bakstur á rúllutertu:
Hafið allt tilbúið,
sem nota þarf þegar
tertan kemur úr
ofninum, áður en
kakan fer inn í
ofninn.
Þær þurfa það stutt-
an tíma í ofninum,
að allt verður
að vera tilbúið og við
hendina.
RÚLLUTERTA
ÖMMUNNAR
3 egg
IV2 dl sykur
2 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
Fylling:
Jarðarberiasulta
Þeytið egg og sykur Ijóst og
létt. Blandið hveiti og lyftidufti
saman og sáldrið því útí eggja-
hræruna. Breiðið deigið út í
rúllutertuform eða pappírsform,
vel smurt, stærð ca. 30x40 cm.
Bakið við 250° í ca. 4—5 mín.
Hvolfið síðan kökunni á sykri
stráðan pappír, breiðið sultuna
yfir og rúllið upp. Rúllið upp á
langhliðina, ef þið viljið fá fleiri
og minni sneiðar en á breiddina
ef sne.iðarnar eiga að vera
stærri. '
SÚKKULAÐIRÚLLU-
TERTA MEÐ
HESLIHNETU-
SMJÖRI
3 egg
IV2 dl sykur
% dl kartöflumiöl
2 msk. kakó
1 tsk. lyftiduft
Fylling:
150 gr smjör eða smjörlíki
2'/2 dl flórsykur
2 dl saxaðir heslihnetukjarnar
1 eggjarauða
safi úr einni appelsínu
rifið hýði af 1 appelsínu og
V2 sítrónu
Skreyting:
það sem eftir er af heslihnetu-
smjörinu og gróft saxaðir hesli-
hnetukjarnar.
Þeytið egg og sykur Ijóst og létt.
Blandið saman hveiti, kakó og
lyftidufti og sáldrið saman við
eggjahræruna. Breiðið út í
smurt smjörpappírsform 30x40
cm. Bakið við 250° í ca. 5 mín.
Hvolfið kökunni á sykri stráðan
smjörpappír og látið hana kólna
og gott er þá að hvolfa yfir
hana ofnskúffunni, ef kakan er
ekki bökuð í rúllutertuformi. —
Hrærið kremið og bragðið til.
Breiðið síðan kremið á kökuna
og rúllið henni upp. Breiðið því
sem eftir verður af hnetusmjör-
inu utan á kökuna og stráið
gróftsöxuðum hnetukjörnum ut-
an á.
APRIKÖSU-
RÚLLUTERTA
2 egg
1 dl sykur
1 V2 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
Fylling:
Aprikósumauk (fæst t. d. sem
barnamatur á glösum, 200 gr)
1 dl saxaðar heslihnetukjarnar
flórsykur
Þeytið egg og sykur Ijóst og létt.
Sáldrið hveitinu og lyftiduftinu
saman við. Bakið í smurðu
smjörpappírsmóti. Bakið við
250° í ca. 5 mínútur. Hvolfið
síðan á sykri stráðan smjörpapp-
!r. Aprikósumaukið sett á og
söxuðum hnetukjörnunum stráð
yfir. Rúllið saman. Sáldrið síðan
flórsykri yfir.
24 VIKAN 36. TBL.